Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2. J Ú L Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  152. tölublað  100. árgangur  REGLA HUGLEIKS ER AÐ FINNA LÖG OG SNÚA ÚT ÚR ÞEIM MANNMERGÐ Í MIÐBORG SÖNGELSKIR FÁ LAGATEXTA SENDA BEINT Í SÍMANN NUTU SÍN Í VEÐURBLÍÐU BYLTING Í BREKKUSÖNG 10ENN FLEIRI ÍSLENSK DÆGURLÖG 26 Morgunblaðið/Ómar Kópur Selnum er gert hátt undir höfði í Selasetri Íslands á Hvammstanga.  Laxasetur Íslands var opnað á dögunum á Blönduósi. Lifandi lax- fiskar eru í aðalhlutverki á sýningu setursins en henni er skipt upp í þrjú meginþemu; líffræði, þjóð- fræði og veiðar. Laxinn er ekki fyrsta dýrið til að fá setur tileinkað sér hér á landi. Á undanförnum árum hafa setur til- einkuð íslensku dýralífi risið hratt og eru nú orðin ellefu talsins. Það er Selasetur á Hvammstanga, Sauð- fjársetur á Ströndum, Melrakkaset- ur á Súðavík og Arnarsetur Íslands í Reykhólahreppi svo eitthvað sé nefnt. Aukning í sjálfbærri náttúru- tengdri ferðaþjónustu er ein aðal- ástæðan fyrir fjölda dýrasafna sem hafa risið hér á landi að mati Vignis Skúlasonar, framkvæmdastjóra Selasetursins. »16 Setur til heiðurs íslensku dýralífi rísa hratt um landið Kosningarnar í tölum » Ólafur Ragnar hlaut 52,78%. » Þóra Arnórsdóttir hlaut 33,16% á landsvísu. » Kjörsókn yfir landið allt var 69,2%. » Auðir og ógildir voru 2,45% nú en voru 21,2% árið 2004. Helgi Snær Sigurðsson Stefán Gunnar Sveinsson Viðar Guðjónsson Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, hlaut 52,78% gildra atkvæða í forsetakosningunum á laugardag- inn var. Þóra Arnórsdóttir, helsti keppinautur hans, hlaut 33,16% at- kvæða. Af öðrum frambjóðendum varð Ari Trausti Guðmundsson hlutskarpastur með rúmlega 8% at- kvæða. Fylgi Ólafs Ragnars var alls staðar yfir 50% nema í Reykjavík. Ljóst var frá fyrstu tölum í hvað stefndi, en fylgi Ólafs var langmest í Suðurkjördæmi, þar sem hann var með 63,57% fylgi. Kjörsókn fór hægt af stað og fljótlega varð ljóst að hún yrði minni en vanalegt er. Hins vegar var fjöldi utankjörfundaratkvæða með mesta móti. Kjörsókn var lak- ari í Reykjavík en í hinum kjör- dæmunum. Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur segir að al- menn þreyta með stjórnmál geti hafa átt þátt í því. Það vakti athygli að könnun Gall- ups sem birtist tveimur dögum fyrir kosningarnar reyndist vera mjög nálægt úrslitunum. Einar Einars- son, framkvæmdastjóri Capacent rannsókna, segir að skoðanakann- anir hafi lítil sem engin áhrif á nið- urstöður kosninga. Ólafur Ragnar segir í viðtali við Morgunblaðið að hann sé mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem sér hafi verið sýndur. MForsetakosningar 2012 »4, 6 Afgerandi sigur forsetans  Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 52,78% gildra atkvæða  Þátttaka í kosning- unum var með minnsta móti  Kannanir fyrir kosningar hárnákvæmar Morgunblaðið/Árni Sæberg Á heimleið Umferðin til Reykjavíkur í gær gekk vonum framar að sögn lög- reglu. Hátt í fimm hundruð manns voru á tjaldsvæðinu á Flúðum. Fyrsta helgin í júlí er önnur stærsta ferðahelgi ársins á eftir verslunar- mannahelginni en skipulögð hátíðar- höld voru víða um land og myndaðist töluverð stemning á tjaldsvæðum og gistihúsum landsins. Að sögn lög- reglu gekk umferðin vonum framar um helgina. „Þetta var nokkuð gott hjá okkur. Hingað komu um 450 manns og þetta gekk bara mjög vel. Stemning- in var góð og við vorum mjög heppin með veður,“ segir Sigurjón Bergs- son, umsjónarmaður tjaldsvæðisins á Flúðum. Mikill fjöldi háskólanema lagði leið sína á tjaldsvæðið, en Sigurjón segir það miður hversu illa þau gengu um svæðið. „Umgengnin var alls ekki til fyrirmyndar og það er engu líkara en að hér hafi verið helj- arinnar útihátið,“ segir Sigurjón, en tjöld, matur og annað rusl var m.a. skilið eftir á svæðinu. Brynjólfur Flosason gegnir starfi skálavarðar í Húsadal, en hann segir fjölda gesta í Þórsmörk hafa verið undir væntingum í ár. „Fjöldi gesta í Þórsmörk um helgina stóð alla vega ekki undir væntingum okkar í þetta sinn,“ segir Brynjólfur og bætir við að gestir í Þórsmörk hafi verið færri um helgina en aðrar helgar í sumar. Brynjólfur telur að forsetakosn- ingarnar hafi átt mikinn þátt í fækk- un gesta um helgina, en hann segir erlenda ferðamenn hafa verið í meirihluta gesta. „Útlendingar eru náttúrlega ekki mikið að spá í for- setakosningar á Íslandi og því var töluvert um þá hjá okkur,“ segir Brynjólfur, en hann segir að veðrið hafi ekki getað spillt fyrir aðsókninni því sól og blíða hafi verið í Þórsmörk. pfe@mbl.is Háskólanemar gengu illa um á Flúðum  Um 450 manns voru á tjaldsvæðinu á Flúðum um helgina  Fjöldi gesta undir væntingum í Þórsmörk Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fékk gómsæta gjöf á Bessastöðum í gær þegar félagar í Konditorsambandi Íslands komu færandi hendi með sérbakaða tertu í tilefni af forsetakosning- unum. Var hún m.a. gerð úr blásnum og teygð- um sykri og prýdd skjaldarmerki forseta Íslands sem og merki Konditorsambandsins sem stofnað var 1. mars sl. Eins og sjá má kunnu forsetahjón- in vel að meta þennan óvænta glaðning. Endurkjöri fagnað með gómsætri forsetatertu Morgunblaðið/Árni Sæberg  Spánverjar tryggðu sér í gærkvöldi Evr- ópumeistaratit- ilinn í knatt- spyrnu með sigri á Ítalíu, 4:0, í Kænugarði. Margt var sögu- legt við sigurinn. Hann var sá stærsti í úrslitum Evr- ópumótsins, ekkert lið hefur áður varið titilinn og Fernando Torres varð fyrsti maðurinn til að skora í tveimur úrslitaleikjum. » Íþróttir Spánn vann þriðja stórmótið í röð 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.