Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012 Haraldur Sumarliðason, húsasmíðameistari og fyrrverandi forseti Landssambands iðnaðarmanna og formaður Samtaka iðnaðarins, er 75 ára í dag. Hann ætlar ekki að halda sérstaklega upp á afmælið. „Ég hélt myndarlega upp á afmælin þegar ég varð 40, 50 og 60 ára og þá hætti ég! Fimmtugs- og sextugsafmælin voru mjög fjöl- menn og virkilega eftirminnileg,“ sagði Haraldur. Auk þess að vera í forystu samtaka iðnaðarmanna og iðnaðarins um 15 ára skeið var hann einnig í bygginganefnd Reykjavíkur í 20 ár, sat í bankaráðum þriggja banka og gegndi fleiri stjórnunarstörfum. Þetta var auka- vinna því aðalstarf hans alla tíð var við eigin byggingarekstur. „Ég vildi ekki festast inni á skrifstofu sem forystumaður ein- hverra samtaka,“ sagði Haraldur. „Þá fara menn að halda í starfið sitt og ég er ekki hrifinn af því. Ég sé það svolítið í verkalýðshreyf- ingunni að menn vilja ekki hætta. Það er ekki sniðugt. Þegar við stofnuðum Samtök iðnaðarins var sett sú regla að enginn má vera formaður lengur en í sex ár.“ En er hann sestur í helgan stein? „Já, núna,“ sagði Haraldur. „Þetta er allt í lagi á sumrin, en ég er ekki alveg búinn að finna mig á veturna. Fyrsti veturinn án fastra starfa var síðasti vetur og hann var svolítið skrítinn. En á sumrin er- um við hjónin mikið í golfi og við förum dálítið í golfferðir. Golfið er aðal tómstundaiðja okkar.“ gudni@mbl.is Haraldur Sumarliðason er 75 ára í dag Morgunblaðið/Golli 75 ára Haraldur Sumarliðason húsasmíðameistari hefur unnið mest við byggingastörf en einnig gegnt fjölmörgum forystustörfum. Vildi ekki festast inni á skrifstofu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Stefán Þór Páls- son gleðigjafi með meiru er fimmtíu og tveggja ára í dag, 2. júlí. Hann mun fagna deg- inum á heimili sínu að Erluási í Hafn- arfirði með fjöl- skyldu og vinum. Árnað heilla 52 ára Magnea Vignisdóttir og Arndís Erla Örvarsdóttir héldu tombólu fyrir utan versl- un Samkaupa við Borgarbraut á Akureyri. Þær söfnuðu 4.962 kr. sem þær styrktu Rauða kross Íslands með. Hlutvelta Stefán fæddist í Keflavík og ólst þar upp, var búsettur á Laugarvatni 1972-74 en hefur síðan verið búsett- ur á Seltjarnarnesi. Stefán lauk stúdentsprófi frá ML 1962, prófi í líffræði frá háskólanum í Belgrad 1967 og stundaði fram- haldsnám í vistfræði og vatna- líffræði þar 1967-69, lauk prófi í upp- eldis- og kennslufræði frá HÍ 1971 og stundaði fræða- og kennslustörf í Svíþjóð 1984-86. Stefán var kennari við MR 1969- 72 og 1974-78 og við ML 1972-74, varð lektor í líffræði við KHÍ 1978, dósent þar í líffræði og umhverf- ismennt frá 1998 og síðan við menntavísindasvið HÍ. Hann var að- stoðarrektor KHÍ 1979-83 og starf- andi rektor 1981-83. Stefán var formaður Náttúru- verndarfélags Suðvesturlands 1971- Stefán Bergmann, dósent við Háskóla Íslands, 70 ára Striplast í sólinni Barnasynirnir Árni Stefán, Gabríel og Oliver svala þorstanum í sumarbústað afa og ömmu. Fjallað um umhverfi og menntun í 40 ár Með frumburðinn Stefán og Helga Hrönn með Þórhall - fyrir tæpum 35 árum. Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.