Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012 Tilboð : Fólksbíll – 6500,- (fullt verð 9000,-) Jepplingur – 8000,- (fullt verð 12.000,-) Pantaðu alþrif strax í dag Handþvottur / Handbón Er bíllinn þinn skítugur eftir helgina? BÓNSTÖÐIN DALVEGI 16C Sími 571-9900 / 695-9909 „Í okkar tilviki er þetta í sjálfu sér ósköp borðleggjandi, við erum bæði komin í eins konar sumarfrí, María á sitt sumarfrí til 1. ágúst u.þ.b. og ég sem lausamaður tek mér sumarfrí þegar mér sýnist,“ segir Ari Trausti Guðmundsson, spurður að því hvað taki við hjá honum að loknum kosn- ingum. Eftir frí bíði hans mörg verk- efni. „Það bíður mín heimildarmynd eða þáttaröð um Reykjanesskagann og ég er að vinna í sjónvarpsefni um Vatnajökulsþjóðgarð, er að skrifa bók og ég get talið upp fleira,“ segir Ari en bókin sem hann nefnir er smá- sögur sem hann segist vera að semja. Þá sé nýkomin út stór bók eftir hann og Ragnar Th. Sigurðsson á ensku, MAGMA, bók sem kom út viku fyrir kosningar og þeir þurfi að fylgja eftir. „Þetta var svona smá Þingvalla- hringur hjá mér út úr þessu verkefnavali sem ég hef,“ segir Ari Trausti kíminn um framboðið. Spurður að því hvort hann sé sáttur við sína kosningabaráttu segist Ari vera það. „Ég held ég megi fullyrða að ég eigi smá- vegis inni í kjörfylgi bæði Þóru og Ólafs, einfaldlega út af þessum taktísku kosningum.“ Mörgum verkefnum að sinna Ari Trausti Guðmundsson Hannes Bjarnason segist ætla að hverfa aftur til fyrri starfa en hann gegnir starfi breytingastjóra hjá tölvuþróunarfyrirtækinu Evry í Nor- egi. „Mínar persónulegu aðstæður eru þannig að ég á börn af fyrra sambandi með norskri konu og það gerir mér því miður ekki kleift að snúa aftur til Íslands alveg ennþá, úr því að svona fór, þannig að ég verð líklega að bíða,“ segir Hannes og bætir því við að vonandi geti hann flust til Íslands á næsta ári. Spurður að því hvort hann sé sáttur við kosningabar- áttu sína segist Hannes ekki geta sagt annað. „Ég hef náttúrlega bara gert þetta af bestu efnum og þá er ég ekki endilega að tala um peninga heldur líka mannleg efni,“ segir hann. Það hafi verið ákveðin hug- myndafræði hjá honum að vera í nánum tengslum við fólk sem leitað hafi til hans, m.a. blaðamenn, og þá án nokkurra milliliða. „Ég get ekki stungið því undir stól að ég bjóst kannski við því að það væri meiri áhugi hjá almenningi að taka svolítið uppgjör við hrunið. En við tókum eftir því, smám saman, að þetta snerist miklu meira um Evrópusambandið en margt annað.“ Hverfur aftur til fyrri starfa Hannes Bjarnason „Ég sný mér aftur að lögmennskunni og störfum mínum á sviði mannrétt- inda fyrir Evrópuráðið,“ segir Her- dís Þorgeirsdóttir um það sem við tekur hjá henni að loknum kosn- ingum. Spurð að því hvort hún sé sátt við sína kosningabaráttu segir hún úrslit kosninganna sýna að fólk hafi kosið á milli tveggja turna. „Þetta voru hápólitískar kosningar. Skoðanamótandi skoðanakannanir höfðu áhrif á kjörsóknina og úrslitin sem og afstaða fjölmiðla frá upphafi baráttunnar. Um- ræðan framan af snerist um valdsvið forseta, aðallega málskotsréttinn. Ég hamraði á þörfinni á að rjúfa tengslin milli peningaafla og stjórnmála enda sýnt fyrir hrun að ítök viðskiptalífsins í stjórnmálum voru ein meginorsök hrunsins. Ég opnaði bókhald framboðsins og þáði ekki styrki frá fyrirtækjum og sýndi þar í verki að baráttan gegn spillingu krefst gagnsæis og heið- arleika.“ Herdís segir að í þrjá mánuði hafi margir unnið í sjálfboðavinnu fyrir framboð hennar og því fólki sé hún óendanlega þakklát. Hún óskar meðfram- bjóðendum alls hins besta og forsetanum til hamingju með endurkjörið. Snýr sér að lögmennskunni Herdís Þorgeirsdóttir Þóra Arnórsdóttir er á leið í fæðingarorlof og sumarfrí eftir stranga kosningabaráttu. Þóra segist ekki vita hvað taki við að loknu fæðingarorlofi, spurð að því hvort hún snúi aftur til starfa hjá RÚV eða snúi sér að ein- hverju öðru. „Við verðum að sjá til í haust, við bæði, ég þarf eiginlega að senda Svavar á sjó, ef þú veist um laust pláss þá erum við með vanan mann,“ segir hún á léttum nótum. „Það getur vel verið að ég snúi aftur til starfa á RÚV en það er bara of snemmt að segja til um það.“ Þóra segir það vissulega mikla reynslu að bjóða sig fram til forseta Íslands, reynslu sem hún þurfi að melta og draga lærdóm af og hún muni eflaust nýtast henni vel í framtíðinni. Nú sé hins vegar kominn tími til að slaka á með fjölskyldunni. „Nei, ég var það ekki,“ svarar Þóra, spurð að því hvort hún hafi verið sátt við kosningabaráttuna en bætir því við að til lítils sé að velta sér upp úr því. Þóra greindi frá því á kosningavöku RÚV í fyrrakvöld að hún ætlaði ekki að bjóða sig aftur fram til forseta. „Það er mín skoðun að maður geri þetta bara einu sinni á ævinni, ég veit ekkert hvar ég verð eftir fjögur ár.“ Þóra Arnórsdóttir Fæðingarorlof og sumarfrí 6 „Það veit enginn sína ævina fyrr en öll er og það er eiginlega ómögulegt að spá um hvað er framundan,“ segir Andrea Ólafsdóttir, spurð að því hvað taki við að loknum kosninga- slag. Hún segir málstað sinn, að berj- ast fyrir hagsmunum heimilanna, hafa hlotið mikinn hljómgrunn hjá því fólki sem hún hafi hitt fyrir í kosningabaráttu sinni. „Réttlæti fyr- ir fólkið í landinu brennur á mér og er það sem hefur rekið mig áfram,“ segir Andrea, hún muni að öllum líkindum halda áfram þeirri baráttu. Spurð að því hvort hún sé sátt við sína kosningabaráttu segist Andrea hafa ákveðið strax í upphafi að hafa hana málefnalega, hún myndi ekki taka þátt í neins konar skítkasti á aðra. „Ég stóð við það og frá mínum bæjardyrum séð finnst mér ég hafa komið heiðarlega og málefnalega fram og yfirvegað og ég er mjög sátt við það.“ Andrea telur að henni hafi tekist að vekja fólk til umhugsunar um stjórnarfar og stjórnarskrá Íslands og vonast til þess að fólk hugleiði hvernig hægt sé að móta betra lýðræðissamfélag þar sem fólk hafi meiri áhrif á ákvarðanatöku. Réttlæti fyrir fólkið í landinu Andrea Jóhanna Ólafsdóttir VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, segir að hann sé mjög þakk- látur fyrir þann ótvíræða stuðning við sig, sem niðurstöður kosninganna á laugardaginn hafi sýnt fram á. Sá stuðningur hafi birst bæði í rúmum meirihluta greiddra atkvæða og í því bili sem var á milli hans og næsta mót- frambjóðanda: „Hvort tveggja felur í sér mjög skýr skilaboð og stuðning sem ég met mikils og mun gera glím- una við ýmis vandasöm mál á komandi árum auðveldari.“ Ólafur segir að niðurstaðan sýni ekki bara stuðning við sjálfan sig heldur snúist hún mun meira um sterk skilaboð þjóðarinnar til allra ráðamanna um að fólkið í landinu vilji hafa aukin áhrif með beinum hætti á niðurstöður stórra mála. Forsetinn segir að þjóðaratkvæðagreiðslurnar um Icesave hafi sýnt fólkinu að það gat ráðið för, að ekki mætti útkljá stór mál án þess að það væri haft með í ráðum. „Þess vegna finnst mér þessi niðurstaða fyrst og fremst ekki vera gleðiefni fyrir mig persónulega, held- ur fyrir lýðræðislegan styrk þjóð- arinnar.“ Hann bætir við: „Niðurstaða Icesave-málsins sýndi þjóðinni að fólkið í landinu hafði réttara mat á stöðunni heldur en meirihluti Alþingis og ríkisstjórn og það er lærdómur sem greinilega hefur fest djúpar ræt- ur í hugum fólks og hefur leitt til þess að krafan um beint lýðræði hvílir nú á styrkum stoðum í vitund fólks.“ Ólafur segir að kosningabaráttan hafi verið bæði fræðandi og gefandi. Forsetahjónin hafi hitt að minnsta kosti ríflega 30.000 manns á vinnu- stöðum og öðrum fundum og að alls staðar hafi farið fram efnisrík sam- ræða um forsetaembættið, stjórn- skipunina og framtíðina. Auk mál- skotsréttarins vildu menn einkum ræða stöðu Alþingis en Ólafur segir að margir hafi haft áhyggjur af þeim miklu átökum sem setji svip sinn á störf þingsins, þar sem sífelld tog- streita sé um átakamál í stað þess að samtakamátturinn í samfélaginu sé nýttur. Tortryggni gagnvart Alþingi „Þegar maður fer um landið og heimsækir fólk þá fæst á skömmum tíma ansi skörp sýn á hve unnið er af miklum krafti á ólíkum sviðum. Þess vegna er það enn grátlegra að þegar fólkið er reiðubúið til að taka höndum saman skuli kröftum þjóðarinnar vera sóað í sífelldum átökum um stór- mál.“ Forsetinn segir að hið djúpa van- traust sem ríkir í garð Alþingis hafi vakið ugg hjá sér. „Ég hef aldrei fyrr orðið vitni að því að slík tortryggni og beinlínis reiði gagnvart Alþingi sé jafn útbreidd og sterk og almenn. Þetta tel ég alvarlegt hættumerki fyrir okkur öll, því ef fólkið treystir ekki Alþingi, þá kemur að því að fólk mun ekki treysta lögunum sem það setur heldur.“ Ólafur segir að þetta vantraust hafi leitt til þess að hann hefði á seinni stigum kosningabaráttunnar sagt að hann teldi eitt af meginverkefnum forsetans á næsta kjörtímabili vera að reyna að endurreisa traust Alþing- is í samvinnu við helstu aðila í þjóð- félaginu. Hann telur það eitt af brýnni verkefnum sínum á kjör- tímabilinu. Vill miðla af reynslu sinni Spurður um önnur verkefni sem hann muni taka sér fyrir hendur á síðasta kjörtímabili sínu segir Ólafur að það sé nauðsynlegt að árétta að hin daglegu störf forsetans haldi áfram, en þau helgast af stöðu forset- ans í stjórnskipaninni. Hins vegar segir forsetinn að það sé alveg greini- legt að úrslit kosninganna feli í sér ósk um að forsetinn taki aukinn þátt í umræðunni í samfélaginu, t.d. hvað varðar aðild Íslands að Evrópusam- bandinu, sem hafi vegið þungt í hug- um fólks í kosningabaráttunni. „Það þýðir ekki að forsetinn verði forystu- maður já- eða nei-hreyfingar, en mér fyndist óeðlilegt, ef sá fulltrúi þjóð- arinnar sem hefur átt lengst sam- skipti við áhrifamenn í Evrópu ætti ekki að miðla af þeirri reynslu til Ís- lendinga.“ Ólafur bætir við að þess sé oft óskað bæði hérlendis og erlendis að forsetinn leggi málefnum lið, og að hann muni áfram beita sér í ýmsum málum, eins og t.d. umhverfismálum, málefnum norðurslóða auk málefna hafsins en þessi málefnasvið þjóni öll langtímahagsmunum Íslands. Ólafur hyggst sitja út kjörtíma- bilið. „Sá andi sem ég hef fundið hjá fólkinu í landinu og stuðningurinn sem ég fann í hugum og hjörtum fólks vítt og breitt um landið fylla mig auðmýkt gagnvart þeim trúnaði og trausti sem stór hluti þjóðarinnar sýnir mér. Sérhver sem hlýtur slíkt í veganesti hlýtur að hafa það að leið- arljósi að bregðast ekki því fólki.“ Skýr skilaboð frá íslensku þjóðinni  Forsetinn segir að hann sé mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem sér hafi verið sýndur  Vill endurreisa traust fólks á Alþingi  Telur að skapa verði breiða sátt um breytingar á stjórnarskrá Morgunblaðið/ Árni Sæberg Endurkjörinn Ólafur Ragnar Grímsson segir að stuðningurinn sem hann hafi fundið hjá fólkinu í landinu hafi fyllt sig auðmýkt. Forsetakosningar 2012 Ólafur Ragnar segir að tillögur stjórnlagaráðs um forseta- embættið séu á þann veg að þær efli vald þess og áhrif. Sumir af þeim sem sátu í stjórn- lagaráði hafi hins vegar túlkað þær á annan hátt sem sé merki þess að vinna þurfi verkið betur. Forsetinn segir að Alþingi hafi ekki tekist að skýra fyrir þjóð- inni hvert hlutverk forsetans ætti að vera í nýrri stjórnskipan en hefði í staðinn sett málið í ráðgefandi atkvæðagreiðslu. „Þá minni ég á að upphaf þess- arar vegferðar var að það ætti að gera nýjan sáttmála við þjóð- ina. Í ljósi þess mega menn ekki flýta sér svo mikið í því verki að niðurstaðan verði í verulegum ágreiningi.“ Forsetinn segir að stjórnarskráin eigi ekki að vera samin með hagsmuni einnar rík- isstjórnar í huga og minnir á að það hafi nær alltaf tekist að skapa breiða samstöðu um breytingar á stjórnarskránni. „Stjórnarskráin á að vera þeirr- ar gerðar að allar ríkisstjórnir á öllum tímum sjái hag sinn í að fylgja henni og það verður þing- ið að hafa í huga þegar menn koma að þessari vinnu í haust.“ Má ekki flýta sér of mikið STJÓRNARSKRÁIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.