Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ein besta klifurkona Bandaríkjanna, hin 19 ára gamla Sasha DiGiulian, sýndi styrk sinn og fimi í Klifurhúsinu í gær og var engu líkara en þar færi sjálfur Kóngulóarmaðurinn. DiGiulian verð- ur gestaleiðbeinandi á Nordic Youth Camp, klif- ursumarbúðum fyrir unglinga frá Íslandi, Finn- landi, Danmörku og Svíþjóð sem hófust í gær á Hnappavöllum og lýkur 7. júlí. DiGiulian hefur lokið tveimur klifurleiðum sem hafa gráðuna 9a og þykja afar erfiðar. Hún lauk í fyrra slíkri klif- urleið í Kentucky og varð þar með fyrst banda- rískra kvenna til að vinna slíkt afrek. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kóngulóarkona fikrar sig upp vegg Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Framleiðsluaukning álversins í Straumsvík er tæknilega flóknari en gert var ráð fyrir. Erfitt hefur reynst að leysa ýmsar tækni- legar áskoranir sem hafa valdið töfum á verkefninu. „Framleiðsluaukningin er einn af þremur stórum verkþáttum fram- kvæmdanna sem hér hafa staðið yfir und- anfarin misseri. Við erum svo til búin með hina tvo, en erum að endurskoða hvernig við nálgumst straumhækkunina,“ segir Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. Breytingar á straumleiðurum í tveimur kerskálum, sem eru forsenda fram- leiðsluaukningar, frestast að öllum líkindum fram á næsta ár. Rannveig segir heildar- verkefnið mjög stórt í sniðum og gríðarlega dýrt. „Þetta eru 60 milljarðar í heild og ýmsir veigamiklir hlutar verkefnisins hafa gengið vel, t.a.m. breyting á framleiðslu- afurð álversins úr börrum í bolta. Við steyptum fyrstu boltasteypurnar um daginn og þær eru komnar til viðskiptavina,“ segir Rannveig. Rio Tinto Alcan ákvað á dögunum að segja upp samningi við verkfræðifyrirtækin Hatch og HRV, sem hafa séð um verk- fræðilega hönnun, innkaup og umsjón fram- kvæmda. Að sögn Rannveigar var það ekki gert á grundvelli vanefnda heldur sam- kvæmt almennu uppsagnarákvæði í samn- ingnum. Eðlilegt hafi verið að endurskoða skipulag verksins í ljósi þess að hönnun og inn- kaupum sé nánast lokið, sem og tveimur meginþáttum framkvæmda af þremur. „Í kjölfarið mun framkvæmdasvið Rio Tinto Alcan vinna náið með Hatch og HRV að því að gera áætlun um hvernig undið verður of- an af þeirra núverandi aðkomu að verkinu á næstu vikum og mánuðum,“ segir Rann- veig. Rannveig segist ekki búast við að seink- un straumleiðarabreytinganna vari í langan tíma og býst við að ná fullum afköstum á réttum tíma. „Við búumst við að fram- leiðsluaukningunni verði náð á tilsettum tíma enda gerum við nú ráð fyrir að hækka strauminn hraðar en til stóð í upphafi,“ seg- ir Rannveig. Álverið endurskoðar verkefni  Framkvæmdir til að auka framleiðslu álversins í Straumsvík tæknilega flóknari en gert var ráð fyrir  Breyting á straumleiðurum í tveimur kerskálum frestast fram á næsta ár  Samningum sagt upp „Þetta eru 60 milljarðar í heild og ýmsir veiga- miklir hlutar verkefn- isins hafa gengið vel.“ Rannveig Rist Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Stefnt er að því að opna Sprengi- sandsleið í vikunni. Um er að ræða mikla bót fyrir aðila í ferðaþjón- ustu á svæðinu sem margir hverjir reiða sig á að fjallvegir séu opnir yfir sumartímann. Þegar er búið að opna syðri hluta leiðarinnar sem liggur um Nýjadal. Lítill snjór er á veginum en mikil bleyta gerir það að verkum að hann er ófær enn. „Vonandi verður hægt að opna hann síðari hluta vikunnar. Við munum hefja þá vinnu sem þarf til þess að opna hann á morgun (í dag). Nokkuð misjafnt er hvenær Sprengisandsleið hefur opnast fyr- ir umferð síðustu ár. Þegar best lætur opnast vegurinn um miðjan júní en dæmi eru þess að hann hafi opnast um miðjan júlí,“ segir Gunnar Bóasson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Húsavík. „Þetta fer eftir snjóalögum. Í síðustu viku var enn um 70 cm djúpt vatn við Fjórðungsöldu og því ekkert hægt að keyra þar um. Ástæðan er frost í jörðu. Um leið og það fer þornar vegurinn fljótt,“ segir Gunnar. Anders Hansen, framkvæmda- stjóri á Hótel Leirubakka á Hellu, segir það mikið hagsmunamál að vegurinn verði opnaður. ,,Þegar vegur eins og Sprengisandsleið er lokaður, lengur en þörf er á, er það augljóst að ferðamenn verða að breyta áætlunum sínum. Fyrir vik- ið verða hótel kannski af viðskipta- vinum sem þau voru búin að gera ráð fyrir með margra mánaða fyr- irvara,“ segir Anders sem þurft hefur að taka við afbókunum sök- um þess að leiðin er lokuð. „Yfir sumarmánuðina reiðir ferðaþjónustan sig á greiðar sam- göngur. Ferðaþjónustan á Íslandi hefur markaðssett landið sem mikla náttúruparadís, því er það okkur mjög mikilvægt að hægt sé að komast frá strönd til hæstu jökla jöfnum höndum,“ segir And- ers. Mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna  Verður vonandi hægt að opna Sprengisandsleið í vikunni Morgunblaðið/RAX Hálendið Stefnt er að því að opna Sprengisandsleið í vikunni. Gjaldtökuheimild fyrir köfun ofan í gjána Silfru á Þingvöllum tók gildi í gær en innheimtu fyrir köfun verður hins vegar frestað um einhvern tíma, til 1. september hið minnsta. Fyrir- hugað gjald, þjónustugjald sem hver kafari verður að greiða, er 750 kr. og var það Þingvallanefnd sem tók ákvörðun um gjaldtökuna. Rekstraraðilar í Silfru, fyrirtækin Arctic Adventures, Adventure Box, Dive og Scuba Iceland auk Sportkaf- arafélags Íslands, hafa nú sent nefnd- inni erindi þar sem fyrirhugaðri gjald- töku er harðlega mótmælt. Segir m.a. í því að gerðar séu alvarlegar athuga- semdir við þau vinnubrögð að þrátt fyrir yfirlýsingar um samstarf við rekstraraðila hafi reglur um gesta- gjöld verið settar með níu daga fyr- irvara, þ.e. að rekstraraðilar hafi feng- ið að vita af þeim níu dögum áður en þau áttu að taka gildi. Svo stuttur frestur sé óásættanlegur þar sem fyr- irtækin hafi selt ferðir með löngum fyrirvara og geti ekki látið verðskrá sína endurspegla slíkt gjald með svo stuttum fyrirvara. Auk þess eru gerð- ar athugasemdir við hversu óljóst gjaldið sé og að ekkert hafi komið fram um hvaða kostnaði því sé ætlað að mæta. Segir þjónustu ekki aukna Höfundar erindisins leggja til að gildistöku verði frestað til 1. júní á næsta ári og að settur verði upp sam- starfshópur með fulltrúum rekstrar- aðila og nefndarinnar sem fari nánar yfir alla þætti málsins, m.a. lögmæti gjaldtökunnar, samkeppnismál, ör- yggismál og uppbyggingu á svæðinu. „Það sem okkur langar að vita og við höfum ekki fengið að vita, sama hvað við höfum reynt, er hvaða þjónustu við munum fá umfram það sem aðrir gest- ir garðsins fá, hvort sem þeir eru þar í skipulagðri ferð eða á eigin vegum. Eina svarið sem við höfum fengið er að það verði ráðinn starfsmaður til gjald- töku,“ segir Torfi G. Yngvason, fram- kvæmdastjóri Arctic Adventures. Hann hafi ekki fengið nein haldbær svör við því hvernig gjaldið hafi verið reiknað út og þjónustan verði auk þess ekki aukin í takt við fjölda gesta. Ósáttir við gjaldtöku  Vinnubrögð Þingvallanefndar gagn- rýnd af rekstraraðilum og sportköfurum Tveir sluppu með minniháttar meiðsl eftir bíl- veltu á Mosfells- heiði í gær- kvöldi. Tveir farþegar voru í bílnum, ung stúlka og 13 ára drengur. Bíllinn er stórskemmdur eftir veltuna, en farþegar bílsins voru fluttir á slysa- varðstofuna í Fossvogi til aðhlynn- ingar. Stúlkan kenndi til í öxlinni eftir slysið og drengurinn hlaut skrámur í andlitið. Ekki er vitað um tildrög slyssins en betur fór en á horfðist að sögn slökkviliðsins á höfðuborgarsvæðinu. pfe@mbl.is Fólksbíll valt á Mosfellsheiði Varðskipsmenn Landhelgisgæslu Íslands fóru nýverið til eftirlits um borð í ellefu togara frá Rúss- landi, Spáni, Portúgal og Fær- eyjum sem voru á úthafskarfa- miðunum á Reykjaneshrygg. Á vefsvæði Gæslunnar segir, að þeg- ar komið var á svæðið hafi þar verið tuttugu erlendir togarar, eitt erlent flutningaskip, eitt er- lent olíuskip og tólf íslenskir tog- arar. Úthafskarfaveiðar á Reykjanes- hrygg hafa staðið yfir frá 10. maí. Gæslumenn fóru um borð í ellefu togara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.