Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012 Sigyn Jónsdóttir sigyn@mbl.is Ímyndaðu þér að taka papp-írssöngbókina og troða henniinn í símann,“ segir ArnarTumi Þorsteinsson, einn af stofnendum vefsíðunnar Guitarp- arty.com sem margir kannast eflaust við undir nafninu Gítargrip.is, um nýjustu afurð þeirra félaga, söngbók í símann. „Þú ert með fullt af fólki í hóp. Af þessu fólki þekkja þrír text- ann við lagið og aðrir hafa kannski ekki hugmynd um hvaða listamaður á lagið eða hvað það heitir. Í hvert skipti sem einhver vill spila eitthvert lag þurfa allir að fletta og þá skapast vesen. Pælingin er sú að einn stjórn- ar, til dæmis gítarleikarinn,“ útskýrir hann en þessi nýjung frá Guitarp- arty.com verður frumsýnd á Þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum um versl- unarmannahelgina. „Sá sem er stjórnandinn ræður hvaða lag er næst og þá fá allir á skjáinn sinn text- ann við lagið. Það þarf ekkert að gera annað en að byrja að syngja,“ segir Sævar Öfjörð Magnússon, annar stofnandi síðunnar og upphaflegi gít- arleikarinn í hópnum að sögn sam- starfsfélaga hans. Gegnblautar söngbækur „Þetta byrjaði allt með vanda- máli sem Sævar þurfti að leysa fyrir nokkrum árum síðan. Hann var nefnilega rokkstjarnan í hverju ein- asta gítarpartíi,“ segir Kjartan Sverrisson sem var ráðinn fram- kvæmdarstjóri fyrirtækisins árið 2010. „Eins og margir gítarleikarar var hann með möppu með lögum. Blöðin rifin og gegnblaut af drykkjum. Hann þurfti leið til að búa Söngbókinni troðið inn í símann Vefsíðan Guitarparty.com kynnir nýjung fyrir söngelska notendur sína. Um er að ræða farsímavef sem inniheldur meðal annars svokallað Party Mode þar sem allir í gítarpartíinu geta fengið textana beint í símann. Brekkan Allir geta sungið með í brekkusöngnum þetta árið. Kennsla Hér má sjá skjámynd af gítarkennslu Guitarparty.com. Bollakökuæðið á Íslandi virðist engan enda ætla að taka og eru áhugabak- arar landsins á góðri leið með að verða bollakökusérfræðingar. Gaman er að prófa sig áfram í bollaköku- gerðinni og reyna að finna nýjar upp- skriftir til að vinna með. Hin bandaríska Ming Thompson ákvað fyrir nokkrum árum að byrja að baka bollakökur og skrásetja ferlið á síðuna sína. Nú hefur hún sankað að sér yfir 30 uppskriftum að bollakök- um sem er hver annarri girnilegri. Á síðunni má til dæmis finna upp- skriftir að klassískum súkku- laðibollakökum en einnig frumlegum hugmyndum á borð við mangóbolla- kökur með kókoskremi og fíkjubolla- kökur með rjómaosti. Nú hefur Ming einnig byrjað að setja inn uppskriftir að smákökum og öðrum sætindum svo von er á góðu fyrir lesendur síðunnar á næstunni. Vefsíðan www.mingmakescupcakes.yolasite.com Gómsætar Ming Thompson býr til bollakökur úr ótrúlegustu hráefnum. Frumlegar bollakökur Hádegisleiðsögn er í boði á Listasafni Íslands á þriðju- og föstudögum kl 12:10-12:40. Í safninu eru nú uppi fjór- ar sýningar. Ölvuð af Íslandi er byggð á samnefndu þjóðarátaki þar sem Ís- land, í kjölfar bankahrunsins 2008, var kynnt sem náttúruleg paradís. Sýningin stendur til 4. nóvember. Þá hefur hin áhrifamikla innsetning Rúrí- ar, Archive, Endangered Waters, 2003, verið til sýnis í Listasafni Íslands frá því í marsbyrjun 2012, sem hluti af yf- irlitssýningu hennar og er núna á sýn- ingunni Hættumörk/Endangered. Sýningin stendur til 31. desember. Á sýningunni Dáleidd af Íslandi, getur að líta fossa úr safneign Listasafns Ís- lands á árlegri sýningu úr fórum stofnunarinnar sem stendur til 4. nóv- ember. Loks er uppi í safninu sýning- in[I]ndependent People/,,Sjálfstætt fólk sem var hluti af Listahátíð í Reykjavík 2012. Sýningarstjóri er Jo- natan Habib Engqvist. Endilega… …njótið hádeg- isleiðsagnar Morgunblaðið/Ómar Hádegisleiðsögn Listasafn Íslands. Það er ekki óalgengt að fólk geri mis- tök við eldamennskuna og þá kannski sérstaklega þegar verið er að prófa eitthvað nýtt. Ef þú gerir sömu mis- tökin aftur og aftur er það hins vegar eitthvað sem þú gætir þurft að skoða. Hér eru nokkur góð ráð sem fengin eru af vefslóðinni cookinglight.com Í fyrsta lagi ber að nefna mikilvægi þess að smakka matinn til. Annars getur hin besta uppskrift orðið óspennandi og bragðið skrýtið. Í mörgum uppskriftum er einmitt tekið fram að krydda eigi eftir smekk. Þetta er mikilvægt að muna og eins að treysta bragðlaukunum. Uppskriftir skal lesa vel og vandlega áður en þú byrjar að elda. Annars gæti svo farið að þú eigir ekki til mikilvægt hráefni eða krydd í réttinn. Auðvitað er hægt að hlaupa út í næstu búð en það minnkar stress að þurfa þess ekki. Undirbúðu eldamennskuna líka vel og vertu tilbúin/n með það sem þarf við höndina. Þegar kemur að marineringu er mikilvægt að salta hráefnið ekki um of og bæta frekar við salti þegar hráefnið er eldað. Þú vilt vissulega dálítið salt til að binda saman þau krydd sem þú notar en farðu varlega með saltstauk- inn. Nokkur góð ráð við eldamennskuna Kryddað eftir smekk og smakkað til Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Skoðaðu úrvalið www.jens.is Kringlunni og Síðumúla 35 Brúðkaup 2012 Persónuleg þjónusta og mikið úrval úr eðalstáli skreyttur íslenskum steinum Íslensk hönnun og handverk Kökuhnífur 11.800.- Borðbúnaður Salattöng 17.800.- Demantshringur með 10 punkta demanti 131.900.- Handsmíðaðir hringar úr 14 karata gulli 133.400.- parið Ostahnífur 5.900.- Smjörhnífur 5.900.- Settu upp óskalista hjá okkur og fáðu 15% af andvirði þess sem verslað er fyrir í brúðkaupsgjöf frá Jens!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.