Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012 ✝ Bjarni Bjarna-son fæddist á Norðfirði 25. febr- úar 1925. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 15. júní 2012. Foreldrar hans voru Guðrún Hall- dórsdóttir frá Hliði á Eyrar- bakka og Bjarni Vilhelmsson frá Nesi í Norðfirði. Bjarni giftist 25. febrúar 1961 Auði Sigurðardóttur, f. 27. október 1933. Foreldrar hennar voru Valgerður Ívars- dóttir frá Sviðskoti, Álftanesi og Sigurður Kristjánsson frá Suðurkoti í Grímsnesi. Börn Bjarna og Auðar eru: 1) Ívar, f. 6. febrúar 1951, maki Gunn- hildur Ásta Gunnarsdóttir, f. 4. apríl 1968, 2) Sólveig Edda, f. 12. mars 1957, maki Gunn- laugur Sigurðsson, f. 12. des- ember 1954, 3) Guðrún Bjarna- dóttir, f. 11. október 1960, maki Jóhannes Kristjánsson, f. 19. ágúst 1960, 4) Valgerður Bjarnadóttir, f. 11. október 1960, maki Haraldur Árnason, f. 15. apríl 1954. Barnabörnin eru 15 og barna- barnabörnin 14. Bjarni ólst upp í stórum syst- kinahópi og byrj- aði ungur að stunda sjóinn, fyrst á smábátum síðan á nýsköpunartogurunum og hinum ýmsu togurum og ver- tíðarbátum fyrir sunnan. Um tvítugt flutti hann til Hafn- arfjarðar. Þar kynntist hann eiginkonu sinni og bjuggu þau lengst af á Reynihvammi 2 eða í 46 ár. Þaðan var stutt niður á smábátabryggjuna. Í kringum 1970 keypti hann sér bát og hóf grásleppuveiðar. Hann starfaði síðan við eigin útgerð þar til fyrir fjórum árum er hann fékk heilablóðfall. Árið 2011 flutti hann ásamt Auði eiginkonu sinni á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Bjarna hefur farið fram í kyrrþey. Kveðja til Bjarna afa. „Afi, afi, afi. Heyrðist í þok- unni.“ Saga sem afi fékk að segja oft eftir Þórsmerkurferð sem drukknaði í rigningu og þoku. Ég var líklega á leikskólaaldri og við Bjarni Viðar kölluðum á veruna í þokunni, sem var risavaxin og færðist nær og nær. Bjarni afi var með hávaxnari mönnum sem ég hef kynnst, enda frá Norð- firði. Allt var stærra þar, skildist mér. Krækiberin ultu niður brekkurnar fyrir austan, sagði hann þegar við vorum í berjamó. Oft var afi uppi á háalofti að fella net og maður fékk að kíkja upp til hans og róla. Á sjómanna- daginn fengum við krakkarnir að fara með honum í siglingu á trill- unni hans. Ótal veiðitúrar upp að Kleifarvatni. Þó að fiskifælan ég hafi oftar en ekki setið uppi í brekku með bók. Það hefur margt breyst í Hafnarfirði síðan maður var svona lítill og bryggjan var mið- punkturinn í bænum. En það var lengi vel hægt að kíkja niður í skúr til afa og sníkja af honum harðfisk. Mér fannst ég kynnast afa upp á nýtt þegar ég eignaðist börn. Hann ljómaði þegar maður kom með þau í heimsókn. Hann tók þau og hossaði þeim og trallaði við þau, þó þau væru alveg pínu- lítil. Svo var ekki verra að gefa þeim gotterí og taka hraustlega í höndina á þeim þegar þau stækk- uðu. Við erum afskaplega þakklát fyrir að hafa náð að heilsa upp á þig þegar við komum síðast til Ís- lands. Vertu sæll og blessaður. Hvíl í friði. Fjóla Jóhannesdóttir og fjölskylda. Við systurnar eigum margar skemmtilegar minningar um afa í Reynihvammi. Oftast var komið kvöld þegar við vorum loksins komin alla leiðina frá Hornafirði í Hafnarfjörðinn en það var samt alltaf hægt að treysta á það að amma væri tilbúin með kaffi og með því og afi sæti við stofuborð- ið og legði kapal. Beðið var með óþreyju eftir að kapallinn yrði búinn og afi myndi spila við okk- ur Olsen Olsen, og það var alltaf jafn fyndið þegar stór höndin skellti í borðið og afi sagði olsen. Annar uppáhaldsleikur var að byggja turn með litlum kreppt- um hnefum og bíða svo rosalega spennt eftir því að stóri hnefinn hans afa færi efst á turninn og allar litlu hendurnar hrundu í borðið, ótrúlegt hvað þetta gat verið fyndið. Maður gat líka alltaf átt von á einhverju gotteríi hjá afa eins og ópal eða suðusúkku- laði. Afi var mikill áhugamaður um veiði og stundum fórum við með í veiðiferðir í Kleifarvatn eða berjamó. Okkur systrum tókst yfirleitt betur til í berjamónum. Amma hafði alltaf útbúið gott nesti til þess að hafa með og kaffitíminn var stór hluti af hverri ferð því þá fengum við líka að heyra eitthvað um „gamla daga“. Afi var stór og hlýr og hafði þægilega nærveru, hann var ró- legur en líka lúmskt fyndinn og svolítið stríðinn. Minningarnar eru margar og góðar og við vor- um heppnar að eiga þig svona lengi. Hvíldu í friði, elsku afi. Bryndís, Auður og Vala. Hæ, afi. Góðar minningar á ég um þig, elsku afi. Frá blautu barnsbeini umgekkst ég þig mikið og bjó um tíma hjá þér og ömmu. Ég var svo heppinn að hafa þig óskiptan í mörg ár og ég fékk mikla athygli frá þér. Sem lítill snáði vaknaði ég stundum þegar þú varst að fara á sjó eldsnemma á morgn- ana og drakk með þér kaffi áður en þú fórst. Ég á margar minn- ingar um okkur niðri á bryggju í skúrnum og ég fékk alltaf að taka þátt í því sem þú varst að gera, þræða í nálar, setja á pípur þegar þú varst að fella net og svo fékk ég líka að selja með þér grá- sleppu og rauðmaga enda vinnu- launin góð fyrir snáða á þessum aldri, kók og prinspóló. Þegar ég varð eldri fékk ég að koma með þér nokkra róðra á Kóp og þú stríddir mér með krabbanum, þú sagðir oft þá sögu þegar þú hélst á mér heim eftir erfiðar sjóferðir. Margar minningar eru af ferðum okkar að Kleifarvatni og eftir að ég náði þeirri hæð að sjá yfir stýrið þá fékk ég oftast að keyra frá Vatnsskarði og út í höfða. Takk fyrir allar góðu minning- arnar, afi, ég mun alltaf sakna þín. Bjarni Viðar. Hann elskulegi afi minn er fall- inn frá, 87 ára að aldri. Efst í minningum mínum eru allar veiðiferðirnar sem við fórum saman í og eru til ófáar ljósmynd- ir af okkur fjölskyldunni að veiða saman í Kleifarvatni og Brúará í gegnum árin. Við löbbuðum gjarnan framhjá kríuvarpi til að komast að góðum veiðistað og eftir eina veiðiferðina sýndi afi mér nokkur göt á sixpensaranum sínum og sagði götin vera eftir kríurnar. Ég man eftir að hafa hugsað með mér að afi hefði farið ansi nálægt kríunum og fannst hann afar hugrakkur maður, en sjálf mætti ég í næstu veiðiferð með reiðhjólahjálm. Afi var hreinskilinn, sjálfstæð- ur og góður maður og þótti mér alltaf gott að fara í heimsókn til ömmu og afa á Reynihvamminn þar sem afi bjó hálfa ævi sína. Andrúmsloftið var alltaf afslapp- að og hafði afi góða og hlýja nær- veru. Í nokkur ár kom ég viku- lega á Reynihvamminn til að aðstoða við þrif eða hina ýmsu hluti og var þá oftast spjallað um daginn og veginn og fengið sér eitthvað með kaffinu eða í það minnsta allavega eitt kókglas. Elsku afi minn, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíldu í friði. Kveðja, Sólrún litla. Bjarni Bjarnason Mig langar til að kveðja kæra vinkonu mina og fyrrverandi kennara, Ásrúnu Kristmunds- dóttur frá Patreksfirði, með nokkrum orðum. Ég kynntist Ás- rúnu í Grindavík þegar ég var 12 ára, þá nýkomin frá Reykjavík. Hún var þá að hefja störf sem kennari sem svo varð hennar ævi- starf. Mér var mjög vel tekið af öllum og sérstaklega af Ásrúnu en hún hafði þá tekið að sér uppeldi tveggja systursona sinna en þeir Ásrún Kristmundsdóttir ✝ Guðmunda Ás-rún Þóra Krist- mundsdóttir fædd- ist að Húsum í Selárdal, Arn- arfirði, 12. sept- ember 1923. Hún lést á heimili sínu 16. júní 2012. Útför Ásrúnar fór fram frá Sel- tjarnarneskirkju 27. júní 2012. voru um fermingar- aldur. Við urðum góðar vinkonur og hún var mjög fús að leiðbeina mér við handavinnu og hef ég búið að því alla ævi. Líf okkar tvinn- aðist einnig síðar saman því faðir minn, Þórður Helga- son, leigði hjá Ás- rúnu og Höskuldi um tíma á Patreksfirði, en þeir unnu saman hjá Vegagerð ríkis- ins. Eftir það jókst samband mitt við þau. Ásrún var ráðagóð, mjög listræn og ákaflega trúuð kona. Um hver jól benti hún mér á ritn- ingargrein sem hún hvatti mig lesa á aðfangadagskvöld. Ég sendi fjölskyldu hennar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ég kveð Ásrúnu með sömu orðum og hún kvaddi mig í síðasta símtali okkar. Ég kveð þig, elsku vina mín. Esther E. Þórðardóttir. Elsku amma. Þú varst frábær kona sem ég hef litið upp til síðan ég man eftir mér. Við áttum margar frábærar stundir saman sem ég mun aldrei Guðmunda Ingibjörg Guðmundsdóttir ✝ GuðmundaIngibjörg Guð- mundsdóttir fædd- ist á Högnastöðum í Hrunamanna- hreppi 15. janúar 1939. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. júní 2012. Guðmunda Ingi- björg var jarð- sungin frá Þorláks- kirkju 27. júní 2012. gleyma. Þú kenndir mér svo mikið, sér- staklega muninn á réttu og röngu. Al- veg sama hvað það var, ég gat alltaf leitað til þín. Allar minningar um þig lifa áfram í hjarta mínu og það mun seint líða sá dagur að ég hugsi ekki til þín. Alveg sama hvað gerist þú verður alltaf hluti af mér. Ég get ekki lýst því með orðum hvað ég sakna þín mikið. En ég veit að þú ert á góðum stað og hefur það gott. Hvíldu í friði, elsku amma. Iðunn Berta. Sveinn M. Árnason var sam- kennari minn í íslenskudeild Menntaskólans við Sund frá árinu 1987 þegar ég steig mín fyrstu skref í kennslu. Áður hafði ég kynni af honum sem nemandi við skólann enda þótt hann hefði aldrei kennt mér. Á þeim árum var hann slík goðsögn meðal nemenda að stúlkurnar fengu stjörnur í augun er þær töluðu um hann og drengir þráðu að líkj- ast honum. Hann var ungur, fríð- ur og föngulegur, ljós yfirlitum, orðheppinn og frjálslegur til orðs og æðis. Skemmtilegur, ræðinn og vingjarnlegur og ekki spillti heldur fyrir að hann var einn yngsti kennari við skólann. Síðar þegar ég varð þess heiðurs að- njótandi að verða samstarfskona hans og hinna eðalmennanna sem þá voru kennarar í íslenskudeild- inni, Aðalsteins Davíðssonar, Brynjúlfs Sæmundssonar og Páls Bjarnasonar, kynntist ég öllum þessum sjarmerandi hlið- um hans aftur. Hann var dýrk- aður og dáður af nemendum sín- um. Hvernig fór hann að? Ég vildi svo gjarnan geta lært eitt- hvað af honum. Það var ekki al- veg einfalt því galdurinn lá í per- sónutöfrunum. Hinu óáþreifanlega en kannski líka svolítið í skemmtilegu frásagnar- gáfunni hans, glettninni og húm- ornum og því hvað hann var fjöl- fróður. Ekkert sem auðvelt er að stæla beinlínis. Sveinn var forkur til vinnu og vann allan sinn starfsferil við ís- lenskukennslu í Menntaskólan- um við Sund eða hátt á fjórða áratug og tók að auki að sér ýmis önnur störf á vegum skólans. Á öllum þessum tíma tókst Sveini einhvern veginn alltaf að sigla milli skers og báru, vera hæfilega íhaldssamur gagnvart ýmsum nýjungum bæði í tæknimálum og kennsluaðferðum og halda sínum stíl. Honum þótti stundum nóg um framúrstefnulega nálgun okkar ungu kvennanna í deild- inni, hélt bara sínu striki og rúll- aði upp kennslunni með engri fyrirhöfn að því er okkur virtist. Nemendum var hlýtt til Sveins, hann var ávallt tilbúinn að hlusta á þá og sýna þeim sann- girni og skilning. Vildi þeim öll- um vel. Hann var góður félagi og það var gott að leita til hans og gaman að spjalla við hann um dægurmálin. Hann hélt sig þó svolítið prívat og augljóst eftir því sem árunum í skólanum fjölg- aði að hann hafði lært að for- gangsraða og fjölskyldan naut þess. Hann var stoltur af börnum sínum og eiginkonu. Það leyndi sér ekki að þau áttu í honum hvert bein. Einnig bar hann mikla umhyggju fyrir móður sinni og tengdamóður. Góður drengur er nú allur. Hann sór af sér að vera bardaga- maður þegar ég reyndi af veikum mætti að stappa í hann stálinu eftir að ljóst var að banvænt mein hafði bankað á dyr. Nú væri ekk- ert annað í boði en að berjast. Það var líka alveg rétt hjá hon- um, hann var friðarins maður, dró aldrei upp vopnin í samskipt- um við neinn, bar frekar á þau klæði, en nú var ekkert slíkt í boði. Það vissi hann og það viss- um við því miður öll, alltof snemma, alltof ungur, öllum ást- kær. Blessuð sé minning Sveins M. Árnasonar. Halla Kjartansdóttir. Sveinn M. Árnason ✝ Sveinn MikaelÁrnason fædd- ist í Reykjavík 23. janúar 1952. Hann andaðist á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 24. júní 2012. Útför Sveins fór fram frá Fossvogs- kirkju 29. júní 2012. Elsku Svenni, við þökkum fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman. Þú varst okkur öllum kær og það var alltaf jafn gott að koma heim úr skólanum þar sem þú tókst á móti okkur með hlýju og gleði. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Vinkonur Örnu Grétu, Agnes, Lára og Una. Elsku Svenni. Nærvera þín var hlý og gleðin ávallt í fyrirrúmi. Með bros á vör hefur Arna sagt okkur margar skemmtilegar sögur af þér sem áfram verða rifjaðar upp um ókomna tíð. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Við verðum alltaf til staðar. Hennar vinkonur, Eva, Elín, Nanna, Katrín, Laufey og Sigríður. Þessi orð eru skrifuð til að minnast íslenskukennarans míns og vinar, Sveins M. Árnasonar. Ég kynntist Sveini á áttunda áratugnum þegar hann kenndi mér íslensku við Menntaskólann við Sund. Hann varð strax mjög vinsæll meðal nemenda sinna. Hann kenndi íslensku af smitandi áhuga og gleði. Sveinn leiddi okk- ur inn í undraveröld málvísinda og Íslendingasagna af slíkri ástríðu að við gátum ekki annað en hrifist með enda fór svo að ég fetaði í fótspor hans og lærði ís- lensku og málvísindi. Sveinn var líka vinur okkar og lét sér annt um okkur. Ég minnist þess að einu sinni stoppaði hann mig á ganginum og sagði: „Guðrún, ég frétti að þú værir hætt að mæta í latínu.“ Ég gat ekki neitað því. Þá sagðist hann hafa rætt við Maríu konu sína og hún byði mér nú aukatíma í latínu. Aukatímarnir hjá Maríu urðu svo til þess að stúdentsprófið í latínu gekk vel. Áhrif afburðakennara eins og Sveins M. Árnasonar verða seint ofmetin. Ég minnist hans með þakklæti og gleði. Ég votta Mar- íu og fjölskyldu hans innilega samúð mína. Guðrún Theodórsdóttir. Elsku amma. Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer. En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn, svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn. Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð. Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin Því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðinn. Og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli. Jórunn Sigríður Thorlacius ✝ Jórunn Sigríð-ur Thorlacius fæddist í Steintúni við Bakkafjörð 14. ágúst 1928. Hún lést á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 11. júní 2012. Útför Jórunnar fór fram frá Graf- arvogskirkju 28. júní 2012. Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli. Já, og andlitið þitt mál- að. Hve ég man það alltaf skýrt, augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt. Jú ég veit vel, að ókeyp- is er allt það sem er best, En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas) Blessuð sé minning þín, Ingi Lárus Ágústsson og Sigurbjörg Fríða Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.