Morgunblaðið - 02.07.2012, Síða 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Gítarpartí Einn starfsmanna Guitarparty.com kann ekkert á gítar en hinir þrír eru allir partífærir og vel það.
til ferska og góða söngbók sem auð-
velt væri að grípa til,“ segir Kjartan
en árið 2008 var vefurinn Gítargrip.is
settur upp til að leysa þetta algenga
vandamál.
Færa út kvíarnar
Starfsmenn fyrirtækisins eru
fjórir en auk þeirra Arnars Tuma,
Sævars og Kjartans er gítarleikarinn
Þorgils Björgvinsson. Sá er í aðal-
hlutverki í nýjum kennslumynd-
böndum sem vefurinn setti inn í síð-
ustu viku en myndböndin hafa fengið
góðar viðtökur nú þegar. „Kennslan
er afskaplega metnaðarfullt verkefni
hjá okkur,“ segir Kjartan og bætir
við að þó að nóg sé til af
efni í gítarkennslu á
Netinu sé lítið um
metnaðarfulla fram-
leiðslu.
„Fólk sem vill
læra á gítar fer á You-
Tube að leita sér að
kennsluefni og það er
alveg ofboðslega mikið
til en þetta eru aðallega
myndbönd sem eru
tekin á lélega myndavél
og illa klippt þannig að
það verður erfitt fyrir
nemandann að fylgjast
með,“ bendir Kjartan á.
„Við tökum hvert kennslu-
myndband upp frá þremur sjón-
arhornum í einu og sýnum alltaf öll
sjónarhornin,“ segir Kjartan en það
er Þorgils sem sér alfarið um gít-
arkennsluna á vefnum sem fer þann-
ig fram að notandinn horfir á mynd-
bönd og lærir að spila eitt lag í senn.
„Kennslan snýst aðallega um að læra
hljóma. Þeir sem eru að byrja að
læra á gítar þurfa að byrja á hljóm-
unum,“ útskýrir Þorgils.
„Myndböndin eru þannig að við
byrjum á að útskýra hljómana í lag-
inu og hvernig þeir eru spilaðir. Svo
er farið yfir hvern kafla í laginu og að
lokum púslar notandinn þessu saman
og æfir sig á laginu,“ segir Þorgils en
hann og Sævar eru að sögn Arnars
Tuma færustu gítarleikarar hópsins.
„Kjartan kann reyndar líka smá en
ég kann ekkert,“ segir Arnar Tumi
og hlær. „Ég á samt gítar,“ bætir
Arnar Tumi við og bendir á að
kannski geti hann lært á gítar nú
þegar kennslumyndböndin eru kom-
in inn á vefinn.
Súrmjólk í hádeginu
Til þess að nýta sér kennslu-
myndböndin þarf nemandinn að skrá
sig sem notanda á vefinn Guitarp-
arty.com og þá getur fjörið hafist.
„Það gefur augaleið að best er að
byrja á að læra lag sem er með fáum
gripum,“ segir Þorgils. „Draumur
um Nínu er til dæmis alveg úr sög-
unni fyrir byrjendur,“ segir Kjartan
hlæjandi. „Einfalt lag sem allir geta
byrjað á er til dæmis Súrmjólk í há-
deginu sem eru bara tveir hljómar,“
segir Þorgils sem hefur góða reynslu
af því að kenna byrjendum hið góð-
kunna lag.
„Þetta lag kunna allir, sama
hvort þeir viðurkenna það eða ekki,“
bendir hann réttilega á og þeir Sæv-
ar, Kjartan og Arnar Tumi glotta yfir
hrifningu hans á laginu. „Þetta er
ekki uppáhaldslagið mitt eða neitt
svoleiðis samt,“ tekur Þorgils bros-
andi fram.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Brúðubíllinn fer af stað með nýja
sýningu fyrir yngstu kynslóðina í júlí.
Verður fyrsta sýningin í Hallargarð-
inum miðvikudaginn 4. júlí kl. 14 og
síðan fimmtudaginn 5. júlí kl. 14 í Ár-
bæjarsafni. Sýningin heitir Blárefur
barnapía og ráða í henni ríkjum refir
og úlfar. Blárefur þessi er frekar lé-
leg barnapía og finnst starfið leið-
inlegt en sem betur fer hjálpar
Lilli honum. Í sýningunni segir úlf-
urinn sína útgáfu af sögunni af Grís-
unum þrem. Sú útgáfa er eins og
hann vill hafa hana en er mjög
frábrugðin þeirri sem við eigum að
venjast. Númi kemur líka í heimsókn
og svo syngur Refa- og úlfakórinn
nokkur lög með krökkunum í lokin.
Það er líf og fjör í þessari sýningu og
ýmislegt má læra af þeim úlfum og
refum sem eiga heima í Brúðubíln-
um.
Brúðubíllinn í júlí
Refir og úlfar Sýningin Blárefur barnapía er fjörug og skemmtileg.
Blárefur léleg barnapía
Á dögunum kom út hin metnaðarfulla
litapalletta Iceland: Colours + pat-
terns eftir hönnuðinn Jón Ásgeir
Hreinsson. Litapallettan saman-
stendur af ljósmyndum úr íslenskri
náttúru, litum úr myndunum og
dæmigerðum mynstrum sem finna
má í náttúru Íslands.
„Hugmyndin kviknaði þegar við
vorum að hanna Gestastofuna í Ás-
byrgi. Þá vorum við að vinna með liti
náttúrunnar, íslenska liti,“ útskýrir
Jón Ásgeir. „Við fórum að velta fyrir
okkur hverjir hinir íslensku litir væru.
Ég hugsaði með mér að það gæti ver-
ið skemmtilegt að safna saman ljós-
myndum, taka úr þeim litina, raða
þeim upp og sjá hvers konar litapall-
etta kæmi út,“ segir hann en Jón Ás-
geir tók sjálfur allar ljósmyndirnar í
pallettunni.
Hnyttileg litaheiti
„Sem hönnuður er maður
alltaf að leita uppi liti og
ég byrjaði að setja
þetta saman fyrir
okkur sem innan-
húsgagn í Studio-
bility,“ segir Jón
Ásgeir. „Þetta eru
annars vegar litir
og hins vegar
mynstur svo þegar
Litapalletta úr náttúru Íslands
Íslenskir litir og náttúrunnar
mynstur í litapallettu
einhver vill prjóna sér lopapeysu eða
mála mótorhjólið sitt getur hann
pikkað út íslenska liti til að hafa,“
bendir hann á. Við hvern lit er heiti
sem Jón Ásgeir smíðaði sjálfur og
verður að viðurkennast að mörg hver
eru verulega hnyttin og skemmtileg.
„Eitthvað verða litirnir að heita og ég
reyndi að hafa þetta á léttu nót-
unum.“
Litapallettan kemur út á ensku en
Jón Ásgeir útilokar ekki að í framtíð-
inni verði hugmyndin færð á fleiri
tungumál og jafnvel útfærð á annan
hátt. sigyn@mbl.is
Þegar kemur að eldamennskunni
sjálfri er mikilvægt að ofhlaða ekki
pönnuna ef þú ert að steikja kjöt.
Þannig brúnast kjötið betur og verður
ekki vatnsósa. Eftir að búið er að elda
eða grilla steik er líka mjög mikilvægt
að láta kjötið hvílast í nokkurn tíma
áður en það er skorið. Þannig lekur
ekki allur safinn úr kjötinu og fer til
spillis.
Morgunblaðið/Golli
Félagarnir hjá Guitarparty.com
munu frumsýna nýjung sína, far-
símaútgáfu síðunnar, á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum um versl-
unarmannahelgina.
Á farsímavefnum má meðal
annars finna svokallað party
Mode, söngbók í símann þar sem
hægt er að skrá sig inn í bókina
og fá textann við það
lag sem er í gangi
beint í símann.
Í farsímaútgáfunni
er einn stjórnandi, í
þessu tilfelli sá sem
stjórnar brekku-
söngnum, sem velur
hvaða lag er næst á
dagskrá og um leið
opnast textinn við
það lag í símum
þeirra sem hafa skráð
sig inn á söngbókina.
„Þetta er al-
gjörlega ný hugmynd
og stórt forskot á er-
lenda samkeppnisaðila okkar,“
segir Kjartan ánægður með par-
tíútgáfuna. „Núna geta allir
sungið með,“ bætir hann við.
Enginn þarf því að hafa áhyggjur
af að kunna ekki textann og
verða sér til skammar í brekku-
söngnum þetta árið.
Bylting í
brekkusöng
SÖNGBÓKIN Í SÍMANN
Frá Þjóðhátíð í Eyjum 2011.
einstakt
eitthvað alveg
Skipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is
Sýning Bjarna Þórs
HESTAR
23. júní til 5. júlí
Afmælisár
25
1987-2012