Morgunblaðið - 02.07.2012, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*
Það er óhætt að segja að úrslitin í A-flokki
gæðinga hafi verið spennandi og munaði litlu
á efstu hestum. Eftir töltið leiddi Fláki frá
Blesastöðum 1A og Fróði frá Staðartungu
var annar. Hann veitti hins vegar Fláka
harða keppni og svo fór að lokum að hann
sigraði. Segja má að hástökkvarinn í A-flokki
hafi þó verið eina hryssan í úrslitunum, Lotta
frá Hellu, sem kom upp úr B-úrslitum í tólfta
sæti og endaði í því fjórða í A-úrslitunum.
Úrslitin í A-flokki gæðinga á LM2012:
1. Fróði frá Staðartungu.
Knapi Sigurður Sigurðarson - 8,94.
2. Fláki frá Blesastöðum 1A.
Knapi Þórður Þorgeirsson - 8,88.
3. Stakkur frá Halldórsstöðum.
Knapi Sigurbjörn Bárðarson - 8,86.
4. Lotta frá Hellu.
Knapi Hans Þór Hilmarsson - 8,78.
5. Grunnur frá Grund II.
Knapi Sigursteinn Sumarliðason - 8,73.
6. Hringur frá Fossi.
Knapi Sigurður Vignir Matthíasson - 8,71.
7. Hnokki frá Þúfu.
Knapi Mette Mannseth - 8,57.
8. Sálmur frá Halakoti.
Knapi Atli Guðmundsson - 8,47.
A-flokkur Fróði frá Staðartungu og Sigurður
Sigurðarson á fljúgandi skeiði í úrslitunum.
Hart barist í úr-
slitum A-flokks
A-úrslitin í B-flokki gæðinga voru sannkölluð
veisla. Að lokum munaði einungis 0,03 á efstu
tveimur hestum en það var Glóðafeykir frá
Halakoti sem vann B-flokkinn ásamt knapa
sínum Einari Öder Magnússyni. Hart var bar-
ist og var Hrímnir frá Ósi efstur eftir hægt
tölt og brokk. Glóðafeykir frá Halakoti var
þó ekki langt undan og hafði sigur að lokum
eftir yfirferðartöltið. Eldjárn frá Tjaldhólum
kom inn úr B-úrslitum og endaði fjórði.
Úrslitin í B-flokki gæðinga á LM 2012:
1. Glóðafeykir frá Halakoti.
Knapi Einar Öder Magnússon - 9,0.
2. Hrímnir frá Ósi.
Knapi Guðmundur Björgvinsson - 8,97.
3. Loki frá Selfossi.
Knapi Sigurður Sigurðarson - 8,95
4. Eldjárn frá Tjaldhólum.
Halldór Guðjónsson - 8,77.
5. Sveigur frá Varmadal.
Knapi Hulda Gústafsdóttir - 8,72.
6. Freyðir frá Leysingjastöðum.
Knapi Ísólfur Líndal Þórisson - 8,70.
7. Álfur frá Selfossi.
Knapi Christina Lund - 8,67.
8. Stefnir frá Þjóðólfshaga 1.
Knapi Viðar Ingólfsson - 8,48.
B-flokkur Glóðafeykir frá Halakoti og Einar
Öder Magnússon á tölti í úrslitunum í gær.
Munaði mjög
litlu í B-flokki
Það ríkti mikil stemning í brekkunni þegar
úrslitin í tölti fóru fram á laugardagskvöld.
Óhætt er að segja að keppnin hafi verið hörð
og menn hafi skipst á að verma toppinn. Sig-
urbjörn Bárðarson var efstur eftir hæga tölt-
ið, en eftir tölt með hraðabreytingum tók
Hinrik Bragason forystuna. Það fór þó svo að
lokum að Sigursteinn Sumarliðason á Ölfu
frá Blesastöðum 1A bar sigur úr býtum og
með því vörðu þau titilinn frá því á LM 2011
og hlutu 8,56 í aðaleinkunn. Þegar kom að yf-
irferðartölti lögðu keppendur allt í sölurnar
og hlaut Sara Ástþórsdóttir á Dívu frá Álfhól-
um hæstu einkunn fyrir þann þátt eða 9,33.
Úrslitin í tölti á LM 2012:
1. Sigursteinn Sumarliðason.
Alfa frá Blesastöðum 1A - 8,56.
2. Hinrik Bragason.
Smyrill frá Hrísum - 8,44.
3. Jakob Svavar Sigurðsson
Árborg frá Miðey - 8,28.
4. Sigurbjörn Bárðason.
Jarl frá Mið-Fossum - 8,22.
5. Sara Ástþórsdóttir.
Díva frá Álfhólum- 8,22.
6. Artemisia Bertus.
Óskar frá Blesastöðum 1A - 8,11.
Tölt Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá
Blesastöðum 1A sigruðu í tölti á LM 2012
Varði tölttitilinn
í hörkubaráttu
Keppni í 100 metra fljúgandi skeiði var æsi-
spennandi á laugardagskvöldið. Sigurbjörn
Bárðarson á Andra frá Lynghaga náði tím-
anum 7,57 og flestir töldu að Sigurbjörn
myndi sigra. Davíð Jónsson á Irpu frá Borg-
arnesi kom þó öllum að óvörum og jafnaði
tíma Sigurbjörns. Sökum þess að Davíð og
Irpa náðu tveimur gildum tímum en ekki Sig-
urbjörn fór Davíð því með sigur af hólmi, en
eins og sjá má voru bestu tímar mjög jafnir.
Úrslitin í 100 metra fljúgandi skeiði:
1. Davíð Jónsson.
Irpu frá Borgarnesi - 7,57.
2. Sigurbjörn Bárðarson.
Andri frá Lynghaga - 7,57.
3. Eyjólfur Þorsteinsson.
Spyrna frá Vindási - 7,60.
4. Teitur Árnason.
Korði frá Kanastöðum - 7,62.
5. Bjarni Bjarnason.
Hera frá Þóroddsstöðum - 7,68.
6. Þórður Þorgeirsson.
Ábóti frá Síðu - 7,70.
7. Sigríður Pjetursdóttir.
Þytur frá Kálfhóli 2 - 7,72.
8. Artemisia Bertus.
Dynfari frá Steinnesi - 7,75.
Fljúgandi Davíð Jónsson á Irpu frá Borg-
arnesi sigraði í 100 metra fljúgandi skeiði.
Davíð sigraði í
100 metra skeiði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Ingvar P. Guðbjörnsson
Ljósmyndari: Styrmir Kári
Í gær lauk glæsilegu Landsmóti
hestamanna sem haldið var í Víðidal í
Reykjavík. Mótið kláraðist með A-úr-
slitum í gæðingakeppninni í úrhell-
isrigningu. Fram að því hafði veðrið
verið gott og bæði keppendur og
landsmótsgestir notið veðurblíðunn-
ar.
Það voru um 9.500 manns sem
sóttu landsmótið og tóku hátt í 600
knapar þátt í mótinu og um 1.000
hestar. Keppendurnir voru á öllum
aldri og var sá yngsti aðeins átta ára
gamall og sá elsti 70 ára.
Óhætt er að segja að vel hafi tekist
til og var hestakosturinn á mótinu
framúrskarandi góður. Mótið gekk
þá einnig að mestu stóráfallalaust
fyrir sig og skemmtu gestir og knap-
ar sér vel.
Þá voru hestamenn virkilega
ánægðir með mótssvæðið og var haft
á orði að það yrði erfitt að gera önnur
svæði jafn góð. Í Víðidalnum var allt
við höndina, næg hesthúsapláss og
aðstaðan öll til fyrirmyndar bæði fyr-
ir hesta og menn. Var það mál manna
að Víðidalur í Reykjavík væri upp-
lagður staður til að halda oftar lands-
mót á og að þar væri nú ein besta að-
staðan til að halda stórmót líkt og
þetta.
Keppnin á mótinu var spennandi
og var gaman að fylgjast með gæð-
ingum og kynbótahrossum keppa og
koma fyrir dóm. Ræktunarbússýn-
ingarnar vöktu mikla lukku meðal
áhorfenda enda voru það góðar sýn-
ingar með frábærum gæðingum. Þá
voru landsmótsgestir ánægðir með
A-úrslit í tölti þar sem bestu töltarar
landsins kepptu um Töltbikarinn en
úrslitin voru á laugardagskvöldið og
myndaðist góð stemning í brekkunni.
Landsmótsgestir fylgdust þó ekki
einungis með glæsilegum sýningum á
hestum heldur var einnig þétt
skemmtidagskrá frá fimmtudags-
kvöldi. Það voru Reiðmenn vindanna,
Helgi Björns, Páll Óskar og fleiri sem
skemmtu þúsundum gesta í brekk-
unni og í reiðhöllinni.
Mbl.is fylgdist náið með Lands-
móti hestamanna alla síðustu viku og
á hestavefnum er hægt að finna viðtöl
við alla landsmótssigurvegara móts-
ins ásamt ítarlegri umfjöllun um ein-
staka þætti mótsins.
Landsmóti lokið
Landsmót 2012 Hátíðarbragur ríkti á mótsstað. Brekkan var þéttsetin og
myndaðist oft góð stemning þegar gæðingarnir voru teknir til kostanna.
Landsmót hestamanna í Víðidal 201212