Morgunblaðið - 02.07.2012, Page 23
74, fyrsti formaður Náttúruvernd-
arsamtaka Suðurlands 1973-77, sat í
stjórn Landverndar 1977-83, var í
samstarfsnefnd Náttúruverndar-
ráðs og iðnaðarráðuneytisins um
umhverfismál orkumannvirkja 1972-
76, var formaður náttúruverndar-
nefndar Keflavíkurbæjar 1970-74 og
fulltrúi KHÍ í umhverfisfræðsluráði,
var formaður Kennarafélags KHÍ
1986-90 og Bæjarmálafélags Sel-
tjarnarness 1990-99, varamaður í
bæjarstjórn Keflavíkur 1970 og bæj-
arstjórnar Seltjarnarness 2002-
2010. Hann á sæti í skipulags- og
mannvirkjanefnd Seltjarnarness.
Stefán hefur samið kennsluefni í
náttúrufræði, birt greinar og
skýrslur um náttúrufræðimenntun,
umhverfismennt, menntun til sjálf-
bærni og um umhverfis- og sveitar-
stjórnarmál.
Meiri tími með barnabörnunum
Nú styttist í opinberu starfslokin,
Stefán. Verða það ekki viðbrigði?
„Jú, en ég hef fengið tækifæri til
að líta yfir farinn veg og skoða af-
köstin, fyrir tilstilli samstarfsmanna,
sem efndu til málþinga um áhuga-
málin í menntun.
Ég vil gjarnan vera áfram í
tengslum við fólk sem vinnur að
menntun og umhverfismálum og
nærumhverfið á Seltjarnarnesi og
reyndar Reykjanesinu öllu geymir
ótal tækifæri til að lesa í náttúruna
og söguna. Auk þess á ég líklega eft-
ir að vinna áfram að félagsmálum og
reyna að hafa farsæl áhrif á ákvarð-
anir um hið náttúrulega og menning-
arlega umhverfi sem mótar líf okkar.
Svo hlakka ég til skemmtilegra
samræðna við barnabörnin sem mik-
ið þurfa að tjá sig og skoða hlutina.“
Fjölskylda
Stefán kvæntist 30.12. 1977 Helgu
Hrönn Þórhallsdóttur, f. í Grindavík
17.5 1946, húðsjúkdómalækni. For-
eldrar hennar: Þórhallur Einarsson,
f. 23.10. 1911, d. 10.04. 1995, bifreið-
arstjóri, og k.h., Ásrún Guðmunda
Magnúsdóttir, f. 16.12. 1919, d.
26.10. 1969, húsfreyja.
Börn Stefáns og Helgu Hrannar:
Þórhallur, f. 12.7. 1977, píanóeinleik-
ari og lögfræðingur í Reykjavík en
sambýliskona hans er Védís Hervör
Árnadóttir, f. 1982, söngkona og
lagahöfundur, og eru synir þeirra
Árni Stefán og Jóhann Vikar; Sonja,
f. 2.6. 1981, hjúkrunarfræðingur og
forstöðumaður World Class á Sel-
tjarnarnesi, í sambúð með Kasper Ø.
Hansen, f. í Danmörku 1980, þrí-
víddarhönnuði hjá CCP, og eru synir
þeirra Gabríel og Oliver.
Bræður Stefáns: Hörður, f. 24.4.
1933, kennari og fyrrv. námsstjóri í
menntamálaráðuneytinu og ritstjóri
hjá Vinnueftirliti ríkisins Reykjavík;
Árni, f. 22.8. 1935, fyrrv. ritstjóri og
háskólakennari í Reykjavík; Jóhann
f. 16.10.1946, verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns: Jóhann S.
Bergmann, f. 18.11. 1906, d. 4.2.
1996, bifreiðarstjóri, og k.h., Hall-
dóra Árnadóttir, f. 13.10. 1914, d.
13.3 2006, húsmóðir. Þau voru bæði
fædd í Keflavík.
Afmælisdagurinn verður fyrst og
fremst með fjölskyldunni á Nesinu.
Svo kann sitthvað að bætast við síð-
ar í sumar af þessu góða tilefni.
Úr frændgarði Stefáns Bergmann
Pálína Pálsdóttir
húsfr. í Merkinesi
Halldór Sigurðsson
smiður í Merkinesi í Höfnum
Þorbjörg Vigfúsdóttir
húsfr. á Bolafæti
Magnús Árnason
b. á Bolafæti í Ytri-Njarðvík
Jóhanna Sigurðardóttir
húsfr. í Fuglavík
Bergsteinn Jónsson
b. á Þinghóli í Keflavík
Guðrún Gunnarsdóttir
húsfr. í Keflavík
Stefán
Bergmann
Jóhann S Bergmann
bifreiðastj. í Keflav.
Halldóra Árnadóttir
húsfr. í Keflavík
Árni Vigfús Magnússon
bátasm. í Veghúsum í Ytri-Njarðvík
Bjarnhildur Helga Halldórsdóttir
húsfr. í Veghúsum
Guðlaug Bergmann
húsfr. í Keflavík
Stefán Bergmann
ljósmyndari í Keflavík
Magnús Bergmann
hreppstjóri í Fuglavík
Guðrún Bergmann
húsfr. í Keflavík
Rúnar Júlíusson
hljómlistarm.
Jónína Bergmann
húsfr. í Keflavík
Daníel Bergmann
bakaram. í Rvík
Guðlaugur Bergmann
í Karnabæ
Haldið undir skírn Stefán með
yngsta barnabarnið, Jóhann Vikar.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Símon Dalaskáld fæddist 2. júlí 1844
á Höskuldsstöðum í Blönduhlíð í
Skagafirði. Foreldrar hans voru
Bjarni Magnússon og kona hans,
Elísabet Jónasdóttir.
Símon ólst upp í föðurgarði fram á
unglingsár en réðst þá smalamaður
að Ábæ í Austurdal og átti heimili
þar og í Goðdölum í Vesturdal í
nokkur ár. Hann tók aldrei jörð til
ábúðar en var í húsmennsku á
nokkrum stöðum í innsveitum
Skagafjarðar, ferðaðist þó jafnframt
um landið og seldi rit sín.
Af dvöl hans í Skagafjarðardölum
er dregið kenningarnafnið Dala-
skáld enda var hann hraðkvæður og
skemmti gjarnan með vísnagerð þar
sem hann kom.
Eftir hann liggja fjölmörg rit og
eru rímur fyrirferðarmestar: Smá-
munir, ljóðasafn, 1872-73, Freyja,
1874, Bragi, 1876, Starkaður Símon
Dalaskáld, 1877, Sneglu-Halli, 1883,
Kormákur, 1886, Stúfur, 1892, Sig-
hvatur, 1905, Hallfreður,1909, Rím-
ur af Kjartani Ólafssyni, 1871 og
1890, af Búa Andriðarsyni, 1872, af
Gunnlaugi Ormstungu og Helgu
fögru 1878 og 1906, af Herði Hólm-
verjakappa, 1879, af Geirarði og El-
inborgu, 1884, af Ármanni og Helgu,
1891, af Hávarði Ísfirðingi 1891, af
Hrafni Hrútfirðingi, 1911 og Ingólfi
Arnarsyni, 1912. Hann safnaði efni
til Bólu-Hjálmarssögu 1911 sem
Brynjúlfur frá Minna-Núpi gaf út.
Eftir hann er og Saga (Mera)-Eiríks
Magnússonar, 1912.
Símon talaði jafnan í hendingum,
orti hratt og mikið. Fáir stóðu hon-
um að sporði í fjölda vísna. Þótt Sím-
on væri farinn að gefa út kver með
rímum og öðrum kveðskap fyrir þrí-
tugt lærði hann ekki að skrifa fyrr
en á fimmtugsaldri og varð aldrei vel
skrifandi.
Símon kvæntist Margréti Sigurð-
ardóttur, þau eignuðust átta börn og
öll dóu ung utan eitt sem lifði fram á
fullorðinsár. Símon og Margrét
skildu og upp úr því var hann mikið
á flakki og kallaður förumaður.
Símon lést 9.3. 1916 í Bjarna-
staðahlíð í Vesturdal.
Merkir Íslendingar
Símon
Dalaskáld
85 ára
Halldór J. Einarsson
Kristján Guðmundsson
80 ára
Arndís Erlingsdóttir
Stefanía R. Stefánsdóttir
Þuríður R. H. Halldórs
75 ára
Haraldur Sumarliðason
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Valborg Sigurðardóttir
70 ára
Aurora Cody
Axel Rafn Vatnsdal
Birgir Hólm Þórhallsson
Dagný Heiða Vilhjálms-
dóttir
Hafþór Jóhannsson
Hlöðver Hallgrímsson
Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir
Stefán Bergmann
60 ára
Auður Harðardóttir
Einar Skúli Hjartarson
Hjördís Heiðrún
Hjartardóttir
Karl Óli Lárusson
Lena Remeskeviciene
Róslaug Gunnlaugsdóttir
Sveinbjörn Þórarinsson
Valgerður Þ. Jónsdóttir
Þorsteinn Jóhannsson
50 ára
Birgir S. Bjarnason
Jóhanna S. Ásgeirsdóttir
Linda Hannesd. Jóhanns-
son
Rúna Hauksdóttir
Hvannberg
Soffía Guðrún Ómarsdóttir
40 ára
Jaroslaw Dabrowski
Kristján Ingi Þórðarson
Narmada J. Jayasinghe H.
Gedara
Olga Björt Þórðardóttir
Sverrir Guðfinnsson
Viktoriya Serdyuk
Xiaoli Wang
Þorvaldur Hermannsson
30 ára
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir
Danka Podovac
Eva Ósk Sv
Engelhartsdóttir
Freyr Þórðarson
Guðmundur Ingi
Guðmundsson
Guðný Fanney Friðriks-
dóttir
Gunnar Friðrik Friðriksson
Helga Hansdóttir
Hjördís Erna Sigurð-
ardóttir
Hólmar Hákon Óðinsson
Ingvar Erlingsson
Íris Hlín Vöggsdóttir
Jóhannes Hrannar
Guðmundsson
Katrín Valdís Hjartardóttir
Monika Maria Matwiejczyk
Ragnhildur Einarsdóttir
Steinþór Þorsteinsson
Svala Hilmarsdóttir
Magnús
Sævar Örn Sigurjónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Steinþór er frá
Ólafsfirði og býr í Reykja-
vík. Steinþór starfar sem
lögfræðingur hjá Toll-
stjóra. Hann lauk námi við
Háskólann á Akureyri,
2010.
Maki Eyrún Björk Péturs-
dóttir, f. 1984, iðjuþjálfi.
Foreldrar Þorsteinn
Björnsson, sviðsstjóri um-
hverfis- og tæknisviðs
Dalvíkurbyggðar, f. 1952
og Ásdís Arnardóttir, f.
1951, leikskólakennari.
Steinþór
Þorsteinsson
30 ára Eva er Mosfell-
ingur, vinnur á sambýlinu
Hulduhlíð. Deginum ver
hún í Kaupmannahöfn á
Madonnu tónleikum.
Maki Grétar Hauksson, f.
1981, kerfisstjóri hjá Betw-
are.
Börn Helga Katrín, f. 2005
og Rúnar Óli, f. 2008.
Foreldrar Engilhart
Björnsson, bifvélavirki, f.
1947 og Helga Haralds-
dóttir, stuðningsfulltrúi, f.
1951.
Eva Ósk
Svendsen
40 ára Sverrir býr í
Reykjavík og starfar sem
lögreglumaður á bifhjóli.
Maki Kristín Auður Harð-
ardóttir, f. 1971, leikskóla-
kennari.
Systikini Ólöf, f. 1955,
Guðrún B., f. 1956, Magn-
ús, f. 1957, Bárður, f.
1965, Rut, f. 1971, Rakel,
f. 1976.
Foreldrar Guðfinnur
Magnússon, f. 1929, d.
1983 og Jóna Bárð-
ardóttir, f. 1939, d. 2004.
Sverrir
Guðfinnsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður