Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
ég síðan við bók sem er fyrsta bókin
í seríu sem heitir Endir. Hún átti að
heita Heimsendir en þá kom sam-
nefndur sjónvarpsþáttur til sög-
unnar þannig að nafnið var stytt.
Þetta verður sería og ég segi mis-
munandi sögur í hverri bók um það
hvernig heimurinn endar. Þannig að
það er mismunandi heimsendir í
hverri bók. Ég mun skrifa og teikna
fyrstu bókina sem heitir Opinberun
og er byggð á Opinberunarbók Bibl-
íunnar. Í hinum bókunum skrifa ég
textann en þar verða mismunandi
teiknarar sem ég vinn með. Ég er
ekki hættur að teikna en mér finnst
gaman að vinna með öðrum teikn-
urum og í langflestum hefðbundnum
myndasögum er það reyndar þannig
að það er höfundur og einn teiknari.“
Lastu Opinberunarbók Biblíunn-
ar í tengslum við þína bók?
„Já, ég hef lesið hana mjög oft. Ég
hef líka haft uppi á mörgum ritum
um Opinberunarbókina en þar er
verið að skýra myndmál og tákn sem
er ekki það sem ég er leita að því ég
túlka þá bók bókstaflega. Þannig að
fyrir mér eru sporðdrekaskepn-
urnar sem pynta mannkynið í fimm-
tíu daga og fimmtíu nætur ekki
myndlíking yfir sjúkdóma heldur
einfaldlega sporðdrekaskepnur sem
koma og pynta mannkynið. Að mínu
mati er Opinberunarbókin besti
hluti Biblíunnar og ég er nokkuð viss
um að Jóhannes hafi skrifað þá kafla
undir áhrifum sveppa, því allt er
þetta skrýtið og endar í fáránlegri
vitleysu. Þetta er skrýtnasti heims-
endir sem til er og sá allra hrottaleg-
asti. Mannkynið á ekki möguleika.“
því
Morgunblaðið/Eggert
Myndlistarsýning Hugleikur
Dagsson festir upp myndir í
nýju galleríi Bókabúðar Máls
og menningar. Til hliðar má
sjá þrjár teikningar úr nýju
bókinni, Enn fleiri dægurlög.
Fjórðu tónleikarnir í tónleikaröð-
inni Þriðjudagskvöld í Þingvalla-
kirkju verða haldnir annað kvöld
kl. 20. Á þeim leikur Tríó Vei, skip-
að Ingibjörgu Guðjónsdóttur sópr-
an, Valgerði Andrésdóttur sem
leikur á harmóníum og Einari Jó-
hannessyni klarínettuleikara. Tríó-
ið mun flytja fjölbreytta efnisskrá
af trúar- og veraldlegum toga, eins
og því er lýst í tilkynningu.
Tríó Vei leikur fyrst klassísk
verk Vínarmeistaranna Schuberts
og Mozarts og mun svo ávarpa heil-
aga Guðsmóður, Maríu, í kirkjunni
með verkum eftir Cherubini og
Atla Heimi Sveinsson. Þá verða
fluttar tónperlur Jóns Ágeirssonar,
Tryggva Baldvinssonar og Atla
Heimis við ljóð þjóðskáldanna.
Stjórnandi hátíðarinnar, Einar Jó-
hannesson, lofaði við upphaf tón-
leikaraðarinnar að fossbúinn í Öx-
arárfossi yrði ákallaður og segist
ætla að efna það með flutningi
tríósins á sænska laginu „Vor-
vindar glaðir“ en í því ágæta lagi
kætir fossbúinn og gleður og lofar
frelsi í fjallasal.
Tónleikaröðin er haldin í sjötta
sinn þetta árið og hefur Einar stýrt
henni frá upphafi.
Ljósmynd/Nökkvi Elíasson
Perlur Tríó Vei mun m.a. flytja ýmsar tónperlur í Þingvallakirkju.
Tríó Vei leikur í Þing-
vallakirkju á morgun
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Það eru alltaf
þjálfarar þér
til aðstoðar
… Heilsurækt fyrir konur
Vertu m
eð í
sumargl
eðinni
Sumarko
rtin á
11.900
kr.
Gilda til
31. ágús
t
Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði.
Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því
ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca.
3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma
hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari
núna. Curves er frábær staður með frábæru
starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að
æfa þegar það passar mér best.
Paula HolmPaula Holm, 40 ára
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Sumarið er tíminn!