Morgunblaðið - 02.07.2012, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Nýbökuð móðir viðurkennir ósigur
2. „Tilraunin mistókst - skiljanlega“
3. Katie var komin með leyniíbúð
4. Ólafur hlaut 52,78% atkvæða
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljósmyndir Júlíusar Sigurjóns-
sonar, ljósmyndara Morgunblaðsins,
af Tom Cruise og Katie Holmes á
gangi í Þingholtunum 16. júní sl., hafa
verið keyptar af vefnum Splash en
myndirnar eru þær síðustu sem tekn-
ar voru af þeim áður en fréttir bárust
af skilnaði þeirra, að því er Morgun-
blaðið kemst næst. Tvær ljósmynd-
anna voru birtar á hinum vinsæla
slúðurvef TMZ 29. júní sl., merktar
splashnewsonline.com.
Morgunblaðið/Júlíus
Ljósmyndir Júlíusar
keyptar af Splash
Hljómsveitin
Kex Collective
leikur á KEX Hos-
tel á morgun.
Sveitina skipa
trompetleikarinn
Ari Bragi Kárason,
píanóleikarinn
Kjartan Valde-
marsson, bassa-
leikarinn Róbert Þórhallsson og
trommuleikarinn Einar Scheving.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Kex Collective á jazz-
tónleikaröð KEX
Endurhljóðblöndun Brynjólfs Gauta
á lagi Nýdanskrar, Alelda, bar sigur úr
býtum í keppni sem haldin var í til-
efni af 25 ára afmæli
hljómsveitarinnar. Mun
útgáfan rata inn á
nýja afmælissafn-
plötu
sveit-
arinnar
sem kemur út í
haust.
Duke Nukem remix á
Alelda hlutskarpast
Á þriðjudag Austlæg átt, 3-8 m/s. Skúrir um landið vestan- og
norðvestanvert, annars yfirleitt skýjað með köflum en þurrt. Hiti 9
til 16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s.
Léttskýjað á N- og A-landi, en annars skýjað að mestu og skúrir,
einkum SV-lands. Hiti 6 til 16 stig, svalast við austurströndina.
VEÐUR
FH-ingar og KR-ingar halda
sínu striki í úrvalsdeild karla
í knattspyrnu, Pepsi-
deildinni. Bæði lið unnu
stóra sigra um helgina. FH-
ingar tóku Skagamenn í
kennslustund á Akranesvelli,
7:2, þar sem Atli Guðnason
skoraði þrennu. Leikmenn
kjöldrógu síðan baráttu-
litla Grindvíkinga í Frosta-
skjóli í gær, 4:1. Grindavík er
áfram neðst í deildinni og
án sigurs. »2
FH og KR áfram
á undan öðrum
Spánverjar eru Evrópumeistarar í
knattspyrnu eftir 4:0 sigur á Ítölum í
úrslitaleik og urðu þar með fyrstir til
að sigra á þremur stórmótum í röð.
Spænska liðið fór á kostum og skor-
aði tvö mörk í hvorum hálfleik í úr-
slitaleiknum í Kænu-
garði í gær. Ekki
bætti úr skák fyrir
Ítali að þeir urðu að
spila einum manni
færri síðasta
hálftímann. En
hafi einhver
efast um getu
Spánverja
eftir undan-
úrslitaleik-
inn við
Portúgal
þá var
þeim efa
eytt í
gær-
kvöldi.
»4
Spánverjar eru öðrum
fremri í Evrópu
Þjóðverjar unnu flest gullverðlaun á
Evrópumeistaramótinu í frjáls-
íþróttum sem lauk í Helsinki síðdegis
í gær. Sex gullverðlaun komu í þeirra
hlut, auk sex silfurverðlauna og
þrennra bronsverðlauna. Rússar
unnu jafnmarga verðlaunapeninga en
fimm þeirra voru úr gulli, fjórir úr
silfri og sex úr bronsi. Frakkar komu
næstir með 13 verðlaunapeninga. »8
Þjóðverjar sigursælir
á EM í Helsinki
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Ég var með 24 hesta á mótinu og
það fór nánast allur sólarhringurinn
í þetta fyrir mót. Í hvern hest fer um
klukkutími á dag,“ segir Guðmundur
Friðrik Björgvinsson knapi. Hann
fékk í sinn hlut Gregesen-styttuna
sem veitt er þeim knapa sem þykir
sýna mesta prúðmennsku á Lands-
móti hestamanna sem lauk í gær.
Nennti ekki að vera fúll
Guðmundur varð í öðru sæti í
B-flokki gæðinga og var hann ein-
ungis 0,03 í einkunn frá sigri. „Ég
var fúll næstu fimm mínúturnar eftir
niðurstöðuna en svo nennti ég því
ekki lengur. Eftir stendur að heilt
yfir er ég afskaplega ánægður. Ég
reið á sjö vetra hesti og það þykir
óskaplega gott að hafa náð þessum
árangri á svo ungum hesti. Hest-
urinn sem vann er til dæmis 10-11
vetra,“ segir Guðmundur sem reið á
hestinum Himni frá Ósi í keppninni.
Að sögn Guðmundar er reið-
mennska toppurinn á tilverunni.
,,Maður er hálftómur núna. Ég veit
ekkert hvað ég á að gera af mér eftir
landsmótið. Til að byrja með taka
við nokkrir rólegir dagar þar sem ég
ætla að kynnast nýfæddum syni
mínum. Svo heldur maður áfram að
æfa fyrir Íslandsmótið,“ segir Guð-
mundur.
Draumur allra hestamanna á
Íslandi er að standa uppi sem sig-
urvegari á landsmóti og segir Guð-
mundur mikla samkeppni ríkja á
hestamannamótum. ,,Það er mjög
mikil vinna sem liggur á bak við
þetta. Öll smáatriði þurfa að vera í
lagi. Ekki síst andlegi og líkamlegi
þátturinn. Við erum íþróttamenn og
ef ég ætti að gefa ungum tamninga-
mönnum einhver ráð þá legg ég til
að þeir hugsi vel um líkama sinn,“
segir Guðmundur.
Að sögn Guðmundar er kjör-
aldur hestamanna 30-45 ár en það sé
ekki einhlítt. ,,Sigurbjörn Bárðarson
gefur slíkum orðum langt nef, enda
er hann orðinn sextugur,“ segir Guð-
mundur.
MLandsmót hestamanna »12-13
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Blautur og kátur Guðmundur tekur við Gregesen-styttunni fyrir prúð-
mannlega framkomu á landsmótinu. Hann situr hryssuna Furu frá Hellu.
Guðmundur Friðrik Björgvinsson fékk Gregesen-styttuna fyrir prúðmannlega framkomu á landsmóti
Reiðmennska
er toppurinn á
tilverunni
Styttan var upphaflega veitt til
minningar um Ragnar Gregesen, en
hann var fyrirmynd hestamanna
hvað varðar umhirðu hrossa og
snyrtilegan klæðaburð.
Styttan veitist þeim knapa sem
skarar fram úr í A- eða B-flokki
gæðinga og sýnir prúðmannlega
reiðmennsku á afburðavel hirtum
hesti. Það eru dómarar ásamt
mótsstjóra sem velja knapann.
Guðmundur var að vonum ánægður
með heiðurinn. ,,Þetta er mikill
heiður og risastórt klapp á bakið
sem hjálpar til við að halda áfram á
þessari braut,“ segir Guðmundur.
Hann leggur mikið upp úr prúð-
mennsku. „Þú verður að sýna hest-
unum virðingu og gera þá eins fína
og hægt er,“ segir Guðmundur.
„Risastórt klapp á bakið“
GREGESEN-STYTTAN VEITT FYRIR UMHIRÐU OG KLÆÐABURÐ