Morgunblaðið - 06.07.2012, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 6. J Ú L Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 156. tölublað 100. árgangur
SKRÍTNAR
STELPUR Á
KÍNAMÚRNUM
FJALLAHJÓL,
HESTALEIGUR OG
GÖNGUSKÓR
FINNST LÍFSSTÍLL
KATTA FYNDINN
OG ÁHUGAVERÐUR
AUKABLAÐ UM ÚTIVIST TEIKNAR KATTAMYNDIR 10KITTY OG CONVERSE 36
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það felst í þessu framsal til erlends
valds gagnvart einstaklingum og
fyrirtækjum hér á landi sem hefur
verið talið að sé mjög erfitt að sam-
ræma orðum stjórnarskrárinnar,“
segir Stefán Már Stefánsson, prófess-
or í lögfræði við Háskóla Íslands, um
innleiðingu reglugerðar um losunar-
kerfi Evrópusambandsins.
Stefán Már vann ásamt Björgu
Thorarensen, lagaprófessor við HÍ,
álitsgerð vegna reglugerðarinnar
sem skilað var 12. júní sl. eða viku áð-
ur en ný lög um loftslagsmál voru
samþykkt. Stefán Már telur að bregð-
ast þurfi við ýmsum annmörkum.
Gera fyrirvara
„Ef fella á kerfið undir stjórnar-
skrána eins og hún er í dag þá er
frumforsenda að það sé fært yfir í
tveggja stoða kerfið, kerfið sem EES-
samningurinn byggist á.
Jafnvel þótt það heyri undir
tveggja stoða kerfið gerum við fyr-
irvara. Skoða verður að þarna eru
tekin bindandi fyrirmæli sem munu
hafa áhrif á íslenska einstaklinga og
fyrirtæki, þótt ákvarðanir yrðu tekn-
ar af Eftirlitsstofnun EFTA,“ segir
Stefán Már sem telur einsýnt að
semja þurfi við ESB þannig að reglu-
gerðin samræmist stjórnarskránni.
Annar möguleiki sé að breyta henni.
MSamræmist ekki »4
Lögmætið dregið í efa
Losunarkerfi ESB felur í sér valdframsal Evrópulögreglan fær valdheimildir
hér Lagaprófessor efast um að framsalið samræmist íslensku stjórnarskránni
100.000 krónur á dag
» Með losunarkerfinu fær Um-
hverfisstofnun heimild til að
sekta atvinnurekstur eða flug-
rekanda um 100.000 kr. á dag
sé losunarskýrslu ekki skilað.
» Þá fær Evrópulögreglan að-
gang að skráningarkerfinu.
Óbyggðanefnd hefur kynnt kröfur
fjármálaráðherra fyrir hönd rík-
isins um þjóðlendur á Norðvest-
urlandi og í Húnavatnssýslu vestan
Blöndu ásamt Skaga. Um er að
ræða skilgreiningu á mörkum þjóð-
lendna ríkisins og eignarlanda.
Svæðið er stórt og telja allnokkrir
bændur sig eiga tilkall til eignar-
réttar á landi sem fellur innan skil-
greindra marka landsins. Landið
liggur gegnum hluta Skagafjarð-
arsýslu og Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu.
„Mér finnst gagnrýnivert að þeir
hafi farið þessa leið en á móti kem-
ur að maður getur leitað réttar síns
fyrir dómstólum,“ segir Sigurður
Erlendsson, bóndi á Stóru-Giljá á
Blönduósi, en að hans sögn gætir
töluverðrar andstöðu gagnvart
kröfum ráðherra. Ekkert er hægt
að fullyrða um hvaða kröfum verður
mætt, en dómsúrskurðir hafa bæði
fallið á þann veg að svæði sem
óbyggðanefnd hefur úrskurðað
þjóðlendur eru endurskilgreind
sem eignarlönd og öfugt. Þeim sem
telja sig eiga kröfu til eignarrétt-
inda á svæðinu er gert að skila inn
kröfum sínum í síðasta lagi 7. jan-
úar 2013. » 12
Krafa
um stórt
svæði
Landsvæðið Bændur telja sig eiga
kröfu til eignarréttar á svæðinu.
Kröfur ráðherra
mæta andstöðu
Byrjað verður að innheimta
gjöld fyrir bílastæði við afgreiðslu
Flugfélags Íslands á Reykjavíkur-
flugvelli í haust. Þessa dagana er
unnið að endurbótum á malar-
stæðum sem verða malbikuð og
gerð fyrsta flokks. Stæðisgjöldin
verða á bilinu 50 til 100 kr. en
nokkru hærri á stæðum næst flug-
stöðinni. Hjá Flugfélaginu stendur
vilji til þess að reisa nýja flugstöð
og í bílastæðamálinu hangir á spýt-
unni að fara í frekari uppbyggingu
á vallarsvæðinu. Málið er hins veg-
ar í pattstöðu vegna margra
óvissuþátta og afstöðu stjórnvalda
í flugvallarmálinu. »6
Flugfélagið rukkar
fyrir bílastæðin
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Ítölsku ferðamennirnir sem náðu
myndum af meintum hvítabirni á
Vatnsnesi á Húnaflóa fylgdust með
dýrinu í sjónauka og fullyrða að um
hvítabjörn hafi verið að ræða, en ekki
sel. Þau segja að selir hafi verið í ná-
grenninu. Þetta hefur Morgunblaðið
eftir heimildum í gærkvöldi. Árang-
urslaus leit stóð yfir að birninum við
allan Húnaflóa í gær og komu bæði
lögregla og þyrla á vegum Landhelg-
isgæslunnar að leitinni. Þá var við-
bragðsteymi vegna landgöngu hvíta-
bjarna kallað saman í gærmorgun til
að fara yfir stöðu mála og leggja á
ráðin. Einnig voru byssumenn við
Húnaflóa beðnir um að vera í við-
bragðsstöðu. Lögreglan hafði uppi á
ítalska ferðafólkinu í gær. »6
Sáu björninn
skýrt í sjónauka
Hvítabjörn? Ein myndin sem ítalska ferðafólkið tók við Geitafell af meint-
um hvítabirni í fyrradag. Fólkið skoðaði dýrið í sjónauka innan um seli.
Það var sannkölluð sumarstemning á sumartorgi Mosfellsbæjar í gær enda
veðrið eins og það gerist best. Á torgið býðst ungum sem öldnum að koma
á fimmtudagseftirmiðdögum fram að verslunarmannahelgi og njóta árstíð-
arinnar. Systkinin Aron Darri og Kolbrún spreyttu sig á smíðavöllum
torgsins og munduðu hamrana af mikilli fagmennsku – þó undir vökulu
auga föður þeirra, Hilmars Stefánssonar.
Smíðað og leikið í blíðviðri á sumartorgi
Morgunblaðið/Kristinn