Morgunblaðið - 06.07.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2012
Günther Oettinger, sem fermeð orkumál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, ræddi fyrr í vikunni við blað-
ið Die Welt um stöðu og horfur
sambandsins. Oett-
inger var spurður
að því hvort hann
væri sammála nær
helmingi Þjóð-
verja, sem væru
samkvæmt könnun
Welt am Sonntag
fylgjandi Banda-
ríkjum Evrópu.
Ekki stóð á svari Oettingers:„Já, tvímælalaust. Við verð-
um að þróa ESB áfram yfir í
stjórnmálalegt samband, í Banda-
ríki Evrópu. Það að svo stór hluti
þýsku þjóðarinnar líti þetta einn-
ig þessum augum á tímum sögu-
legrar krísu er uppörvandi.“
Þjóðverjinn Günther Oettingerer ekki léttavigtarmaður í
þýskri eða evrópskri pólitík.
Hann var forsætisráðherra þýska
sambandsríkisins Baden-
Württemberg áður en hann sett-
ist í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. Orð hans hafa því
mikið vægi í þessu samhengi.
Ekki hefur síður mikið vægiað svo stór hluti Þjóðverja
vilji breyta ESB í BE.
Afstaða þeirra helgast vita-skuld af því að þeir vita
hverjir myndu leiða þetta nýja
stórríki.
Þeir gera sér grein fyrir aðþað yrðu til dæmis ekki Ís-
lendingar. Smáríkjafræðingarnir
innan og utan stjórnarráðsins eru
hins vegar sannfærðir um að
Bandaríkjum Evrópu yrði að
verulegu leyti stýrt frá Reykja-
vík.
Günther
Oettinger
Bandaríki Evrópu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 15 léttskýjað
Vestmannaeyjar 14 léttskýjað
Nuuk 10 skúrir
Þórshöfn 12 heiðskírt
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 skýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 21 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 17 skúrir
Amsterdam 26 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 26 skýjað
Vín 30 skúrir
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 21 heiðskírt
Montreal 22 alskýjað
New York 30 léttskýjað
Chicago 32 heiðskírt
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:19 23:48
ÍSAFJÖRÐUR 2:26 24:50
SIGLUFJÖRÐUR 2:05 24:37
DJÚPIVOGUR 2:36 23:29
Íslendingurinn sem er grunaður um aðild að inn-
flutningi á um 46.000 e-töflum til Brasilíu heitir
Sverrir Þór Gunnarsson. Hann var einn af höfuð-
paurunum í stóra fíkniefnamálinu árið 2000 og
fékk sjö og hálfs árs dóm fyrir aðild sína að því.
Málið var einsdæmi á sínum tíma og snerist um
stórfelldan innflutning á fíkniefnum og skipulagt
peningaþvætti. Sakborningar í málinu voru 19
talsins og var dómur Sverris með þeim þyngri.
Töflurnar í Brasilíu fundust í farangri 26 ára
gamallar brasilískrar konu, sem kom til landsins
frá Lissabon í Portúgal. Hún var stöðvuð á Tom
Jobim-flugvellinum í borginni síðastliðinn mánu-
dag. Þetta er mesta magn e-taflna sem yfirvöld
hafa lagt hald á á umræddum flugvelli. Við yfir-
heyrslur á konunni komst lögreglan á slóðir
Sverris Þórs og handtók hann ásamt öðrum manni
á kaffihúsi í Ipanema á mánudaginn.
Við handtökuna reyndi Sverrir Þór að villa á sér
heimildir með því að þykjast vera annar íslenskur
maður. Sverrir Þór Gunnarsson fæddist árið 1972
og á langan afbrotaferil að baki. Hann var ekki
nema 16 ára gamall þegar hann var fyrst færður
fyrir dómara. Eftir að hafa afplánað dóminn í
stóra fíkniefnamálinu flutti Sverrir Þór af landi
brott og er sagður hafa haldið sig bæði á Spáni og í
Brasilíu þar sem hann var lengi búsettur. Einnig
hefur spurst til hans í Amsterdam í Hollandi og
lögreglan hér á landi hefur grunað hann um aðild
að ýmsum fíkniefnamálum í seinni tíð.
Á langan afbrotaferil að baki
Íslendingur sem handtekinn var í Brasilíu í vikunni á 24 ára afbrotaferil að baki
Undirbúningur fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu um tillögur stjórn-
lagaráðs um breytingar á stjórn-
arskránni er að hefjast. Jóhannes
Tómasson, upplýsingafulltrúi í inn-
anríkisráðuneytinu, segir gengið út
frá því að atkvæðagreiðslan fari
fram 20. október.
Í þingsályktunartillögu Alþingis
segir að atkvæðagreiðslan skuli
fara fram eigi síðar en 20. október.
Samkvæmt þingsályktunar-
tillögunni um þjóðaratkvæða-
greiðsluna er það hlutverk Alþingis
að útbúa kynningargögn um til-
lögur stjórnlagaráðs og þær spurn-
ingar sem leggja á fyrir þjóðina.
Ákveðið hefur verið að atkvæða-
greiðsla um sameiningu Garða-
bæjar og Álftaness verði samhliða
þjóðaratkvæðagreiðslunni.
pfe@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atkvæði Kosning er líkleg í október.
Líklega kos-
ið 20. okt.