Morgunblaðið - 06.07.2012, Qupperneq 11
Hæfileikar Issie uppgötvaði einn daginn að hægt væri að starfa við teikningar.
kemur kötturinn minn mér til að
hlæja daglega,“ útskýrir hún. „Þú
þarft að vinna ketti á þitt band og
þeir reyna aldrei að sleikja þig upp.
Ég held að kettir séu svona týpur
sem viðurkenna aldrei mistök sín, eru
með stórt egó og nota aðra til að fá
sínu framgengt,“ segir Issie sem hef-
ur greinilega pælt mikið í köttum og
persónuleikum þeirra. „Hver einasti
köttur hefur sinn persónuleika, ég
hef aldrei séð tvo ketti sem eru alveg
eins í skapinu.“
Ásamt því að vera virkilega hrif-
in af köttum hefur Issie nýlega tekið
upp á því að stúdera franska bolabíta.
„Ég veit ekki hvernig þessi hrifning
byrjaði en mér finnst þeir bara svo
heillandi og yndislegir,“ útskýrir Is-
sie. „Þegar ég sé franskan bolabít úti
á götu kemst ég ekki hjá því að stara
þar til eigendurnir eru farnir að verða
órólegir,“ segir hún í gríni. „Ég hefði
rosalega gott af því að fá mér hund,
sérstaklega til að fara meira út og
vinna minna.“
Ótrúleg tilviljun
Framundan eru spennandi
tímar hjá Issie en hún segist sér-
staklega spennt fyrir verkefninu hjá
Nikita. „Þetta er í fyrsta skipti sem
ég teikna fyrir fatahönnun og ég er
alveg rosalega upp með mér að fá
þetta einstaka tækifæri,“ segir Issie
sem komst í samband við Nikita fyrir
algjöra tilviljun. „Þetta byrjaði allt
eftir að ég setti nokkrar teikningar
eftir mig á Instagram,“ útskýrir hún
en Instagram er samskiptavefur þar
sem notendur setja inn ljósmyndir
eða teikningar og aðrir notendur geta
séð þær og gert athugasemdir.
„Einn daginn fékk ég hrós fyrir
myndirnar mínar frá íslenskum strák
sem grínaðist með að fá mig til að
mála vegg heima hjá sér einn dag-
inn,“ segir Issie en stuttu seinna hafði
kærasta stráksins samband við Issie
og fékk hana til að teikna jólagjöf fyr-
ir aðdáandann. „Eitt leiddi af öðru og
svo kemur í ljós að bróðir stráksins
vinnur sem grafískur hönnuður hjá
Nikita, sá myndirnar mínar og vildi fá
mig í samstarf. Ég trúði varla mínum
eigin augum þegar ég las tölvupóst-
inn,“ segir Issie sem heldur enn sam-
bandi við íslenska parið, George og
Úlfhildi. Aðspurð vill Issie ekki gefa
of mikið upp um störf sín fyrir Nikita
en von er á línunni einhvern tímann á
næsta ári. „Ég get reyndar lofað því
að ég mun ekki bara teikna ketti í
þetta skiptið,“ segir Issie og hlær.
Flott Issie notar skemmtilega litasamsetningu í myndum sínum.
Kettir Issie segir hvern einasta kött hafa einstakan persónuleika.
www.issie.se
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2012
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar:
Optical Studio Smáralind - Sími 528 8500
Optical Studio Keflavík - Sími 421 3811
PRADA, MOD OPS 06CV RAY BAN, MOD 3479 FOLDING BULGARI, MOD OBV 4064B
OAKLEY, MOD RADARLOCK, LENS G30 / IRIDIUM GREY OAKLEY, MOD SPLIT JACKET. LENS RED IRIDIUM POL HD
CHROME HEARTS, MOD PETCOCK RAY BAN, MOD ORB 3466 PRADA, MOD OPR 220V
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð