Morgunblaðið - 06.07.2012, Side 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2012
Bandaríski djasssaxófónkvartettinn Four leikur á sumardjasstónleikum veit-
ingahússins Jómfrúrinnar á morgun milli kl. 15-17. Kvartettinn skipa þeir
Mark Watkins á sópran- og altósaxófóna, Ray Smith á altósaxófon, Sandon
Mayhew á tenórsaxófón og Jon Gudmundson á baritonsaxófón. Þess má geta
að síðastnefndi saxófónleikarinn er af íslenskum ættum, en hann býr og
starfar í Utah. Allir meðlimir kvartettsins eru kennarar við tónlistarháskóla.
Aðgangur er ókeypis.
Ljósmynd/Ray Smith
Four á Jómfrúartorgi
Félag um listasafn Samúels í Selár-
dal stendur fyrir Sambahátíð að
Brautarholti í Selárdal við Arnar-
fjörð á morgun. Sambahátíð er sam-
koma fyrir alla fjölskylduna, en boð-
ið verður upp á tónlist, leiklist,
sagnamenn og gönguferðir með leið-
sögn. Tónlistarmaðurinn Svavar
Knútur kemur fram kl. 15, en klst.
síðar verður Gerhard König með
leiðsögn um svæðið og Ólafur
Hannibalsson með leiðsögn í göngu-
ferð að Selárdalskirkju. Sýning um
Samúel verður opin í kirkjunni og í
listaskála Samúels. Kómedíuleik-
húsið sýnir leikþáttinn Listamaður-
inn með barnshjartað kl. 17.30 og kl.
20.30. Um kvöldið verður dagskrá
með tónlist og sagnamönnum, en
stefnt er að því að tendra varðeld á
ströndinni um kl. 23 og þar verður
brekkusöngur fram undir miðnætti.
Sambahátíð í Selárdal
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hef alltaf gert töluvert af því að
sýna erlendis, en þetta er sennilega
stærsta einkasýning mín til þessa,“
segir Kolbrún Björgólfsdóttir betur
þekkt sem Kogga sem um þessar
mundir sýnir verk sín á einkasýningu
í galleríinu Bredgade Kunsthandel í
miðborg Kaupmannahafnar. Sýn-
ingin stendur til 14. júlí nk. en verkin
verða áfram kynnt í galleríinu fram á
haust. Í dag tekur Kogga þátt í lista-
mannsspjalli ásamt danska listfræð-
ingnum Lars Olesen og af því tilefni
sló blaðamaður á þráðinn til Koggu.
Spurð hvernig sýningin sé til kom-
in segir Kogga frumkvæðið hafa
komið frá Lars Olesen. „Hann hefur
um árabil fylgst með mér og alltaf
komið reglulega til mín á vinnustof-
una á Vesturgötunni og keypt verk.
Ætli það séu ekki þrjú til fjögur ár
síðan hann fór fyrst að ræða það að
hann langaði til að sjá sýningu á verk-
um mínum í Kaupmannahöfn,“ segir
Kogga og tekur fram að sýningin hafi
verið hálft annað ár í undirbúningi.
Sendi verk út í 17 kössum
„Ég vann ný verk fyrir sýninguna
og sendi út í 17 kössum,“ segir Kogga
og bætir hlæjandi við: „Ég er eigin-
lega ofvirk og alveg hrikalega mikið
vinnudýr. Mér finnst ég aldrei vera
búin að gera nóg eða nógu vel. Þannig
að ég var alveg sannfærð um þegar
ég var að pakka í kassana að rýmið
myndi gleypta verkin.“ Aðspurð um
stærð verkanna segir Kogga þau
spanna allt frá lofastórum verkum til
veggverka í stærðinni 1,5x1,5 m.
„Þema sýningarinnar er íslensk nátt-
úra og veðrátta. Stór hluti verkanna
eru raðverk sem mynda heild. Hver
og ein sería er ólík í vinnubrögðum,
nálgun og útfærslu.“
Að sögn Koggu hafa viðtökur við
sýningunni farið fram úr björtustu
vonum. „Aðsóknin hefur verið gríð-
arlega góð og ekki spillir fyrir að gall-
eríið er staðsett á mjög góðum stað í
borginni, þ.e. við sömu götu og Amali-
enborg Slot og er beint á móti De-
signmuseum Danmark sem er
stærsta og flottasta safn í listiðnaði
og hönnun þar í landi,“ segir Kogga
og tekur fram að áhugi danskra fjöl-
miðla hafi komið sér þægilega á
óvart. „Þannig er ég þegar búin að
fara í viðtal hjá Dansk Kultur TV og
framundan er viðtal við Berlingske
Tidende hjá einum virtast list-
gagnrýnanda blaðsins. Maður kemst
ekki að í þessum miðlum nema þeir
hafi áhuga á efninu,“ segir Kogga og
tekur fram að hún vonist til þess að
sýningin geti opnað sér frekari dyr í
Danmörku. Þess má geta að Kogga
mun jafnframt í dag funda með Lise
Seisbøll safnastjóra Danmarks Ker-
amikmuseum Grimmerhus.
Eins og fyrr sagði tekur Kogga
þátt í listamannsspjalli ásamt
sýningarstjóranum í dag.
Tökulið Tom Cruise heimsótti
verkstæði listakonunar
„Meðal þess sem við Lars munum
ræða er staða hönnunar og listiðn-
aðar á Norðurlöndunum, en við mun-
um bera saman stöðuna í Danmörku
og á Íslandi,“ segir Kogga sem lærði
keramik í Danmörku á sínum tíma og
þekkir því vel til í báðum löndum, en
Kogga hefur unnið sem keramiker sl.
fjörutíu ár og rekið eigin vinnustofu-
gallerí sl. 27 ár.
„Mér heyrist á skipuleggjendum
listamannsspjallsins að þeim finnist
spennandi að heyra sýn mína á það
hvort og hvað hafi breyst á þessum
fjörutíu árum og hvort staða hönnuða
og listiðnaðar hafi breyst. Meðal þess
sem við reynum að leita svara við er
hvernig sé að vera keramiker á Ís-
landi. Staðan mín er sú að það eru
helst erlendir safnarar og söfn sem
kaupa stærstu verkin mín. Á Íslandi
lítur staðan öðruvísi út þar sem nær
engir alvöru safnarar á keramiki eru
til staðar. Það sem hefur komið mér til
góða er að útlendingar koma mikið til
mín og öðru hvoru fólk með þekkingu
og skilning á því sem ég er að gera og
sem áttar sig á þeirri sérhæfðu tækni
sem ég hef þróað í gegnum árin.
Oft eiga skemmtilegar uppákomur
sér stað á verkstæðinu, m.a. var
ítalska Vogue í vor sem leið að taka
brúðarmyndir fyrir haustblaðið sitt.
Verkstæðið og verkin mín voru þar í
forgrunni. Svona uppákomur eru tals-
vert tíðar og hafa ósjaldan haft í för
með sér sölu verka. Síðast á miðviku-
daginn var tökulið Tom Cruise að
versla hjá mér,“ segir Kogga og bætir
við: „En nú verð ég að kveðja þig því
ég er að hlaupa í viðtalið við Berl-
ingske.“
„Ég er hrikalega mikið vinnudýr“
Kogga með
stærstu einkasýn-
ingu sína til þessa í
miðborg Kaup-
mannahafnar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Góð „Aðsóknin hefur verið gríðarlega góð og ekki spillir fyrir að galleríið er staðsett á mjög góðum stað í borginni,
þ.e. beint á móti Designmuseum Danmark sem er flottasta safn í listiðnaði og hönnun þar í landi,“ segir Kogga.
Aðdáun Verkið Næturturn er meðal þess
sem sjá má í Bredgade Kunsthandel.
Lófastór Stór hluti verkanna á sýningunni eru raðverk sem mynda heild.
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
• Sólvarnargler
• Einangrunargler
• Öryggisgler
• Eldvarnargler
• Speglar
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í skjólveggi
- Í rennihurðir
Sérfræðing
ar í gleri
… og okku
r er nánast
ekkert ómö
gulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga