Morgunblaðið - 06.07.2012, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2012
Fjórða myndin um kónguló-armanninn Peter Parkerhefur nú litið dagsins ljós.Að þessu sinni er það
leikstjórinn Marc Webb sem leik-
stýrir myndinni en hann hefur með-
al annars leikstýrt myndinni (500)
Days of Summer.
Myndin byggist á sama grunni og
fyrri myndir en söguþráðurinn er
nýr auk þess sem nýir leikarar túlka
hlutverkin. Handritið hefur sínar
hæðir og lægðir. Fléttan er mjög
fyrirsjáanleg og fylgir öllum þeim
hefðbundnu formúlum sem Holly-
wood-skólinn er þekktur fyrir og
eru það ákveðin vonbrigði. Nokkur
atriði eru einnig klisjukennd og þó
svo undirritaður sé mikill aðdáandi
rómantískra atriða þá var koss Pet-
ers Parkers (Andrew Garfield) og
Gwen Stacy (Emma Stone) fremur
kjánalega útfærður. Parker festir
hana þá bókstaflega í ástarvef sín-
um og má eflaust hlæja að því. Sam-
skipti þeirra tveggja eru þó ágæt-
lega útfærð fyrir og eftir það og það
fer Garfield vel að leika hinn klaufa-
lega og vandræðalega Parker.
Garfield hefur tekið við keflinu af
Tobey Maguire og túlkar hlutverk
Peters Parkers í fyrsta skipti. Hann
sýnir góðan leik í myndinni og
nördalegt táningshlutverkið fer
honum einkar vel. Ég fagna því að
Garfield sé kominn í stað Maguire
sem hefur verið heldur litlaus í hlut-
verki sínu í síðustu þremur mynd-
um.
Velski stórleikarinn Rhys Ifans
eykur klárlega gæði myndarinnar
og túlkar hlutverk andstæðings
kóngulóarmannsins, Dr. Curt Con-
nors, af stakri prýði. Svo virðist
vera sem hann geti ekki klúðrað
hlutverkum, hann hefur staðið sig
vel í öllum þeim stóru hlutverkum
sem hann hefur tekið að sér. Martin
Sheen og Emma Stone eru að sama
skapi góð og greinilegt að Stone er
ein af björtustu vonum Hollywood
um þessar mundir.
Það hefur greinilega miklu fjár-
magni verið eytt í að gera viðkom-
andi mynd og tæknibrellurnar í
henni eru ansi góðar. Sviðsmyndin
er raunveruleg og einnig búningar
og vel tekst að halda ákveðnum
raunsæjum blæ yfir myndinni. Það
er til dæmis reynt eftir fremsta
megni að útskýra þær stökkbreyt-
ingar sem verða í Parker og Dr.
Connors og gerir það myndina
áhugaverðari.
Það er einnig skemmtilegt hvað
persónur myndarinnar eru marg-
ræðar. Þær eru ekki einungis góðar
eða illar og skipting þessara afla
svolítið á gráu svæði þó það sé
reyndar alltaf ljóst hver sé aðal-
hetjan og hver sé andstæðingurinn.
Hetjan er þó mistæk og vondi karl-
inn hefur að einhverju leyti góða
sál; við fögnum því. Myndin er ná-
kvæmlega það sem við mátti búast,
hvorki meira né minna. Hún er því
ágætis afþreying sem skilur þó ekk-
ert eftir að áhorfi loknu.
Ofurhetjuást Parker hefur hér náð athygli Stacy sem á erfitt með að kyssa hann á varirnar af augljósri ástæðu.
Nýtt blóð og nýjar hefndir
Smárabíó, Háskólabíó, Borgar-
bíó, Laugarásbíó og Sambíóin
Álfabakka, Egilshöll og Keflavík
The Amazing Spider-Man bbbmn
Leikstjóri: Mark Webb. Handrit: Alvin
Sargent og Steve Kloves. Aðalhlutverk:
Andrew Garfield, Emma Stone, Irrfan
Khan, Martin Sheen, Rhys Ifans og Sally
Field. Bandaríkin, 2012. 136 mín.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Skipuleggjendur tónlistarhátíð-
arinnar Iceland Airwaves kynntu í
gær fleiri listamenn og hljómsveitir
sem fram munu koma á hátíðinni í
ár en hún hefst 31. október og lýk-
ur 4. nóvember. Meðal erlendra
listamanna eru hljómsveitin Swans,
hipphopp-sveitirnar Shabazz Pala-
ces og THEESatisfaction, söngva-
skáldið Mo Kenney, þjóðlagapopp-
sveitin The Barr Brothers, Kwes,
hin hollenska Moss, danska rokk-
sveitin Thee Attacks og Ghostpoet.
Af íslenskum hljómsveitum og tón-
listarmönnum má nefna HAM,
Hermigervil, Berndsen, My Bubba
& Mi, Ojba Rasta, Sudden Weather,
Cheek Mountain Thief, Þórunni
Antoníu, Elínu Ey, Eldar og Ásgeir
Trausta.
Morgunblaðið/Jim Smart
HAM-agangur Hljómsveitin HAM.
Swans og HAM
leika á Airwaves
Sumartónleikar við Mývatn hefjast
með tónleikum klarínettutríósins
Chalumeaux og Margrétar Bóas-
dóttur sópran annað kvöld kl. 21.
Röðin er nú haldin í 26. skipti og
sem fyrr er Margrét listrænn
stjórnandi hennar. Á efnisskrá eru
sönglög og tónverk eftir Pál Ísólfs-
son, Atla Heimi Sveinsson, Jón Ás-
geirsson, W. A. Mozart, C.
Bononcini og Ch. Graupner.
Chalumeaux trióið er skipað
klarínettuleikurunum Sigurði
Ingva Snorrasyni, Kjartani Ósk-
arssyni og Ármanni Helgasyni.
Tónleikarnir eru tileinkaðir 50
ára vígsluafmæli Reykjahlíðar-
kirkju sem var vígð 1. júlí 1962.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Daginn eftir, eða sunnudaginn 8.
júlí kl. 17, leikur hópurinn sömu
efnisskrá á sumartónleikum Akur-
eyrarkirkju. Aðgangur þar er líka
ókeypis.
Sæl Margrét Bóasdóttir sópransöngkona.
Með tvenna tón-
leika á Norðurlandi
Fjallalamb á framandi máta
Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk,
ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á
salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum
sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu
2.690 kr.
Hálendis
spjótNÝTT
Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi,
sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
HJÁ OKKUR F
ÆRÐU
HÁÞRÝSTIDÆ
LUR
Í MIKLU ÚRV
ALI
Dynjandi hefur mikið úrval af
vatns-, borholu-, og háþrýsti-
dælum af ýmsum stærðum og
gerðum. Hafðu samband og
við aðstoðum þig.
Dynjandi örugglega fyrir þig!