Kjarninn - 21.08.2014, Blaðsíða 20
04/04 ÞjóðmáL
mögulega á dagskrá í haust. Nefnd um málefni lífeyrissjóða
hefur lagt til að opinbera kerfinu, þar sem ríkið er í ábyrgð-
um fyrir lífeyrissjóðina, verði breytt í frjálst kerfi líkt því
sem aðrir lífeyrissjóðir starfa í. Auk þess virðist vera nokkuð
mikill samtaktur um nauðsyn þess að hækka lífeyrisaldur
upp í 70 ár hið minnsta hjá öllum í nýja kerfinu.
Til viðbótar þyrfti að hækka iðgjöld, það hlutfall launa
sem hver launamaður er lögbundinn til að greiða í lífeyris-
sjóð mánaðarlega, umtalsvert. Iðgjöld í almenna kerfinu í
dag eru 12,5 prósent en tillögur miða við að þau verði hækkuð
upp í 15,5 prósent.
Það liggur mikið á að taka stórar ákvarðanir varðandi
þetta mál. Hrafn Magnússon, sem var framkvæmdastjóri
Landssambands lífeyrissjóða í vel á fjóra áratugi, skrifaði
grein í Kjarnann í október 2013. Á meðal þess sem hann
fjallaði um var sá halli sem er á stærsta lífeyrissjóði landsins,
LSR. „Þetta er grafalvarleg staða sem versnar með hverju ári
sem líður ef ekki er gripið til viðeigandi ráðstafana. Hallinn
á LSR og lífeyrissjóðum sveitarfélaga er áhyggjuefni fyrir alla
þjóðina því með þessu ástandi er verið að velta skattbyrðinni
yfir á komandi kynslóðir,“ sagði Hrafn í greininni.