Kjarninn - 21.08.2014, Blaðsíða 50
02/04 áLit
eða skoðanaglaða vinnufélaga sinn en ekki sem eitthvert
abstrakt vandamál mannkyns. Þetta á þó að sjálfsögðu ekki
við um þig, auðvitað ekki, þú ert flott(ur).)
Nietzsche sagði „Guð er dauður“, þau skilaboð bárust
nýlega inn á borð dagskrástjóra Rúv sem lét hætta að biðja
til hans, eða ekki hans eftir því hvernig þú lítur á það. Síðan
hætti hann við að hætta að biðja til hans. Sú ákvörðun sýnir
mögulega raunverulegan mátt bæna, sem á engan sinn líka
ef undanskilin er fjölmenn Facebook-grúppa. Guð vinnur á
óútskýranlegan hátt. Nietzsche sjálfur hefur
samt verið dauður í rúmlega öld þannig að
boðleiðirnar eru greinilega langar upp í
Efstaleiti. Kannski er ágætt eftir allt saman
að koma öllu batteríinu á eina hæð, rífa
niður veggi og leigja efri hæðina út á sið-
lausum prís á AirBnB. Nýja Rúv verður bara
eins og Google, aldrei lengra en 50 metrar í
mötuneyti!
Það næsta sem ég hef komist því að semja
svona frasa er líklega „Frelsi er að kúka með
opnar dyr“. Ég verð að viðurkenna að þegar
ég ber þetta úttak saman við stóru hetjur
heimspekinnar finnst mér eins og ég eigi
langa leið eftir.
Ég reyni þó að gera gagn. Sem heimspekingur hef ég
reynt að tileinka mér að skilja hugtök, einfalda fyrir mér
hugtök og í raun að ná einhverjum tökum á hugtökum. Það
sem hefur verið hvað nærtækast er hugtök eins og fátækt
og hamingja. Það sem mér finnst einkennilegt er að ekki sé
fjallað meira um þetta tvennt saman. Því að það er nokkurn
veginn vitað hvað fólk þarf til að sleppa við almenna óham-
ingju. Það er í kringum hálf milljón á mánuði.
Sú tala ætti örugglega ekki að koma neinum lesanda á
óvart. Það sem er þó eftirtektarvert er að jákvæð áhrif tekna
á hamingjuna hætta að hækka eftir rétt rúmlega 700 þúsund.
Það er því ekki galið að draga þá ályktun að ef við gætum
aðeins hjálpað fólki að komast upp á þetta bil yrðu langflestir
„Ég veit að þetta
hljómar dáldið eins
og ég hafi verið að
kjammsa á útlensku
nautakjöti af þannig
áfergju að lands-
lið toxoplasma
sé að skriðsynda
í spaðmoll-
unni minni.“