Kjarninn - 21.08.2014, Blaðsíða 58
01/01 græjur
tækni Þráðlaus Bluetooth BOOM ferðahátalari frá Ultimate Ears
01/01 græjur kjarninn 21 ágúst 2014
uBer sense
Snilldar app
fyrir íþrótta-
æfingar.
Maður tekur
upp video
og getur skoðað það
fram og til baka á mis-
munandi hraða, svo er
líka einstaklega auðvelta
að deila myndböndunum
á milli.
apps gone Free
Þetta app
er fyrir
nördana,
en þarna
kemur inn
nýr listi á hverjum degi
með gömlum eða nýjum
öppum sem sem hægt er
að næla sér í ókeypis.
gooD reaDer
Uppáhalds
skólaappið
mitt fyrir
ipad. Ég er
með allar
mínar bækur og verkefni
inná þessu, það kostar
smá en er allan daginn
þess virði.
karen sif Viktorsdóttir
Landsliðskona í hópfimleik-
um og tölvunarfræðinemi
Hin svokallaða Ipod dokka er dauð. Það nýjasta nýtt á markaðnum,
fyrir þá sem hafa þörf fyrir að plötusnúðast á ferðalögum sínum,
eru þráðlausir Bluetooth hátalarar. Þannig geta plötusnúðarnir
stjórnað tónlistinni með snjallsímanum, jafnvel úr þó nokkri
fjarlægð, án þess að afskiptasamir komist í lagalistann. Hljóðgæði
hátalaranna eru lygileg, og svo eru þeir lika vatnsþéttir, sem
kemur sér vel þegar teitið nær hámarki.
Með sérstöku appi er hægt
að fínstilla hljóðgæðin með
sérstökum tónjafnara.
Hægt er að tengja saman fleiri
BOOM hátalara þráðlaust til að
lyfta partýinu upp á næsta stig.
Með símanum er hægt að stjórna
tónlistinni, hækka og lækka
hljóðstyrk, en fullhlaðin virkar
BOOM í fimmtán tíma.
BOOM hátalarinn gefur frá sér hljóð allan
hringinn, svo allir viðstaddir geti notið
tónlistarinnar þar sem þeir eru staddir.