Morgunblaðið - 14.08.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Skráðu bílinn þinn
frítt inn á
diesel.is
Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252
þegar þú ætlar að selja bílinn
Því var haldið fram af oddvitumríkisstjórnarflokkanna, rétt
eins og þjóðin væri bæði illa upp-
lýst og heimsk, að umsókn um að
fá að ganga í ESB væri alls ekki
umsókn um að fá að ganga í ESB.
Þótt Brussel-menn bæðu
ríkisstjórnina op-
inberlega að láta
ekki eins og samn-
ingaviðræður færu
fram um aðlögun
landsins að Evrópu-
sambandinu, var
leikarskapnum
haldið áfram.
Bröltið gengi víst út á að „sjáhvað væri í pakkanum“.
Á daginn kom að það varsprengja í pakkanum og hún
reyndar þegar sprungin og evran,
stóra glæsta gulrótin, þarfnaðist
nú sífelldra björgunaraðgerða og
áfallahjálpar nær annan hvern
dag.
Þjóðirnar, sem tóku hana upp,engdust hver af annarri í
efnahagslegum ömurleika og tjóni.
Jóhanna Sigurðardóttir líktisamstarfsfólki sínu í stjórn-
armeirihluta við villiketti sem
vandi væri að „smala.“
Nú segir hún það sama fólkvera í „panik“.
Og hún bætir því við að það sémeð öllu óþarft að ræða við
það um þau stórmál sem tveir ráð-
herrar, a.m.k. vilja fá að ræða.
Er hægt að nota orðið samstarfum þessa umgengni?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Smalar taugaveikl-
uðum villiköttum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 alskýjað
Vestmannaeyjar 13 léttskýjað
Nuuk 11 skýjað
Þórshöfn 12 þoka
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 18 léttskýjað
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 23 skýjað
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 20 skýjað
London 20 léttskýjað
París 23 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 22 léttskýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 28 þrumuveður
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 18 skúrir
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:18 21:48
ÍSAFJÖRÐUR 5:09 22:07
SIGLUFJÖRÐUR 4:51 21:50
DJÚPIVOGUR 4:44 21:21
Hrefnuveiðimenn hafa annað eft-
irspurn í sumar og tryggt nægi-
legt framboð af hrefnu. Hrefnu-
veiði hefur gengið vel og 29 dýr
veiðst síðan 30. apríl en heild-
arkvótinn er 216 dýr.
Hrefnuveiðibátarnir Hrafnreyð-
ur KÓ og Hafsteinn SK hafa verið
á hrefnuveiðum í sumar. Gunnar
Bergmann Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hrafnreyðar ehf.
sem gerir út hrefnuveiðibátinn
Hrafnreyði KÓ, segir að ekkert
hafi verið farið út til veiða síðan í
vikunni fyrir verslunarmanna-
helgi, fyrst og fremst vegna veð-
urs en einnig vegna þess að eft-
irspurnin ráði för. Hins vegar
standi til að fara út í vikunni.
Hrefnan vinsæl á grillið
Gunnar Bergmann segir að
hrefnurnar hafi einkum veiðst í
Faxaflóanum en líka í Breiðafirði
og fyrir sunnan land. Hrefnukjöt
sé vinsæll grillmatur og veiðin
taki mið af eftirspurninni á grill-
tímanum enda fari allt kjötið á
innanlandsmarkað. Grilltímabil
sumarsins hafi náð hámarki og því
sé eðlilegt að fara rólega í veiðina.
Hrefna eða hrafnreyður er sjö
til 11 metrar á lengd og fimm til
10 tonn að þyngd. Hrefnurnar
sem veiðst hafa verið frá tæplega
600 kg upp í liðlega átta tonn að
þyngd.
Veiðitímabilinu lýkur 30. októ-
ber, en Gunnar Bergmann áréttar
að aðeins sé farið út í góðu veðri
og þegar það henti þeim.
steinthor@mbl.is
29 hrefnur eru komnar á land
Hrefnukjöt Það hentar vel í steikur.
Íslendingar eru
enn í 5. sæti í
sínum riðli á ól-
ympíumótinu í
brids þegar
þremur umferð-
um er lokið af 15
í riðlakeppninni
mótsins, sem fer
fram í Lille í Frakklandi.
Keppt er í fjórum riðlum í opnum
flokki mótsins og fara fjórar efstu
sveitirnar áfram í úrslit úr hverjum
riðli.
Tveir sigrar og eitt tap
Íslenska liðið tapaði fyrsta leik
gærdagsins fyrir Grikkjum, 1:25 en
vann síðan Tyrki, 22:8, og Vene-
súela, 25:3. Íslenska liðið er nú með
213 stig í 5. sæti í riðlunum en Kín-
verjar eru með 218 stig, Norðmenn
220 stig, Ísrael 247 stig og Mónakó
257 stig. Tyrkir eru fast á hæla Ís-
lendingum með 212 stig í 6. sæti.
Íslendingar spila á dag við Bot-
svana, Noreg og Mónakó og þurfa
því að halda vel á spöðunum eigi
þeim að takast að ná í úrslitin. Lið
Mónakó, sem er skipað atvinnu-
mönnum frá Noregi, Ítalíu, Frakk-
landi og Sviss, vann Evrópumótið í
brids í júní og er til alls líklegt á ól-
ympíumótinu. gummi@mbl.is
Ísland enn
í 5. sæti á
ÓL í brids