Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
✝ GuðmundurSigmar Páls-
son, fæddur á Fit
undir Eyjafjöllum,
Rang. 21. sept-
ember 1925.
Hann lést á
Hrafnistu Hafn-
arfirði þann 4.
ágúst 2012.
Foreldrar Guð-
mundar voru Páll
Guðmundsson
fæddur í Ásólfsskálasókn, Rang.
22. júlí 1893. Látinn 30. janúar
1986 og
Jóhanna Ólafsdóttir fædd í
Ásólfsskálasókn, Rang. 21. júní
1901. Látin 16. mars 1982. Sysk-
ini Guðmundar: 1. Markús Páls-
son fæddur 8. nóvember 1926.
Látinn 16. september 1974. 2.
Ingibjörg Ólafía Pálsdóttir fædd
23. desember 1927. Látin 28. júlí
2008. 3. Guðsteinn Pálsson
fæddur 18. janúar 1929. 4. Sig-
ríður Pálsdóttir fædd 24. októ-
ber 1930. 5.Vigdís Pálsdóttir
fædd 1933. Látin 1933. 6. Viggó
Pálsson fæddur 24. febrúar
1936. 7. Þórdór Pálsson fæddur
4. apríl 1943. Hálfsystkini Guð-
mundar samfeðra: 8. Eggert
Pálsson fæddur 19. október
fæddur 25. janúar 2009. b) Ró-
bert Þór Sigfússon fæddur 14.
nóvember 1979.
Maki Róberts: Nadja S. Hal-
vari, fædd 16. september 1986.
Synir Róberts og Nadju eru:
Ísak Halvari Róbertsson, fædd-
ur 9. janúar 2010, Óliver Halvari
Róbertsson, fæddur 20. júlí
2011. 2. Guðmundur Ragnar
Guðmundsson fæddur 12. apríl
1957. Maki: Hrafnhildur Ingi-
bergsdóttir fædd 3.október
1959.
Börn Guðmundar og Hrafn-
hildar eru: a) Pálmar Guð-
mundsson fæddur 2. febrúar
1977, b) Dagný Björk Guð-
mundsdóttir fædd 2. júní 1986.
3. Stefán Páll Guðmundsson
fæddur 16. október 1959. Maki:
Sólrún Ragnarsdóttir fædd 20.
september 1953. Sonur Stefáns
og Sólrúnar er:
Guðmundur Sigmar Stef-
ánsson fæddur 6. nóvember
1992.
Sonur Sólrúnar: Ragnar Vikt-
or Karlsson fæddur 22. apríl
1970. 4. Berglind Ósk Guð-
mundsdóttir fædd 12. mars
1968. Maki: Oddur Þór Þorkels-
son fæddur 16. desember 1968.
Synir Berglindar og Odds eru:
a) Ingimar Örn Oddsson fæddur
9. febrúar 1994, b) Valtýr Snær
Oddsson fæddur 8. janúar 1999.
Útför Guðmundar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
þriðjudaginn 14. ágúst 2012 kl.
13.
1916. Látinn 2. jan-
úar 2000. 9. Ásdís
Pálsdóttir fædd 13.
júní 1919. Látin 9.
júlí 2005. 10. Ólafur
Kristófer Pálsson
fæddur 27. júní
1921. Látinn 2. maí
2005. Uppeld-
isbróðir Guð-
mundar var: Einar
Sigurjónsson fædd-
ur 10. nóvember
1908. Látinn 11.janúar 1993.
Eiginkona Guðmundar er
Elísabet Jónsson fædd í Hafn-
arfirði 25. júlí 1933. Börn Guð-
mundar og Elísabetar eru: 1.
Lovísa Guðmundsdóttir fædd
10. desember 1953.
Maki: Odd Suhr fæddur
20.nóvember 1943. Fyrrum
maki Lovísu: Sigfús Krist-
mannsson fæddur 11. október
1951. Börn Lovísu og Sigfúsar
eru: a) Telma Rós Sigfúsdóttir
fædd 11. ágúst 1974. Maki
Telmu: Snorri Heimisson fædd-
ur 5. september 1972. Börn
Telmu og Snorra eru: Gunn-
hildur Lovísa Snorradóttir fædd
10. mars 1999, Daníel Birkir
Snorrason fæddur 19. mars
2003, Sölvi Jarl Snorrason
Elsku besti pabbi minn er
dáinn.
Ég lít á mig sem heppnustu
dóttur í heimi að hafa auðnast
að eiga svona góðan pabba eins
og pabbi minn, Guðmundur Sig-
mar Pálsson var.
Í barnæsku minni áttum við
margar góðar stundir heima á
Brekkuhvammi við að spila og
leika okkur saman. Hann
kenndi mér alls konar spil og
var óþreytandi að spila sama
spilið aftur og aftur. Við
skemmtum okkur vel við spila-
mennskuna, nutum samverunn-
ar, röbbuðum saman og hlóg-
um.
Mamma, pabbi og ég áttum
margar gæðastundir við að
sinna kartöflugarðinum okkar í
hlíðum Ásfjalls. Nesti sem inni-
hélt allt sem mér þótti best þ.e.
kremkex og mjólk í kókflösku
var alltaf tekið með. Við borð-
uðum það á stórum steini og
nutum fallega útsýnisins yfir
Hafnarfjörðinn.
Pabbi var mjög barngóður.
Barnabörnin minnast hans sem
afa sem var alltaf til í að sinna
þeim og leika við þau. Í fjöl-
skylduboðum mátti iðulega
finna pabba sitjandi á gólfinu að
kubba eða í bílaleik við barna-
börnin. Hann spilaði mikið Ól-
sen Ólsen við þau og auðvitað
lét hann börnin alltaf vinna.
Pabbi var mjög duglegur og
ósérhlífinn maður. Hann vann
mikið alla sína ævi síðast í
Straumsvík. Mér fannst gaman
þegar Oddur maðurinn minn
sem vann þar eitt sumar sagði
mér að pabbi væri kallaður
Guðmundur góði af vinnufélög-
um sínum. Það finnst mér ein-
mitt lýsa honum vel, hjálpsam-
ur og lynti vel við alla.
Stærsta hluta ævi sinnar var
pabbi mjög heilsuhraustur og
sterkur. Honum fannst gott að
reyna á sig og vildi t.d. lengst
af frekar nota handsláttuvél en
vélknúna. Þegar ákveðið var að
helluleggja bílaplanið á Brekku-
hvammi datt honum ekki í hug
að fá gröfu til að moka upp
undirlagið heldur naut þess að
moka það með handskóflu.
Eftir að pabbi missti fótinn í
slysi í Straumsvík varð lífið
honum erfiðara en hann gafst
aldrei upp. Hann vildi gera allt
sjálfur. Ég viðurkenni það fús-
lega að mér leið ekki vel þegar
ég sá pabba uppi á þaki á gervi-
fætinum að pússa þakið og
mála.
Pabbi elskaði að vera úti að
sýsla í garðinum með mömmu
og dytta að húsinu okkar á
Brekkuhvammi. Hann var mik-
ill sólardýrkandi og fannst gott
að vera í hitanum. Honum
fannst gaman að fara til útlanda
með fjölskyldunni, njóta sam-
verustundanna, keyra um og
skoða umhverfið. Í utanlands-
ferðunum fannst okkur mömmu
oft skondið að þegar við fórum í
búðir vildi hann bíða úti. Fann
hann þá alltaf einhvern sólar-
geisla til að standa í og sóla sig
jafnvel þó það væri skuggi allt í
kring.
Eftir að pabbi eltist og fór á
Hrafnistu ræddum við oft sam-
an og litum yfir farinn veg. Það
gladdi mig að heyra, hvað hon-
um fannst hafa skipt mestu
máli í lífi hans. Það var, að
hann hefði átt þá bestu eig-
inkonu, sem hann hefði getað
hugsað sér, fjögur heilbrigð og
góð börn og yndislega fjöl-
skyldu.
Eins og gildir um flesta af
kynslóð pabba var lífið ekki
alltaf leikur, en hann leit sáttur
yfir farinn veg og passaði að
varðveita allar góðu
minningarnar.
Ég kveð elskulegan föður
minn, sem mun ætíð eiga stóran
sess í hjarta mínu, með þakk-
læti fyrir allt.
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir.
Ég minnist Guðmundar S.
Pálssonar, tengdaföður sonar
míns, með virðingu og hlýju.
Við hittumst reglulega, þegar
eitthvað var um að vera hjá
fjölskyldunni.
Guðmundur var alltaf vin-
gjarnlegur, rólegur og hafði
góða nærveru.
Hann tók áföllum í lífinu með
jafnaðargeði.
Guð blessi Guðmund og leiði
hann á nýjum vegum.
Nú, er þú hverfur héðan
á hærra og æðra svið,
þar lífsþrótt færðu léðan
að lifa starf það við,
sem mest þú vildir magna,
þótt mæddi einatt kíf.
Þér fríðar sveitir fagna,
með fylling dýrra sagna
um ást og eilíft líf.
(Oddur Ólafsson.)
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar.
Ása K. Oddsdóttir.
Guðmundur
Sigmar Pálsson
✝ Þórunn Stein-unn Jónsdóttir
fæddist á Eiðum í
Grímsey 10. jan-
úar 1925. Hún lést
7. ágúst 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Sig-
urðsson, útvegs-
bóndi frá Eiðum í
Grímsey, f. 27.
mars 1878, d. 23.
mars 1960, og Er-
menga Frímannsdóttir, hús-
móðir frá Braut á Húsavík, f.
22. ágúst 1893, d. 9. desember
1928. Systkini Þórunnar eru
óskírður, f. andvana 13. októ-
ber 1913. Sig-
fríður Guðrún, f.
9. apríl 1915, d.
21. mars 1995.
Óskar, f. 17. apríl
1920, d. 11. júní
1920. Júlíana, f.
22. september
1917, d. 14. sept-
ember 2003. Ósk,
f. 5. nóvember
1922. Hálfsystir
Þórunnar er Sig-
urveig, f. 25. apríl 1900, d. 31.
janúar 1989.
Útför Þórunnar verður frá
Áskirkju í dag, þriðjudaginn
14. ágúst 2012, kl. 13.
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti
(Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir)
Það fer vel að byrja þessi minn-
ingar- og þakkarorð á þessu versi.
Þórunn Steinunn eða Tóta
frænka eins og við systur kölluð-
um hana ætíð verður borin til
hinstu hvílu í dag, hinn 14. ágúst.
Þennan dag fyrir 100 árum fædd-
ist mágur hennar og faðir okkar,
Björn J. Ólason, en þau voru alla
tíð miklir vinir.
Tóta frænka missti móður sína
aðeins þriggja ára gömul. Hún
ólst upp í faðmi stórfjölskyldunn-
ar á Eiðum í Grímsey. 25 ára
gömul veiktist hún af berklum og
þurfti í stórar aðgerðir. Afleiðing-
ar þessara veikinda hrjáðu hana
alla ævi. Hún flutti ung til
Reykjavíkur og mestalla starfs-
ævina vann hún við verslunar-
störf. Tóta var einn af fyrstu
starfsmönnum Hagkaupa á
Miklatorgi og starfaði lengst af
hjá því fyrirtæki.
Tóta var einstaklega glaðlynd
kona, ljóshærð, grönn og ætíð fal-
lega klædd. Hún elskaði að kaupa
sér föt og naut sín aldrei betur en
flott dressuð á mannamótum.
Tóta var mjög barnelsk og hænd-
ust börn að henni. Hún setti
gjarnan upp tískusýningar fyrir
okkur og seinna fyrir okkar börn.
Hún fór í fínu kjólana og dansaði
við okkur. Það eru dýrmætar
minningar. Tóta frænka var virk í
félagsstörfum eldri borgara, s.s.
handavinnu, fór í ferðalög með fé-
laginu og á dansiböll. Það leiddist
henni ekki.
Líf Tótu var ekki alltaf dans á
rósum, en aldrei heyrðum við
hana kvarta. Hún tók mótlæti og
erfiðleikum í lífinu af æðruleysi
og gafst aldrei upp. Af viðhorfi
hennar til lífsins var margt hægt
að læra.
Að lokum þökkum við sam-
fylgdina og kveðjum með söknuði.
Við trúum því að hún sé komin í
faðm genginna ástvina og líði vel.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Við vottum Ósk systur hennar
okkar dýpstu samúð.
Jónheiður og Pálína
Björnsdætur.
Þórunn Steinunn
Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf grein-
in að hafa borist á hádegi tveim-
ur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Minningargreinar
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Hjartkær eiginmaður minn,
GUÐJÓN ÞORBERGSSON,
Lækjasmára 6,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 5. ágúst.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 17. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu
minnast hins látna er bent á minningarsjóð Skógarbæjar, sími
510 2100.
Jónína Þorsteinsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MARGRÉTAR ÓLAFAR
ÞORBERGSDÓTTUR,
síðast til heimilis
í Lækjasmára 2,
Kópavogi,
Þorbergur Karlsson, Jónína A. Sanders,
Valdimar Örn Karlsson, Guðrún V. Guðmundsdóttir,
Hafsteinn Karlsson, Ebba Pálsdóttir,
Sigríður Ingibjörg Karlsdóttir, Ólafur Helgason,
Gunnar Karlsson, Ólöf Nordal,
Arnþrúður Karlsdóttir, Ólafur Kolbeinsson,
Eva Björk Karlsdóttir, Alfreð Örn Lilliendahl,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ÓLAFS PÉTURSSONAR,
Álftagerði,
Skagafirði.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyflækningadeildar á
Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir mjög góða umönnun.
Regína Jóhannesdóttir,
Pétur Ólafsson, Minerva Björg Sverrisdóttir,
Jóhannes Ólafsson, Sólrún Jóna Ásgeirsdóttir,
Anna Sigrún Ólafsdóttir, Bjarki Kristjánsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
INGIMARS HÓLM GUÐMUNDSSONAR
úrsmíðameistara,
Skaftahlíð 40.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins að Boðaþingi fyrir
frábæra umönnun og hlýju.
Valdimar Ingimarsson, Lára Axelsdóttir,
Þormar Ingimarsson, Þórunn Stefánsdóttir,
Elsa Ingimarsdóttir, Halldór Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.