Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 227. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Spice Girls á formalíni? 2. Ostapchuk þarf að skila gullinu 3. Logi: Þetta snýst ekki um mig 4. Þétt setin rúta vó salt á vegbrún »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söngvarinn Þór Breiðfjörð mun fyr- ir jól senda frá sér einsöngsplötu sem Þórir Baldursson stjórnar upp- tökum á en Geimsteinn gefur plötuna út. Þór er með ýmislegt annað á prjónunum, mun m.a. syngja hinn 31. ágúst með Stórsveit Reykjavíkur í Eldborg í Hörpu, á tónleikum tileink- uðum Stórsveit Glenn Miller. Þór Breiðfjörð vinnur að einsöngsplötu  Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur fylgt eftir breið- skífu sinni Long Pair Bond á tón- leikum í sumar, lék m.a. í níu ríkj- um Bandaríkjanna í júní og er á leið á Jazzhátíð Óslóar þar sem það leikur með saxófónleik- aranum Tore Brunborg. Að því loknu heldur tríóið til Akureyrar og leikur á Græna hattinum 16. ágúst kl. 21. Tríó Sunnu Gunn- laugs í níu ríkjum  80 kvikmyndagerðarmenn frá ýms- um löndum sóttu um að taka þátt í Kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík, RIFF, í ár og hafa umsækjendur aldrei verið fleiri. Í fyrra sóttu 38 um. Í smiðjunni er m.a. boðið upp á fyrirlestra og handritavinnu. Um- sjónarmaður smiðj- unnar er Marteinn Þórsson. Metaðsókn að Kvik- myndasmiðju RIFF Á miðvikudag Austan 3-10, en hægari breytileg átt vestantil. Dá- lítil rigning á Suðaustur- og Austurlandi, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 12-22 stig, hlýjast norðan- og vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s, en hvassara í fyrstu suð- austantil. Rigning með köflum, en þurrt að mestu norðan- og norð- vestanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi. VEÐUR Karlalandsliðið í körfubolta mætir einu sterkasta liði Evrópu í Laugardalshöllinni í kvöld. Þá mætast Ísland og Serbía í fyrsta leiknum í undankeppni Evrópumóts- ins sem nú er með nýju sniði. „Þó að leikurinn verði mjög erfiður verður gaman fyrir alla körfubolta- áhugamenn að sjá svona lið spila,“ segir landsliðsmað- urinn Hlynur Bæringsson. »2 Ísland mætir einu besta liði Evrópu Jóhannes Karl Guðjónsson, fyrirliði Skagamanna, er leikmaður 15. um- ferðarinnar í fótboltanum hjá Morg- unblaðinu. Hann segir að á Akranesi rói allir í sömu átt og hann sé afar glaður yfir því að hafa flutt heim eftir langa dvöl sem atvinnumaður erlend- is og geta tekið þátt í upp- byggingunni sem þar á sér stað. »4 Glaður að geta tekið þátt í uppbyggingunni Knattspyrnumaðurinn Davíð Þór Við- arsson skrifar undir hjá danska B- deildar liðinu Vejle-Kolding í dag en hann hefur spilað með sænska B- deildar liðinu Östers undanfarin þrjú ár. Östers er langefst í deildinni og sigl- ir hraðbyri upp í sænsku úrvalsdeildina en liðið gerði ekki nóg til að halda Davíð sem flytur sig nú um set. »1 Davíð Þór fer ekki með Östers í efstu deild ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Líney Sigurðardóttir lineysig@simnet.is Rennilega seglskútan Belladonna lagðist upp að kantinum í höfninni á Þórshöfn eina góðviðrisnóttina á dögunum og var skemmtilegt mót- vægi við stóru síldar- og makríl- veiðiskipin sem biðu þar löndunar. Írinn Finbarr Murphy var einn á þessari 17 metra löngu, steinsteyptu skútu, sem vaggaði mjúklega á lygn- um sjónum og virtist ekki byggð úr svo þungu efni. Murphy, sem er af gelískum upp- runa, er 72 ára og skútan er með öfl- uga vél svo hann er ekki alveg háður seglunum. Hann er hættur til sjós sem atvinnumaður en siglir nú um heimsins höf sér til ánægju á skút- unni sinni og lifir á tekjum af búgarði sínum á Írlandi. Murphy ætlar að sigla við Ísland og er ákveðinn í að hafa vetursetu á Ísafirði. „Börnin mín voru hissa á að ég ætlaði ekki að vera heima en ég ætla ekki að sitja einn við gluggann í stóra húsinu mínu á Írlandi og bíða eftir að barnabörnin og börnin komi í heimsókn,“ segir hann. Vönduð upplýsingaskráning Murphy situr ekki auðum hönd- um, heldur er hann að útbúa skrá sem nýtast mun bæði honum og öðr- um sjófarendum. Hann safnar skipu- lega upplýsingum í hverri höfn um aðstöðu og þjónustu og segir slíkar upplýsingar vanta um hafnir Íslands. Skrá Murphys er mjög skipulega uppsett í dálka þar sem hann merkir inn þau atriði sem eru til staðar og hvað vantar eða er óljóst. Hann nefn- ir sem dæmi að í allflestum höfnum Íslands sé ekki hægt að fá skýr svör um hver kostnaðurinn sé við að láta skútu liggja í höfn í lengri eða skemmri tíma. Murphy finnst að upplýsingar á netsíðum þurfi að vera nákvæmar og ef þjónusta eins og t.d. sundlaug er í allnokkurri fjarlægð frá bænum þurfi það að koma fram. „Það ganga ekki allir 12 km leið til að fara í sund,“ bendir hann á. Glöggt er gests augað og Murphy segir að þarna sé upplagt tækifæri til atvinnusköpunar til dæmis í ferða- þjónustu. „Varast verður þó að verð- leggja þjónustu hafnanna of hátt, því ferðafólkið á skútunum kemur í land og eyðir þar gjaldeyri, sem eru líka tekjur fyrir bæjarfélagið.“ Murphy hefur sterkar taugar til Íslands. „Írar og Íslendingar eru andlega skyldir og hjörtu þeirra slá í sama takti. Hér finn ég anda for- feðra minna sem settust hér að í fyrndinni. Hér finn ég írska sál,“ sagði Íslandsvinurinn Finbarr Murphy. Aldraður „unglingur“ á skútu  Sigldi einn frá Írlandi og verður á Ísafirði í vetur Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Skútuskipstjórinn „Börnin hafa gott af að alast upp í friðsælu sjávarþorpi,“ segir Finbarr Murphy. Finbarr Murphy er af gelískum uppruna og nafn hans merkir sjó- hundur eða sæúlfur. Þessi reyndi heimshornaflakkari hefur mjög ákveðnar skoðanir á ýmsum mál- um, ekki síst því sem tengist fisk- veiðum og fiskveiðistjórnun eftir fjörutíu ára sjómennsku og var ákafur í að koma þeim á framfæri. „Landið ykkar er yndislegt, ekki eftirláta öðrum þjóðum yfirráð eða ítök af neinu tagi og alls ekki ganga í Evrópusambandið,“ sagði skipstjórinn Finbarr Murphy sem álítur aðild að ESB ekki hafa verið Írum til góðs varðandi sjávar- útveginn. „Þið eruð lítil þjóð og ykkar miklu verðmæti eru frelsið, víðáttan og þessi dásamlega nátt- úra. Aðrar þjóðir eru fyrir löngu búnar að sjá það, svo verið með- vituð um það sem þið eigið og haldið utan um það – sjálf,“ segir Finbarr Murphy. Ekki fara í Evrópusambandið MURPHY DÁSAMAR FRELSI, VÍÐÁTTU OG NÁTTÚRU LANDSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.