Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Bíólistinn 10.-12. ágúst 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Brave The Dark Knight Rises Intouchables Total Recall Ísöld 4: Heimsálfuhopp Seeking A Friend For The End Of TheWorld Ted Madagascar 3 Killer Joe Amazing Spider-Man Ný 1 2 Ný 3 Ný 4 5 7 6 1 3 9 1 5 1 5 9 2 7 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Teiknimyndin Brave, sú nýjasta frá Pixar-smiðju Disney, er sú sem mestum miðasölutekjum skilaði kvikmyndahúsum um helgina. Í henni segir af óstýrilátri prinsessu sem biður galdranorn að breyta móður hennar og verður hún fyrir vikið að skógarbirni. The Dark Knight Rises fellur niður um eitt sæti á lista en yfir 52.000 miðar hafa nú verið seldir á þá kvikmynd Christophers Nolans um Leðurblökumanninn. Franska kvikmyndin Intouchables nýtur enn mikilla vinsælda, nær 49.000 miðar hafa verið seldir á hana og hefur hún nú verið sýnd í níu vikur. Bíóaðsókn helgarinnar Sú hugrakka sigraði Leðurblökumanninn Álög Prinsessan Merida kemst í vandræði í teiknimyndinni Brave. Woody Allen helduráfram Evrópuflakkisínu í kvikmyndagerð,að þessu sinni með viðkomu í Rómaborg og er útkoman nýjasta mynd leikstjórans sem nefnist To Rome with Love. Í myndinni segir af ólíku fólki úr öll- um áttum lífsins sem á það sameig- inlegt að vera statt í Rómaborg, annaðhvort sem ferðamenn eða íbú- ar. Flestar aðalpersónur mynd- arinnar eiga það einnig sameig- inlegt að vera í einhvers konar ástarhugleiðingum eða leiðöngrum, eins og titill myndarinnar gefur til kynna. Í fyrri hluta myndarinnar kynnir Allen til sögu ýmsar áhugaverðar og skondnar persónur, sem lofa góðu. Þá er það helst óuppgötvaði ítalski óperusöngvarinn Giancarlo, ítalski meðalmaðurinn Leopoldo og vænd- iskonan Anna sem vekja athygli og hlátur áhorfenda. Í seinni hluta myndarinnar fjarar hinsvegar söguþráðurinn fljótt út og verður að vissu leyti fyrirsjáanlegur og oftar en ekki laus við umhugs- unarverðar úrlausnir á ástar- flækjum Ítalanna og bandarísku ferðamanna. Eflaust verða sumir aðdáendur leikstjórans Woody Allens fyrir von- brigðum á þessari mynd, og þá sér- staklega þeir aðdáendur sem kann- ast við snúnar og langar samræður, og taugaveiklaðar og vonlausar per- sónur sem einkenna margar af eldri myndum leikstjórans. Ítalski skrif- stofumaðurinn Leopoldo sem einn daginn vekur athygli allra ítalska fjölmiðla og verður frægur yfir nótt minnir í ákveðnum senum örlítið á yngri Allen úr eldri myndum hans. Ekki er laust við að þar sé ítölsk út- gáfa af taugaveikluðum ungum mönnum sem einkennir oftar en ekki karlkyns aðalpersónu úr eldri myndum leikstjórans, sem oftar en ekki er leikin af honum sjálfum. Yfirhöfuð er þó erfitt að horfa á nýrri myndir Allens með þær eldri sem samanburð. Það er varla skrýt- ið að myndir Allens hafa breyst eftir áratuga langan feril við kvikmynda- gerð og því að vissu leyti óraunhæft að búast við því sama frá leikstjór- anum ár eftir ár. Í myndinni eru ýmis góð og fynd- in atriði og sumar persónurnar vekja bæði vorkunn og hlátur áhorf- enda. Við það má bæta að fyrir þá sem ekki hafa ferðast til eilífu borg- arinnar er myndin ágætiskynning á helstu viðkomustöðum borgarinnar. En í heild skilur myndin lítið eftir annað en nákvæmlega það. Nokkur góð atriði og snögg svipbrigði af fyndnum persónum en fátt sem stendur upp úr í lokin. Framhjáhald Allen setur vangaveltur um siðferði á hvíta tjaldið þegar nýgiftur ítalskur maður sem Alessandro Ti- beri leikur heldur fram hjá eiginkonu sinni með vændiskonunni Önnu sem Penélope Cruz túlkar. Ástarflækjur Woody Allens í borginni eilífu Háskólabíó og Borgarbíó. To Rome with Love bbmnn Leikstjórn og handrit: Woody Allen. Að- alhlutverk: Judy Davis, Alison Pill, Pené- lope Cruz, Woody Allen, Alec Baldwin, Roberto Benigni, Greta Gerwig, Ellen Page, Jesse Eisenberg, Flavio Parenti, Alessandra Mastronardi. 112 mín. Bandaríkin, Spánn, Ítalía, 2012. LÁRA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR EGILSHÖLL VIP 12 12 12 L L L L L L L L ÁLFABAKKA 12 12 12  KVIKMYNDIR.IS  HOLLYWOOD REPORTER  SÉÐ OG HEYRT  MBL BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 2D SEEKING A FRIEND... KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES KL. 3 - 6:30 - 8 - 10 2D DARK KNIGHT RISES VIP KL. 3 - 6:30 - 10 2D MAGIC MIKE KL. 10:20 2D MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 3:40 2D KRINGLUNNI L L 12 12 BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 5 2D SEEKING... KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT... KL. 7 - 8 - 10:30 2DSELFOSSI 12 12 SEEKING A FRIEND... KL. 5:50 - 8 2D DARK KNIGHT RISES KL. 4 - 8 - 10:10 2D UNDRALAND IBBA ÍSL.TALI KL. 6 2D DARK KNIGHT RISES 2D KL. 3 - 6:10 - 8 - 9:20 - 10 - 11:10 TOTAL RECALL 5:20 - 8 - 10:30 2D TED KL. 7:30 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:20 - 5:40 2D ÍSÖLD 4 ÍSL.TALI KL. 3 2D MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 5 2D L 12 12 AKUREYRI SEEKING A FRIEND.. KL. 6 - 8 - 10:10 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 6 3D DARK KNIGHT RISES KL. 8 2D Sýnd með íslensku og ensku tali – sýnd í 2D og 3D Frá Framleiðendum Toy Story 3, Finding Nemo og Up.  - Miami Herald - Rolling Stone - Guardian - Time Entertainment 53.000 GESTIR Á 19 DÖGUM STÆRSTA MYND ÁRSINS b.o. magazine e.t. weekly STEVE CARELL KEIRA KNIGHTLEY KEFLAVÍK L L 12 12 12 12 TOTAL RECALL KL. 8 2D DARK KNIGHT RISESKL. 10:30 2D SEEKING A FRIEND KL. 8 - 10:10 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 3D UNDRALAND IBBA ÍSL.TALI KL. 6 3D TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG í öllum stær›um á hagstæ›u ver›i. Afar au›velt í uppsetningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.