Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Guðný Benediktsdóttir tekur við
starfi framkvæmdastjóra Líflands/
Kornax um næstu mánaðamót. Guðný
lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Ís-
lands með áherslu á stjórnun og rekst-
ur og MBA frá Colorado State Univers-
ity. Hún hefur fjölbreytta reynslu af
stjórnun úr ólíkum greinum atvinnulífs-
ins. Síðast gegndi hún starfi forstöðu-
manns gæða- og öryggismála hjá Sjóvá,
segir í tilkynningu. Lífland er einn
stærsti framleiðandi og þjónustuaðili
fóðurvara á Íslandi. Kornax er stærsti
framleiðandi og þjónustuaðili með
kornvörur, hveiti og aðrar vörur tengdar
bakaríum og bökun almennt.
Guðný ráðin yfirmaður
● Seðlabanki Íslands þarf að halda
áfram að hækka stýrivexti á þriggja
mánaða fresti til að tryggja nauðsyn-
legt taumhald peningamálastefnunnar.
Þetta segir Daria V. Zakharova, yfir-
maður sendinefndar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins gagnvart Íslandi, í samtali við
Bloomberg fréttastofuna.
Hún segir efnahagsbatann hafa kom-
ið á óvart og landið sé skólabókardæmi
fyrir ríki sem hefur verið bjargað. Það
hafi einnig verið rétt að láta bankana
fara í þrot og kröfuhafa taka skellinn.
Ísland þarf að hækka
stýrivexti segir AGS
Yfirtaka á starfsemi Icelandic USA
olli því að hagnaður kanadíska sjáv-
arútvegsfyrirtækisins High Liner
Foods á öðrum ársfjórðungi minnk-
aði mikið milli ára. Kostnaður jókst
meðal annars vegna samþættingar á
félögunum. Hagnaðurinn minnkaði í
milljón dollara, jafnvirði 120 milljón-
ir króna, úr 4,8 milljónum dollara á
sama tíma fyrir ári. Þetta kemur
fram í frétt The Canadian Press.
High Liner keypti starfsemi Ice-
landic USA skömmu fyrir áramót.
Heildarsöluverðmætið var 230 millj-
ónir dollara, sem á þeim tíma nam
26,9 milljörðum króna.
Icelandic Group seldi starfsemi
fyrirtækisins í Bandaríkjunum og
tengda innkaupa- og framleiðslu-
starfsemi í Asíu. Icelandic Group
mun áfram eiga vörumerkið Ice-
landic Seafood en kaupandi hefur
rétt til notkunar á því í Bandaríkj-
unum, Kanada og Mexíkó næstu sjö
árin. Þá hefur High Liner gert lang-
tímasamning við Icelandic Group um
kaup og dreifingu á íslenskum sjáv-
arafurðum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kaup Kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið High Liner keypti starfsemi Ice-
landic USA fyrir áramót. Heildarsöluverðmætið var 230 milljónir dollara.
Yfirtakan dregur
úr hagnaði
Keypti starfsemi Icelandic USA
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Þrátt fyrir að Malcolm Walker hafi
látið hafa það eftir sér í fjölmiðlum um
helgina að hann sé ekki hluthafi að
versluninni Iceland, sem var opnuð
nýverið, þá segir Jóhannes Jónsson,
stofnandi verslunarinnar, í samtali við
Morgunblaðið að slíkt standi til – enn
sé þó verið að ganga frá allri pappírs-
vinnu. Samkvæmt upplýsingum frá
Creditinfo var Jóhannes skráður með
100% eignarhlut í Ísland-Verslun ehf.
í lok júnímánaðar, en það er eignar-
haldsfélagið utan um verslunina.
Verður hluthafi
„Hann [Walker] verður hluthafi
með mér. Það er bara ekki búið að
ganga frá öllum pappírum. Hann var
því ekki að svara já við einhverju sem
ekki var orðið,“ segir Jóhannes Jóns-
son, stofnandi matvöruverslunarinn-
ar Iceland í Kópavogi, í samtali við
Morgunblaðið. Hann hefur sagt við
fjölmiðla að þeir Walker muni eiga
verslunina saman. „Eignarhaldið
verður eins og ég hef alltaf sagt að
það verði.“
Styðja Jóhannes dyggilega
Walker var gestur spjallþáttarins
Klinksins á Visir.is á sunnudaginn og
var spurður hvort hann ætti hlut í ís-
lensku versluninni eða hvort hún væri
rekin með sérleyfi (e. franchise).
„Hvorugt. Eins og sakir standa höf-
um við sagt að við ætlum að styðja
hann [Jóhannes] eins vel og við get-
um, þetta er fyrsta búðin [hér á landi],
prufubúð, við sjáum hvert þetta leið-
ir,“ sagði hann og bætti við: „Við mun-
um styðja hann dyggilega.“
Fyrirtækið sem rekur Iceland
verslunina í Kópavogi heitir Ísland-
verslun ehf. Jóhannes er í eigin nafni
skráður fyrir öllu hlutafénu.
Verslunin verður ekki rekin með
sérleyfi. „Við borgum fyrir Iceland
nafnið með því að kaupa vörurnar af
þeim,“ segir Jóhannes.
Walker stofnaði Iceland árið 1970.
Hann hætti árið 2001 en stjórnendur
Baugs Group réðu hann sem forstjóra
fyrirtækisins árið 2005. Fyrr á þessu
ári leiddi Walker yfirtöku á félaginu
fyrir á þriðja hundrað milljarða
króna.
Eins og fæðing hjá konu
Jóhannes opnaði Iceland versl-
unina í lok júlí í Engihjalla í Kópavogi.
Í Sunnudagsmogganum síðasta kom
fram að Jóhannes væri alsæll með
viðtökur. Honum hefði borist hundr-
uð kveðja og hann fengið senda ótal
blómvendi. „Þetta var eins og við fæð-
ingu hjá konu,“ sagði hann.
Walker ekki enn
hluthafi í Iceland
„Það er bara ekki búið að ganga frá öllum pappírum“
Alsæll Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, opnaði Iceland verslun í lok júlí
í Engihjalla í Kópavogi. Hann er ánægður með viðtökurnar eftir opnun.
Morgunblaðið/RAX
Walker verður hluthafi
» Malcolm Walker, stofnandi
bresku matvörukeðjunnar Ice-
land, er ekki á hluthafalista
Iceland í Kópavogi.
» Jóhannes Jónsson, stofn-
andi Iceland, hefur sagt að þeir
Walker muni eiga fyrirtækið
sem rekur Iceland hér á landi
saman.
» Walker sagði í viðtali við
Klinkið að hann væri ekki hlut-
hafi í Iceland í Kópavogi.
» Jóhannes segir að það sé
ekki búið að ganga frá öllum
pappírum. Walker muni eiga
hlut í fyrirtækinu.
Það dró úr hag-
vexti í Japan á
öðrum ársfjórð-
ungi en erfið-
leikar á evru-
svæðinu drógu
úr útflutningi
og heimamark-
aðurinn má
muna sinn fífil
fegri. Lands-
framleiðsla
jókst um 0,3%
tímabilinu en
var 1% á fyrsta fjórðungi. Á sama
tíma fyrir ári jókst hagvöxtur um
1,4%, segir í frétt BBC.
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
hafa varað við því að hagvöxtur í
Japan geti dregist enn frekar sam-
an á næstu mánuðum vegna óvissu
um efnahagsmál heimsins.
Helstu útflutningsmarkaðir Jap-
ans eru Bandaríkin og evrusvæðið,
en Bandaríkin glíma einnig við
efnahagsvanda. helgivifill@mbl.is
Hægir á
hagvexti
í Japan
Rignir Blæs ekki byr-
lega fyrir Japönum.
Spá erfiðleikum
Handbært fé frá rekstri var nei-
kvætt um 19,2 milljarða á fyrstu
sex mánuðum ársins að því er fram
kemur í greiðsluuppgjöri ríkis-
sjóðs. Er þetta lækkun úr 29,7 millj-
örðum á sama tíma í fyrra og segir í
tilkynningu frá fjármálaráðuneyt-
inu að þetta sé „betri niðurstaða en
gert var ráð fyrir í áætlunum“. Þar
var áætlað að handbært fé frá
rekstri yrði neikvætt um 46,1 millj-
arð. Tekjur reyndust 37,8 millj-
örðum hærri en í fyrra á meðan
gjöldin jukust um 19,4 milljarða.
Miðað við áætlanir hækkuðu tekjur
um 17,6% milli ára.
Betri afkoma
ríkissjóðs
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+/0-12
+.1-.
+,-03
.1-+++
+0-/24
+..-3+
+-5.35
+0,-,.
+24-/0
++,-2,
+/0-2,
+.1-55
+,-0//
.1-+0
+0-/,/
+..-45
+-5./
+/1-24
+20-./
.14-52.,
++,-00
+/0-,2
+.1-,
+,-/24
.1-..,
+0-,5
+..-,,
+-53.5
+/+
+20-4,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á