Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sérstök rann-sókn-arnefnd hefur skilað skýrslu um hermdarverk Breiviks í Osló og Útey og ekki síst um við- brögð þeirra sem gæta áttu öryggis og sjá um forvarnir og um viðbrögðin sem urðu þegar það fór að renna upp fyrir yfirvöldum og almenn- ingi hvílíkur óhugnaður var á ferðinni. Frásagnir fjölmiðla af helstu niðurstöðum skýrsl- unnar virðast staðfesta að mjög margt hafi þá farið úr- skeiðis. Slíkt hendir auðvitað oft, en hin fjölmörgu mistök og klaufagangur sem skýrsl- an greinir frá eru nú skoðuð í ljósi hinna miklu afleiðinga. Það er ekki óeðlilegt en ekki endilega fyllilega sanngjarnt. Noregur er sjálfsagt á alla mælikvarða í hópi mestu frið- semdarríkja, og fóstrar land- ið sjálf friðarverðlaun Nób- els. Skýrsluhöfundar fullyrða engu að síður að yfirvöld hafi mátt vita, m.a. vegna reynslu annars staðar frá að slíkir at- burðir þyrftu ekki að þykja svo fjarlægir Noregi að nán- ast þætti óþarft að gera ráð fyrir þeim. Og raunar kemur einnig fram að aðgerðaráætl- anir vegna hryðjuverka voru til og meira að segja ný- yfirfarnar áður en ódæðið var framið. En aðgerðaráætlanir af slíku tagi eru sennilega stór- lega ofmetnar af skriffinnum sem um þær fjalla. Þegar við- brögðin verða að mælast í mínútum gera áætlanir ofan í smáatriði sennilega lítið gagn eða ekki nokkurt. (Íslend- ingum hefur stundum verið bent á að þeir eigi að skoða einhverjar blaðsíður í síma- skránni til að sjá hvernig best sé að bregðast við jarð- skjálfta). Æfingar þrautþjálf- aðs liðs, fjöldi þess og bún- aður skiptir meira máli en þúsund síðna áætlun í möpp- um. Og það á þó einkum við í eftirleiknum eða þegar at- burðarásin er hafin. Í þessu dæmi myndu þær heimildir sem lögregla hefði til að fylgjast með og sann- reyna áform, og að hafa nægilegan sérhæfðan mann- skap til að sinna slíku, hafa haft meiri þýðingu. Ekki síst myndi þó það eiga við ef til- ræðismennirnir hefðu verið fleiri. Einfararnir eru erf- iðastir viðfangs. En eins og alkunna er þá eru hin norrænu lýðræðisríki varfærin mjög þegar að kem- ur að slíkum þátt- um. Þau óttast að nálgast þau ein- kenni lögreglurík- isins sem síst eru eftirsóknarverð. Og víst geta mörkin þarna á milli stundum verið óljós og þá hafa menn viljað láta friðhelgi ein- staklingsins „njóta vafans,“ eins og það er stundum orð- að. Persónunjósnir um menn, jafnvel aðgangsharðar og þar sem höggvið er í einkalíf þeirra, sem ekkert hafa enn gert af sér eru þarna á meðal. Breivik hafði svo sem ekkert gert af sér fyrr en hann lét til skarar skríða. Þó hafði hann á undirbúningstímanum óneitanlega hringt nokkrum aðvörunarbjöllum, þótt ekki væru þær háværar. Það kem- ur fram við skoðun máls hans eftir á. Það gerði hann með framkomu sinni, ummælum, umgengni við tortryggilega hópa og á síðustu stigum einnig með kaupum á varn- ingi, sem í eðli sínu vekur ekki athygli, en getur í magni reynst hættulegur mjög, ásamt kaupum á búnaði sem til þurfti, jafnvel með pönt- unum út fyrir landsteina. En slíkur bjölluhljómur berst ekki til lögregluyfirvalda nema að þau hafi skilyrði og heimildir til að nema hann, meðan hann er veikur. Ekki þarf sérstakt leyfi til að heyra sprengjugnýinn eða skothvelli og gelt morðvopn- anna. Lítill vafi er á að Ísland er ekki vel búið undir atburð af þessu tagi. En má ekki segja með sama hætti og nú er sagt í Noregi að Ísland er ekki endilega með öllu friðhelgt gegn föntum sem einskis svíf- ast? Mikil tortryggni hefur ríkt hér á landi, þegar rætt hefur verið um virkar heimildir lög- reglu til að afla upplýsinga um hugsanlega vá og gera það með því að ganga á frið- helgi og persónuvernd ein- staklinga. Fráleitt er að gera lítið úr slíkum sjónarmiðum. En þau gefa þó ekki ótvíræð- an rétt til að forðast með öllu að horfast í augu við þá ógn, sem kann að vera til staðar. Á meðan menn hafa enn tíma er því nauðsynlegt að vega og meta alla þessa þætti upp á nýtt, eiga um þá opna og hreinskilnislega umræðu m.a. í ljósi hinnar bitru reynslu Norðmanna. Það gildir í þessum efnum sem öðrum: Ekki er tryggt eftir á. Norska skýrslan um hermdarverk Brei- viks þarf að leiða til umræðu hér} Flýjum ekki umræðuna Þ að sátu eflaust margir andaktugir fyrir framan sjónvarpsskjáinn á sunnudagskvöldið og fylgdust með lokaathöfn Ólympíuleikanna í London. Þvílík veisla fyrir augu og eyru og gleðin skein úr hverju andliti. Athöfnin náði að endurspegla það sem Ólympíuleikarnir standa fyrir: gleði, frið, ást, hamingju, virðingu og samstöðu. Við erum öll eitt. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með keppni á Ólympíuleikunum síðasta hálfan mánuðinn. Það var alveg sama á hvaða íþrótta- grein var horft, allar urðu þær áhugaverðar og skemmtilegar áhorfs því metnaðurinn og keppnisgleðin skilaði sér í gegnum skjáinn. Yfir 10.000 keppendur frá 204 löndum tóku þátt í leikunum í London í ár. Þrátt fyrir þann gríðarlega fjölda bæði keppenda og áhorfenda sem var á staðnum virðast þeir hafa gengið áfallalaust fyr- ir sig. Ef frá eru taldir nokkrir íþróttamenn sem nota ólög- leg lyf eða vilja ekki vinna viðureignir sínar ríkir hinn sanni íþróttaandi á leikunum, allir eru vinir þrátt fyrir hina miklu keppni. Á Ólympíuleikum sýnum við mannkynið að við getum staðið saman sem eitt og til þess þarf ekki annað en íþróttamót. Í kjölfarið verður enn erfiðara að horfa til þeirra átaka sem eiga sér stað víða um heim. Á meðan met voru slegin í London bættist enn í tölu lát- inna í Sýrlandi. Þaðan berast stanslausar fréttir af átökum og mannréttindabrotum. Almennir borgarar eru stráfelld- ir á meðan þeir bíða í röð eftir brauði og sprengjuregninu linnir ekki á híbýli þeirra. Friður í Sýrlandi virðist langt undan og þegar Kofi Annan sagði af sér sem sérlegur sendi- maður Sameinuðu þjóðanna og Arababanda- lagsins til að koma á friði í Sýrlandi dofnaði vonarneistinn. Friðarumleitanir mistókust og eru Kínverjar og Rússar sagðir hafa hindrað að þær bæru árangur. Annan fékk ekki nægan stuðning til að koma á friði og ef Annan gat það ekki hver getur það þá? Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að til séu þjóð- arleiðtogar sem standi í vegi fyrir því að friður komist á í Sýrlandi. Það þýðir víst lítið að segja valdamönnum heimsins, stríðsherrum, gróðapungum og morðingjum að hætta að haga sér svona, líta málið skynsömum augum, bera virðingu fyrir mannslífinu og stuðla að friði og jöfnuði í heiminum. En af hverju þarf hin „barnslega“ hugsun um allsherjar frið í heiminum að vera svo fjarlæg? Hinn jákvæði alheimsandi sem sveif yfir Ólympíuleikunum er ekki fjarlægur. Við urðum vitni að honum í London á síðustu vikum og hvers vegna ekki að hugsa um hann í stærra samhengi. Jörðin er einn stór ólympíuleikvangur, við keppum þar öll um að halda í okkur lífinu. Við eigum öll að hafa í háveg- um virðingu fyrir hinum keppendunum og leikvanginum sjálfum því aðrir munu halda áfram keppni eftir að við höf- um komist í mark. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Með „barnslegri“ von um frið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon konar, að sögn Hreins. Fyrst og fremst er litið á brúarvinnuflokk- ana sem hluta af viðbragðskerfi þjóðarinnar vegna náttúruham- fara. Mikilvægt er talið að hafa aðgang að þaulæfðum mönnum sem hægt er að kalla til starfa með stuttum fyrirvara þegar halda þarf vegunum opnum. Nýj- asta dæmið er þegar brúin fór af Múlakvísl á síðasta ári. Einnig nefnir Hreinn að oft hafi þurft að grípa til þessara flokka þegar orð- ið hafa minni flóð sem ekki teljist til náttúruhamfara. Hreinn bætir því við að Vega- gerðin þurfi að ráða yfir ákveðinni verkþekkingu til að geta samið við verkfræðistofur og verktaka. Hún fáist með rekstri lítilla vinnu- flokka. Hreinn tekur fram að Vegagerðin haldi nákvæmt bók- hald yfir eigin verk og aðkeypt og hafi því ágætan samanburð. Erfitt væri að réttlæta rekstur um- ræddra vinnuflokka ef hann væri mikið dýrari en á almennum verk- takamarkaði. Eigin heflar meira notaðir Breyttar áherslur koma að einhverju leyti fram í tækjaeign Vegagerðarinnar en þó ekki að öllu leyti. Vörubílarnir hafa allir verið seldir. Enn eru sextán veg- heflar hjá Vegagerðinni og hefur notkun þeirra aukist. Þannig voru útseldir tímar heflanna tæplega 11.400 tímar á síðasta ári, rúmum þúsund tímum fleiri en á árinu á undan. Tveir heflanna hafa verið endurnýjaðir á allra síðustu árum, báðir með kaupum á notuðum tækjum. Eigin vinnuflokkar nota 2-3% vegafjár Fjöldi tækja hjá Vegagerðinni Heimild: Vegagerðin *áætlaður fjöldi í árslok Tækjafl. / Ár 1990 1996 2002 2006 2010 2012 Smábílar 105 120 110 110 112 110* Vörubílar 19 18 15 3 0 0 Þjónustubílar 2 11 15 15 16 15* Vegheflar 54 38 33 26 23 16* FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is V egagerðin hefur á und- anförnum árum haft þá stefnu að draga úr almennri tækjaeign og kaupa þjónustuna frekar að. Hefur það að einhverju leyti gengið eftir. Þannig eru engir vörubílar lengur í eigu stofnunarinnar og vegheflum hef- ur fækkað. Vinnuflokkar sem Vegagerðin enn rekur taka til sín um 2-3% af viðhalds- og fram- kvæmdafé. Vegagerðin rak lengi eigin vinnuflokka og átti sjálf töluvert af tækjum og sinnti þannig veru- legum hluta framkvæmda. Með auknum útboðum kom í ljós að hagkvæmara var að bjóða verkin út og átti það þátt í því að al- mennir vinnuflokkar voru lagðir af. Nú er meginhluti verka boð- inn út. Enn eru þó reknir tveir litlir brúarvinnuflokkar allt árið og einn vinnuflokkur yfir sumarið sem sinnir yfirborðsmerkingum vega. Vinnuflokkarnir eru að stórum hluta við viðhalds- og þjónustuverkefni en að einhverju leyti einnig við nýbyggingar. Vinnuflokkarnir hafa unnið verkefni fyrir 450 til 650 milljónir á ári, á undanförnum árum. Er það lágt hlutfall af fjármunum sem Vegagerðin hefur til þjón- ustu, viðhalds og nýframkvæmda, eða um 2-3%. Hlutfallið sveiflast aðeins til á milli ára og fór í 3,7% á árinu 2011 vegna kostnaðar við gerð bráðabirgðabrúar yfir Múla- kvísl og verulegrar lækkunar framlaga til vegagerðar almennt. Vegagerðin reynir að nýta sem best þá vinnuflokka sem hún er með, halda þeim að verki þótt samdráttur sé í fjárveitingum en Hreinn Haraldsson vega- málastjóri segir að verk þeirra séu svo lágt hlutfall af verkefnum Vegagerðarinnar að þau skipti engu máli á verktakamarkaðnum í heild. Hluti af viðbragðskerfi Rökin fyrir því að halda úti eigin vinnuflokkum, sérstaklega brúarvinnuflokkum, eru tvenns- Vegagerðin á 110 smábíla sem notaðir eru í starfsstöðvum Vegagerðarinnar um allt land til að fylgjast með ástandi vega og til smáviðhalds. Bílafjöldinn er svipaður og verið hefur undan- farin ár. Vegna samdráttar í verkefnum var dregið úr endurnýjun smábíl- anna en vegamálastjóri segir að á móti hafi þurft að kaupa nokkra bíla eftir hrun, þegar rík- ið sagði upp föstum aksturs- samningum við ríkisstarfsmenn. Vegagerðin kaupir í ár 16 nýja smábíla í stað eldri bíla sem verða seldir. Er það svipuð end- urnýjun og undanfarin ár. Tveir nýir þjónustubílar hafa verið keyptir eða verða keyptir í ár til endurnýjunar eldri bíla. Áætlað er að 15 slíkir bílar verði í þjónustu stofnunarinnar í árslok. Vegagerðin á 110 smábíla TÆKI ENDURNÝJUÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.