Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is … Heilsurækt fyrir konur Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði. Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca. 3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari núna. Curves er frábær staður með frábæru starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að æfa þegar það passar mér best. Paula HolmPaula Holm, 40 ára Það eru alltaf þjálfarar þér til aðstoðar Fyrir fjórum árum birtist í Bændablaðinu grein um vegagerð á Norðurlandi. Talað er um hvernig haga eigi vegtengingu milli höfuðborgarsvæðisins og Norðurlands. Stofnað var félagið Greið leið ehf. sem hefur það að markmiði að byggja hálendisveg milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fram kom í Gallup- könnun að mikill meirihluti lands- manna, þrír af hverjum fjórum taka veggöng á hringveginum sem tengja saman byggðir landsins fram yfir hálendisvegina. Á snjóþungu og illviðrasömu svæði er vegagerð í 900 m hæð vitlaus framkvæmd sem menn iðrast síðar meir. Þarna er kastljósinu beint að ákveðinni út- færslu sem af einhverjum ástæðum er ekki fyrirferðarmikil í um- ræðunni. Engu svara þingmenn Norðlendinga sem spurðir eru um hvort grafa eigi göng undir Trölla- skaga. Tveir sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi eystra og vestra við- urkenna að jarðgöng úr Hjaltadal yfir í Hörgárdal styrki byggðir Eyjafjarðar og Skagafjarðar enn betur en hálendisvegurinn og hin umdeildu Héðinsfjarðargöng. Öll rök hníga að því að útboð Vaðla- heiðarganga á þessu kjörtímabili sé ótímabært eftir að fulltrúar Alcoa tóku ákvörðun um að afskrifa stór- iðjuframkvæmdir við Skjálf- andaflóa. Án jarðganganna undir Vaðlaheiði samþykkja þeir aldrei þessar álversframkvæmdir fyrir norðan. Með þeim framförum sem orðið hafa í jarð- gangagerð verður það aldrei talið forsvar- anlegt að aðalleiðin um landið liggi í 500 til 600 m hæð yfir sjó. Um tvennt stendur valið ef Eyjafjörður og Skagafjörður verða eitt atvinnusvæði, það eru veggöng í þremur álmum úr Hjaltadal yf- ir í Hörgárdal og Skíðadal. Annar mögu- leiki er að gerð verði styttri göng undir Hjaltadalsheiði og í beinu framhaldi önnur jarðgöng sem kæmu út sunn- an við Háls í Öxnadal. Undir heið- ina yrðu göngin tekin úr botni Hörgárdals og gætu staðið 200-300 m neðar en vegurinn á Öxnadals- heiði sem fer hæst í 540 metra hæð. Samkvæmt útreikningum sem gerð- ir voru fyrir aðalskipulag Skaga- fjarðar yrðu veggöng milli Hofsdals og Barkárdals 16 til 20 km löng og stæðu í 200-300 m hæð. Talið er að þrýstingur á jarðgöng undir snjó- þungar heiðar aukist mjög mikið verði stytting núverandi hringvegar fyrir valinu. Pólitískt áhugaleysi ríkir um þessi göng undir Trölla- skaga sem tengist því að menn telja að Héðinsfjarðargöng hafi bundið hendur sínar. Viðurkennt er af sveitarstjórnunum fyrir norðan og víðar nema í Fjallabyggð að Þver- árfjallsleiðin og veggöngin yfir í Hörgárdal muni auk Vaðlaheiðar- ganga styrkja Skagafjörð, Eyja- fjörð og Þingeyjarsveit enn betur sem öflugt mótvægi við höfuðborg- arsvæðið heldur en veggöngin í Héðinsfirði. Með þessari tengingu verða samskiptin milli byggðanna í Þingeyjarsveit, Eyjafirði, Skaga- firði og Húnaþingi mun greiðari og tengslin auðveldari á milli þéttbýlis- staðanna fyrir norðan. Án jarð- ganga í stað gömlu Múla- og Strákaganganna færist Fjallabyggð aldrei nær hringveginum. Þarna breyta Héðinsfjarðargöng engu sem urðu alltof dýr. Hrun vestan Strákaganga og sunnan Múlaganga yrði verðskuldað kjaftshögg sem hrellir stuðningsmenn Héðinsfjarð- arganga. Hér skal engu frestað. Slíkt væri grátleg refsing fyrir allt gáleysið í góðærinu. Lítilmenni sem öllu vill ráða án þess að hlusta á að- varanir heimamanna fyllist hroka, heimtar meira og síðan hvað? Sið- blindir og fáfróðir landsbyggð- arþingmenn skulu varla svefns njóta þegar aurskriður norðan Dal- víkur eyðileggja tengingu Fjalla- byggðar við Eyjafjörð um ókomin ár. Væri nú ráðherranum vissara að herða enn á með svo sem einni spýju sunnan Múlaganganna og í Almenningum vestan Strákaganga. Engu skeyta stuðningsmenn há- lendisvegarins og Héðinsfjarðar- ganga þegar spurt er hvort heima- menn í Fjallabyggð verði þá að keyra til Akureyrar í gegnum Skagafjörð og um Öxnadalsheiði. Hálendisvegurinn sem stofnendur norðurvegar, Greið leið ehf., KEA og Akureyrarbær fjármagna aldrei verður afskrifaður. Í 800 til 900 m hæð á illviðrasömu og snjóþungu svæði um hálendið tryggir hann aldrei örugga heilsárstengingu byggðanna í Húnaþingi, Skagafirði, Eyjafirði og austan Vaðlaheiðar við höfuðborgarsvæðið. Jarðgöng undir Hjaltadalsheiði Eftir Guðmund Karl Jónsson »Með þeim fram- förum sem orðið hafa í jarðgangagerð verður það aldrei talið forsvaranlegt að aðal- leiðin um landið liggi í 500 til 600 m hæð yfir sjó. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Í blaðinu í gær var grein á bls. 15, Valdníðsla? – eftir Guðrúnu Maríu Valgeirsdóttur og Dagbjörtu Bjarna- dóttur sveitarstjóra og oddvita Skútustaðahrepps. Illa tókst til við vinnslu greinarinnar og komst aftasti hlutinn ekki til skila. Um leið og við biðjum sveitarstjórann, oddvitann og lesendur blaðsins velvirðingar birtum við aftari hluta greinarinnar: Það eru gífurleg vonbrigði að árið 2012 verði orð eins og samráð og íbúalýðræði merkingarlaus. Þetta eru ólíðandi vinnubrögð og það ferli sem rakið hefur verið hér að ofan sýnir það. Íbúar á verndarsvæðinu þurfa að lúta valdi umhverfis- verndaryfirvalda í umgengni um náttúruna og hafa gert það fram til þessa. Heimamenn þekkja svæðið og verðskulda ekki þessa framkomu, þeim er náttúran afar kær og þeir eru meðvitaðir um ábyrgð sína og hafa sýnt frumkvæði gagnvart friðlýs- ingum utan við verndarsvæðið. Hætt er við að breyting verði á og sveitarstjórn Skútustaðahrepps mun endurskoða afstöðu sína og vinnu- brögð í þessum málaflokki. Okkur hugnast ekki að láta hampa náttúru Mývatns og flagga fuglalífi og ein- stæðri náttúru þegar á að laða að ferðamenn eða skrifa undir plögg sem líta dagsins ljós mörgum árum eftir að eðlilegt hefði talist. Í bókun sinni hvatti sveitarstjórn til að haldinn yrði kynningar- og sam- ráðsfundur með íbúum sveitarfélag- anna þriggja, enda mjög mikilvægt að skapa sátt í svo mikilvægu máli. Við því var ekki orðið. Hvers vegna dróst svona úr hófi fram að vinna og setja þessa reglu- gerð? Úr því sem komið var hvers vegna lá skyndilega svona á að keyra reglu- gerðina í gegn í andstöðu við heima- menn? Vilja menn ekki samvinnu og sátt? Væri ekki nær að hefja vinnu við heildstæða stefnu um svæðið og gera það í samvinnu við íbúana? Eins og fram kemur í bókun sveit- arstjórnar Skútustaðahrepps frá 10. maí s.l. munum við ekki bíða eftir að fuglasöngurinn þagni á meðan að yf- irvöld sofa þyrnirósarsvefni, til að- gerða verður gripið með eða án sam- þykkis umhverfisverndaryfirvalda. Til marks um vinnubrögð Um- hverfisráðuneytisins þá fréttu und- irritaðar af því að 25. júlí s.l. ætti líka að staðfest nýja reglugerð um Nátt- úrurannsóknarstöðina við Mývatn, sú reglugerð kom aldrei til umsagnar hjá sveitarstjórn Skútustaðahrepps. Getur verið að málefni Mývetninga komi okkur bara alls ekkert við? Valdníðsla? Dagjört Bjarnadóttir Guðrún María Valgeirsdóttir LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.