Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012 Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Guðrún Vala Matthías- dóttir, Ásgeir Egill Jónsson og Arnar Jónsson söfnuðu skeljum í Maríuhöfn í Hval- firði og seldu fyrir framan Nettó í Salahverfi. Ágóðinn af sölunni var 6.002 krónur og rann hann allur til Rauða krossins. Söfnun Hafnarfjörður Sölva Flókadóttir fæddist 21. nóvember kl. 17.05. Hún vó 4.230 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Jenný Guðmundsdóttir og Flóki Árnason. Nýr borgarar Þarf að klippa? Garðlist klippir tré og slær garða Sími: 554 1989 www.gardlist.is Ég ætla að fara út að borða með eiginmanninum og strákunummínum tveimur,“ segir Hrönn Brynjarsdóttir á Akureyri enhún er fertug í dag. „Það átti að vera stórveisla en ekkert varð úr því. Í staðinn ætla ég að halda upp á 44 ára afmælið með pompi og pragt! Við hjónin vorum í námi í Þýskalandi í sex ár og þar er haldið upp á það sem þeir kalla snafsatölur, 33, 44, 55.“ Eiginmað- urinn er Pálmi Óskarsson heimilislæknir og þau eiga tvo syni, Tuma Hrannar, 14 ára, og Inga Hrannar, átta ára. Hrönn lauk í vor meist- araprófi í líftækni og er nú að leita sér að vinnu. Áður lauk hún BS- prófi í umhverfis- og orkufræði en hún hefur mikla reynslu af rannsóknastofuvinnu. Í Þýskalandi lauk Hrönn sveinsprófi í leir- kerasmíði. „Ég er að verða eins og Georg Bjarnfreðarson, með próf í öllu!“ Hrönn var skáti á yngri árum og segist þá hafa verið upp um fjöll og firnindi. Fjölskyldan hefur mikinn á áhuga á útivist, þau hafa ferðast mikið í sumar og Hrönn og Tumi Hrannar gengu Laugaveg- inn í sextán manna hópi. „Þetta var mjög skemmtilegt og fegurðin stórkostleg. Laugavegurinn er alls ekki erfiður en þetta eru 55 kíló- metrar og maður þarf að vera í þokkalegu formi. Með okkur voru hjón um sextugt frá Toronto. Konan hafði aldrei áður farið í útilegu, keypti sér svefnpoka og bakpoka fyrir ferðina. Þetta tók á hana en hún er hörkudugleg og fór þetta á brosinu.“ kjon@mbl.is Hrönn Brynjarsdóttir er fertug Göngugarpar Hrönn Brynjarsdóttir með yngri syni sínum, Inga Hrannari, í fjallgöngu á Úlfarsfelli í byrjun ágúst. Göngugarpur með próf í líftækni R agnar fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MH 1972 og prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1976. Ragnar var sérfræðingur við hag- deild Iðnaðarbanka Íslands hf. 1976- 78, forstöðumaður þar 1978-79, að- stoðarbankastjóri Iðnaðarbanka Ís- lands hf. 1979-84 og bankastjóri þar 1984-89, framkvæmdastjóri hjá Ís- landsbanka 1990-98, framkvæmda- stjóri Kreditkorts 1998-2007 og hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi frá 2007. Ragnar var framkvæmdastjóri fjármögnunarfélagsins Glitnis hf, samhliða starfi í Iðnaðarbankanum, 1985-87, og stjórnarformaður félags- ins 1992-97, sat í stjórn Reiknisstofu bankanna 1982-90, formaður fram- kvæmdastjórnar Iðnþróunarsjóðs 1985-88, formaður stjórnar Draupn- issjóðsins hf. 1987-95, sat í stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands 1991-94, í stjórn Kreditkorts hf. 1990-98, for- maður stjórnar Verðbréfamarkaðar Íslandsbanka hf. 1986-92 og 1997-98, Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur – 60 ára Á Hvítárbökkum Ragnar með Önundi, syni sínum, á kunnugum veiðislóðum í Borgarfirði, Hvítárvellir í baksýn. Í viðskiptum og laxveiði Barnabörnin Ragnar með Áslaugu Lilju og Sigurjón Kára. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.