Morgunblaðið - 14.08.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
www.falkinn.is
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Háar í mittið
- 3 síddir
Eigum enn góðar buxur á útsölunni
Str. 34 - 56 á 3.900 kr.
Str. 34 - 52
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LÍÐUR AÐ ÚTSÖLULOKUM
50%-70%
AFSLÁTTUR
SUMARKÁPUR – SPARIDRESS
GALLAFATNAÐUR – BOLIR OG M.FL.
Þráinn aðstoðaði
fjallagarpa
Föðurnafn annars aðstoðarmanns
fjallgöngugarpanna sem klifu
Hraundranga í Öxnadal sumarið
1956 var leiðrétt hér í blaðinu fyrir
helgi. Af því tilefni kom í ljós að
þriðji aðstoðarmaðurinn var með í
för þennan ævintýradag, Þráinn
Karlsson, sem síðar varð einn ást-
sælasti leikari þessarar þjóðar.
ÁRÉTTING
Sautján ökumenn voru teknir fyr-
ir ölvunar- og fíkniefnaakstur á
höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Tólf þeirra voru stöðvaðir í
Reykjavík, þrír í Kópavogi og
einn í Garðabæ og Hafnarfirði.
Fimm voru teknir á laugardag,
ellefu á sunnudag og einn aðfara-
nótt mánudags.
Þetta voru þrettán karlar á
aldrinum 21-65 ára og fjórar kon-
ur, 18-35 ára. Tveir þessara öku-
manna höfðu þegar verið sviptir
ökuleyfi og einn hefur aldrei öðl-
ast ökuréttindi.
Tveir höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi
Samkvæmt ársreikningi Hreyfing-
arinnar 2011 var flokkurinn rekinn
með hagnaði það árið. Rekstrar-
tekjur Hreyfingarinnar á árinu 2011
voru 688.578 kr. og rekstrargjöld
109.683 kr. Rekstrarafkoma ársins
var því 583.579 kr. og handbært fé í
árslok var 788.818 kr.
Mikið af styrkjum Hreyfingarinn-
ar kemur frá þingmönnum flokksins,
en að sögn Margrétar Tryggvadótt-
ur, þingmanni Hreyfingarinnar, ber
þingmönnum Hreyfingarinnar engin
skylda til þess að greiða ákveðna
upphæð til flokks-
ins. „Við höfum
haft það þannig
að félag þinghóps
Hreyfingarinnar
hefur styrkt
Hreyfinguna um
ákveðna upphæð
á hverju ári. Svo
er okkur sem ein-
staklingum al-
gjörlega frjálst
hvort við styrkjum flokkinn eða
ekki,“ segir Margrét. pfe@mbl.is
Hreyfingin rekin með
hagnaði árið 2011
Margrét
Tryggvadóttir
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Enn er óvíst skólavist um 371 í fram-
haldsskólum landsins. Engu að síður
hefur gengið vel að koma nemendum í
skólana og þeim fækkar dag frá degi
sem bíða svars. Í síðustu viku voru
um 800 án skólavistar og unnið er að
því hörðum höndum að leysa mál sem
flestra fyrir skólasetningu í næstu
viku.
Samkvæmt lögum ber framhalds-
skólum að tryggja öllum umsækjend-
um sem eru 18 ára og yngri skólavist,
en skólunum er þröngur stakkur
sniðinn og staða margra þeirra þung.
Alls sóttu 9.600 um framhaldsskóla-
vist í vetur.
„Það er búið að biðja okkur um að
taka inn fleiri nemendur. Við ætlum
að reyna að taka á okkur fleiri nem-
endur en það er ljóst að það er mjög
þrengt að skólanum,“ segir Bryndís
Sigurjónsdóttir, skólameistari Borg-
arholtsskóla, aðspurð hvernig innrit-
anir gangi. Hún á þó von á því að inn-
ritunum ljúki í þessari viku.
Allir komnir inn úr 10. bekk
Áhersla er lögð á að þeir fái skóla-
vist sem hafa minnsta menntun og þá
sérstaklega þeir sem eru yngri en 18
ára. Búið er að innrita alla þá sem
komu beint úr 10. bekk, en 28 um-
sækjendur á aldrinum 16-17 ára hafa
enn ekki komist að. Stærstur hluti
þeirra sem óvíst er um er á aldrinum
18-24 ára, eða 202 umsækjendur. 141
umsækjandi sem ekki hefur komist
að er eldri en 25 ára.
„Við fylltum allt í vor eins og við
gátum. Það er mikil aðsókn í skólann
frá eldri nemendum og við reynum
eins og við getum að koma fólki inn,“
segir Guðrún Hrefna Guðmundsdótt-
ir, skólameistari FB, en stíf vinna er
nú framundan hjá skólanum.
Enn er óvissa
um innritanir
9.600 sóttu um framhaldsskólavist
Innritanir skólanna
» Enn er óvíst um skólavist
371 í framhaldsskólunum.
» Samkvæmt lögum ber fram-
haldsskólum að tryggja öllum
umsækjendum sem eru 18 ára
og yngri skólavist.
» Menntamálaráðuneytið tel-
ur að takast muni að bjóða
flestum eða öllum skólavist.
Morgunblaðið/Ernir
Framtíðin Nýstúdentar Kvenna-
skólans í Reykjavík fyrir ári.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur lokið rannsókn á máli
tveggja manna sem grunaðir eru
um að hafa ráðist á mann í
Breiðholti í júlí, haldið honum
nauðugum og neytt hann til að
millifæra peninga. Málið er nú
komið til embættis Ríkissaksókn-
ara þar sem tekin verður
ákvörðun um hvort mennirnir
verði ákærðir.
Mennirnir tveir hafa setið í
gæsluvarðhaldi frá því þeir voru
handteknir og eru þeir enn í
haldi á grundvelli almannahags-
muna samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni.
Frelsissvipting til
ríkissaksóknara