Morgunblaðið - 14.08.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
VIRTU
AL
SHOW
-
ROOM
www.k
ahrs.co
m
KRONOTEX PLANKAHARÐPARKET
Fyrir heimili jafnt sem sumarhús.
30ára
ábyrgð
FLÍSAR FYRIR FAGURKERA
Ítölsk hönnun eins og hún gerist best
RINGO INNIHURÐIR
Einfaldar í uppsetningu - gott verð
HU
RÐ
IR
FLÍ
SA
R
PA
RK
ET
Ármúli 8 I 108 Reykjavík
Sími 516 0600 I www.birgisson.isÞekking og persónuleg þjónusta
BORÐLEGGJANDI
GÆÐI
Á GÓÐU VERÐI
Kährs parket er gjöf náttúrunnar
til þín og framtíðarinnar.
30ára
ábyrgð
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Guðrún var fædd og uppalin í Borg-
arfirði og bjó þar alla tíð. Sigríður
sagði að þeim sem að gjöfinni stæðu
þætti rétt að þessi mynd kæmi aftur
upp í Borgarfjörð og yrði falin söfn-
unum hér,“ segir Guðrún Jónsdóttir,
forstöðumaður Safnahúss Borgar-
fjarðar, um gjöf sem söfnunum hefur
borist. Það er mynd sem enski að-
alsmaðurinn W.G. Collingwood mál-
aði af barni á Gilsbakka 1897.
Collingwood málaði þrjár myndir
á Gilsbakka í Hvítársíðu þegar hann
gisti þar á ferð um íslenska sögu-
staði. Ein þeirra var af eins árs
gömlu stúlkubarni og var fyrirmynd-
in Guðrún Magnúsdóttir, dóttir séra
Magnúsar Andréssonar og Sigríðar
Pétursdóttur. Guðrún giftist Sigurði
Snorrasyni og hófu þau búskap á
Gilsbakka en Guðrún lést um aldur
fram, 1943. Sigríður afhenti Safna-
húsinu myndina með stuðningi Guð-
rúnar systur sinnar og Ragnheiðar
Kristófersdóttur, ekkju Magnúsar
bróður þeirra.
Sigríður sagði frá því að ástæðan
fyrir því að Collingwood málaði
mynd af Guðrúnu hafi verið sú að
hún var yngst barna Magnúsar sem
þá voru fædd en til voru ljósmyndir
af þeim eldri. Fyrir kom að fólk vildi
ekki þiggja greiðslu fyrir gistingu og
skildi Collingwood þá oft eftir mynd-
ir af börnum sem þakklætisvott.
Guðrún Jónsdóttir segir að gjöfin
sé mikilvæg fyrir safnið því myndin
sé þáttur í borgfirskri sögu. „Coll-
ingwood kom þetta sumar á mikið
menningarheimili sem Gilsbakki var,
þangað komu margir merkir vísinda-
menn og koma enn. Guðrún Magn-
úsdóttir var merk kona og á sér bæði
sögu og afkomendur í Borgarfirði,“
segir Guðrún.
Til sýnis í bókasafninu
Sýning um séra Magnús og Gils-
bakkaheimilið hefur verið uppi í
Safnahúsinu í rúmt ár. Mynd Coll-
ingwoods af Guðrúnu er til sýnis í
anddyri bókasafnsins.
Málaði mynd af
yngsta barninu
Mynd Coll-
ingwoods gefin
Borgfirðingum
Barn Mynd Collingwoods af Guð-
rúnu Magnúsdóttur á Gilsbakka.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta gekk framar okkar björtustu
vonum,“ segir Ester Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri handverkshátíð-
arinnar við Hrafnagilsskóla, sem fór
fram um helgina og lauk í gær. Hátíð-
in fór nú fram í 20. sinn og var sett að-
sóknarmet alla daga, en heimsókn-
irnar fóru yfir 20.000 eins og vonast
var til.
Veðrið lék við sýnendur og gesti
og segir Ester að margir hafi komið
alla fjóra dagana. „Við erum rosalega
ánægð í Eyjafjarðarsveit,“ segir Est-
er. Hún segir að lagt hafi verið upp
með fjölbreytta handverkssýningu og
gestir hafi kunnað vel að meta það.
Blandan hafi verið góð og fjölbreytt
dagskrá á útisvæðinu. Allir hafi fund-
ið eitthvað við sitt hæfi á stóru svæði
og veðrið hafi verið dásamlegt. „Það
var líf og fjör hjá okkur um helgina,“
segir hún.
Tvær ólíkar sýningar
Í tilefni af 80 ára afmæli Búnað-
arsambands Eyjafjarðar var jafn-
framt sett upp stór landbúnaðarsýn-
ing, þar sem meðal annars var
kálfasýning, hrútaþukl, hestasýning,
fjárhundasýning og rúningskeppni.
Ester segir að margir hafi komið
vegna handverksins en skoðað land-
búnaðarsýninguna í leiðinni og öfugt.
Þetta hafi verið tvær mjög ólíkar sýn-
ingar og því hafi ekkert eitt staðið
upp úr eða verið lögð áhersla á.
Hins vegar hafi hátíðarkvöld-
vaka og grillveisla á laugardagskvöld-
inu slegið í gegn, en þar hafi m.a. ver-
ið veitt verðlaun og viðurkenningar.
Gert hafi verið ráð fyrir 500 manns en
yfir 600 manns hafi mætt. „Aðsóknin
var miklu meiri en við bjuggumst
við,“ segir hún og bætir við að byrjað
sé að huga að næstu sýningu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Handverk Boðið var upp á fjölbreyttar sýningar á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit um helgina.
Yfir 20 þúsund heimsóknir