Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Svalaskjól
-sælureitur innan seilingar
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
VIÐ ERUM ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
AFP
Tveir slökkviliðsmenn hafa látist í baráttunni við skóg-
arelda sem geisa skammt frá Benidorm á Spáni, hér
berjast menn við elda í grennd við Alicante. Veturinn
var sá þurrasti á Spáni í áratugi. Á Kanaríeyjum geisa
enn skógareldar á eynni Gomera, alls hafa um 3.000
manns þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunum.
Miklir skógareldar á Spáni
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hörð gagnrýni á norsku lögregluna
kemur fram í nýrri skýrslu 10
manna, óháðrar sérfræðinganefndar
sem ríkisstjórnin skipaði til að rann-
saka hryðjuverkin 22. júlí í fyrra, að
sögn Aftenposten. Hægt hefði verið
að koma í veg fyrir sprengjutilræði
Anders Behring Breiviks á stjórn-
arbyggingar í Ósló, segir í skýrsl-
unni. Alls létu 77 lífið í árásum Brei-
viks í Ósló og Útey.
Lögregluyfirvöld í Noregi hefðu
getað gripið mun fyrr inn en gert var
og brugðust því fólkinu sem var statt
í Útey þann 22. júlí í fyrra, segir í
skýrslunni. Stjórnvöldum er hins
vegar hrósað fyrir góða upplýsinga-
gjöf til þjóðarinnar eftir atburðina.
Norska öryggislögreglan, PST, er
harðlega gagnrýnd. En nefndin sem
vann skýrsluna tekur hins vegar
fram að hún hafi samt engar for-
sendur til þess að segja að PST hefði
beinlínis getað hindrað árásirnar.
Nefndin leggur fram ýmsar tillög-
ur til úrbóta, m.a. að gert verði refsi-
vert að fá þjálfun í hryðjuverkum,
einstaklingum verði bannað að eiga
hálfsjálfvirk skotvopn og eftirlit með
vopnum og hættulegum efnasam-
böndum verði hert.
Lögregla gagnrýnd
Norsk rannsóknarnefnd vill herða eftirlit með vopnum
Fái betri upplýsingar
» Nefndin vill að farið verði yf-
ir reglur um þagnarskyldu í
heilbrigðiskerfinu. Tryggja
verði að lögregla og aðstand-
endur fái nægilegar upplýs-
ingar þegar neyðarástand
skapast.
» Nefndin segir að aðhlynning
sem fórnarlömbin fengu hjá
björgunar- og heilbrigðistarfs-
fólki hafi verið með ágætum.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Umskipti virðast hafa orðið í valda-
baráttu hersins og Mohammeds
Mursis, forseta Egyptalands. Forset-
inn sendi um helgina varnarmálaráð-
herra landsins, Hussein Tantawi, og
fleiri háttsetta menn á eftirlaun, aðra
færði hann til. Einnig felldi Mursi úr
gildi tilskipanir sem herforingjaráðið
lögfesti skömmu fyrir forsetakjörið í
sumar en þar var vald forsetans gert
nánast að engu.
Allt benti til þess í gær að herinn
myndi sætta sig við aðgerðir Mursis.
Fréttaskýrendur segja margt óljóst
við málið. Bent er á að arftakar Tan-
tawis og næstráðanda hans séu einnig
liðsmenn herforingjaráðsins. Að sögn
New York Times fullyrti háttsettur
hershöfðingi að breytingarnar hefðu
verið gerðar eftir „skoðanaskipti“
milli herforingjanna og forsetans.
Valdamestur eftir Mubarak
Mursi segir að um sé að ræða nauð-
synlega endurnýjun er ekki hafi
beinst gegn „einstaklingum eða stofn-
unum“.
Tantawi, sem er 76 ára, fær nafn-
bótina ráðgjafi forseta. Mursi var for-
setaefni Bræðralags múslíma, sem
hefur meirihluta á þingi ásamt öðrum
íslamístaflokki. Liðsmenn Bræðra-
lagsins fagna frumkvæði forsetans og
stjórnarmálgagnið Al-Ahram sagði
að um „byltingarkennda“ ákvörðun
væri að ræða. En aðrir óttast einræði
íslamista.
Tantawi varð í raun valdamesti
maður landsins eftir fall Hosni Mub-
araks, fyrrverandi forseta, í fyrra.
Tantawi var varnarmálaráðherra í 20
ár í forsetatíð Mubaraks.
Mursi forseti
treystir völd sín
Egypski herinn
virðist sætta sig
við aðgerðirnar
AFP
Ánægja Þúsundir manna fögnuðu
ákvörðun Mursis á Tahrir-torgi.