Morgunblaðið - 14.08.2012, Qupperneq 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Guðrún Katrín Þorbergsdóttirforsetafrú fæddist 14. ágúst1934 í Reykjavík. Foreldrar
hennar voru Guðrún S. Bech hús-
móðir og Þorbergur Þorbergsson
stýrimaður.
Hún var tvígift, fyrri maður henn-
ar var Þórarinn B. Ólafsson læknir
og eignuðust þau dæturnar Erlu
myndlistarmann, fædd 1955, og Þóru
kennara, fædd 1960.
Árið 1974 giftist hún Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, og eiga
þau tvíburadæturnar Guðrúnu Tinnu
viðskiptafræðing og Svanhildi Döllu,
stjórnmálafræðing og lögfræðing,
fæddar 1975.
Guðrún Katrín útskrifaðist frá MR
árið 1955. Hún bjó í Danmörku og
Svíþjóð frá 1965-1972 og stundaði
nám í fornleifafræði við Gautaborg-
arháskóla veturinn 1971-1972 og
seinna þjóðfélagsfræði við HÍ.
Hún starfaði á Náttúrufræði-
stofnun Íslands í átta ár og var fram-
kvæmdastjóri Póstmannafélags Ís-
lands árin 1979-1987 og aftur árið
1989. Hún sat í stjórn Minja og sögu,
vinafélags Þjóðminjasafns Íslands,
frá 1991 til dauðadags. Þá var hún
bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi í sex-
tán ár samfleytt.
Hún rak hannyrðaverslunina Garn
Gallerí við Skólavörðustíg í Reykja-
vík og vann talsvert við prjónahönn-
un en uppskriftir eftir hana birtust í
ýmsum blöðum og tímaritum.
Guðrún Katrín tók virkan þátt í
forsetakosningunum 1996 og talaði
með Ólafi Ragnari á mörgum fram-
boðsfundum. Hún var ávallt mjög
sýnileg sem forsetafrú við ýmsa við-
burði og þótti glæsilegur fulltrúi
landsins. Hún náði að þræða hinn
hárfína veg milli þess að standa við
hlið mannsins síns og gegna sjálf-
stæðu hlutverki í framboðinu. Hún
lét að sér kveða eftir að hann tók við
embættinu, einkum á sviði menning-
ar og lista, í velferðarmálum og í bar-
áttunni gegn fíkniefnum.
Guðrún Katrín greindist með
bráðahvítblæði í septembermánuði
árið 1997 og lést í Seattle Bandaríkj-
unum 12. október 1998.
thorunn@mbl.is
Merkir Íslendingar
Guðrún
Katrín Þor-
bergsdóttir
90 ára
Dóra Þorvaldsdóttir
Guðný Stefánsdóttir
85 ára
Laufey Lárusdóttir
Sigurður Björnsson
Þorgils Eiríksson
Þorvarður Örnólfsson
80 ára
Alexía Margrét Gísladóttir
Elín Hrefna Ólafsdóttir
Guðlaug Vagnsdóttir
Hólmfríður Hólmgeirsdóttir
Jóna Magnúsdóttir
Jónína Þorsteinsdóttir
Úlfar Nathanaelsson
75 ára
Guðrún Pálsdóttir
Lára Ingibjörg Ágústsdóttir
Margrét Pétursdóttir
Svavar Símonarson
70 ára
Guðríður Jóhannsdóttir
Kristín Pálsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
60 ára
Edda Rósa Helgadóttir
Helga Jóna Ársælsdóttir
Jón Metúsalem Einarsson
Lillian V. R. Óskarsdóttir
Ragnar Önundarson
Sigrún Andrésdóttir
Stefán Björnsson
Þorkell Jóhann Pálsson
50 ára
Alda Björg Ármannsdóttir
Bjarni Gunnar Gylfason
Dagný Jónasdóttir
Elísabet Magnúsdóttir
Erla Björg Másdóttir
Eyjólfur Þórður Þórðarson
Hjörleifur Kristinsson
Ingibjörg Kr. Þorsteins-
dóttir
María M. Aðalbjarnardóttir
Sigríður Garðarsdóttir
Sólveig María Jörgensen
Þóra Hinriksdóttir
40 ára
Aldís Baldvinsdóttir
Birna Gestsdóttir
Eðvarð Ingólfsson
Haukur Óskarsson
Hrönn Brynjarsdóttir
Leo Smári Gunnarsson
Piotr Pekala
Rakel Heiðmarsdóttir
Reinhard Valgarðsson
Reynir Stefánsson
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigurjón Grétarsson
Sísí Bender
Þórir Gunnarsson
30 ára
Anna Kristín Ármannsdóttir
Auðunn Bjarnason
Auður Bjarnadóttir
Jón Ágúst Runólfsson
Kristín María Dýrfjörð
Lísbet Patrisía Gísladóttir
Marcin Florczyk
Margrét Friðgeirsdóttir
Nancy Bechtloff
Nína Margrét Andersen
Sigríður Helga Árnadóttir
Sigurður Víðir Sigurjónsson
Steinar Rafn Garðarsson
Sveinbjörn Leósson
Valdís María Emilsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Steinar Karl er
fæddur og uppalinn á
Húsavík. Hann býr í
Reykjavík og starfar hjá
Samhjálp sem umsjón-
armaður Hlaðgerðarkots,
meðferðarheimili fyrir
áfengis- og vímuefna-
neytendur.
Foreldrar Hlífar Karlsson,
mjólkur- og fiskeldisfræð-
ingur á Húsavík, f. 1946
og Steinunn Steinars-
dóttir, f. 1951, vinnur á
Sóltúni.
Steinar Karl
Hlífarsson
50 ára Ólafur ólst upp á
Patreksfirði og er búsett-
ur í Garðabæ. Hann starf-
ar sem húsasmíðameist-
ari og byggingastjóri.
Maki Gríma E. Ársæls-
dóttir, f. 1962, snyrtifr.
Börn Aðalheiður Ýr, f.
1984, Halldór Kristján, f.
1988, d. 1988 og Svein-
björn Þór, f. 1988, d.
1988. Víðir Hólm, f. 1993.
Foreldrar Sæmundur
Jón Kristjánsson, f. 1924,
d. 1991 og Aðalheiður
Kolbeins, ljósmóðir, f.
1924.
Ólafur
Sæmundsson
30 ára Halldóra er frá
Akureyri og býr í Vest-
mannaeyjum. Hún er lög-
fræðingur að mennt og
starfar sem fulltrúi sýslu-
manns í Eyjum.
Maki Þórður Hall-
dórsson, f. 1981, pípari og
bóndi.
Börn Berglind Halla, f.
2002, Haukur Leo f,
2007 og Hrafn Leví, f.
2010.
Foreldrar Haukur Hall-
dórsson, f. 1945 og Bjarn-
ey Bjarnadóttir, f. 1950,
bændur á Þórsmörk.
Halldóra Kristín
Hauksdóttir
sat í starfshópi Seðlabankans vegna
undirbúnings að Neyðarlögunum, sat
í stjórn Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna 2009-2011 og í stjórn
Framtakssjóðs Íslands 2010-2011.
Ragnar hefur skrifað fjölda blaða-
greina í Morgunblaðið, um fjármál,
viðskipti og almenn þjóðmál.
Veiðir við vatnamót Hvítár
Ragnar stundar stangveiðar, golf
og bridge: „Stangveiðin er nú reynd-
ar mín sérfræðigrein. Ég hef auðvit-
að prófað ýmsar ár um dagana en nú
orðið veiði ég aðallega í Hvítá í Borg-
arfirði og er orðinn býsna kunnugur
vatnamótum árinnar þar sem fersk-
vatnsþverárnar renna út í jök-
ulvatnið. Þetta er svolítil kúnst og
orðin töluverð fræði hjá mér sem ég
hef gaman miðla þeim yngri.
Ég get hins vegar ekki státað af
golfkunnáttunni. Það eru komin um
20 ár frá því ég eignaðist fyrst golf-
kylfur en ég held að ég sé alltaf sami
byrjandinn í þessu góða sporti.“
En svo spilar þú bridge, er það
ekki?
„Jú. Ég hef verið í föstum spilahópi
í 20 ár. Þetta eru einkum viðskipta-
fræðingar en við spilum undir
öruggri leiðsögn Helga Jóhannssonar
sem var með Samvinnuferðir og síðar
Sumarferðir. Svo er einn augnlæknir
í hópnum sem gætir þess að við
sjáum á spilin.“
Fjölskylda
Eiginkona Ragnars er Áslaug Þor-
geirsdóttir, f. 5.5. 1953, hússtjórn-
arkennari. Hún er dóttir Þorgeirs
Þórarins Þorsteinssonar, f. 26.8.
1902, d. 20.4. 1999, ráðsmanns, og
Guðrúnar Davíðsdóttur, f. 6.10. 1914,
d. 18.10. 1995, húsfreyju.
Synir Ragnars og Áslaugar eru
Þorgeir Ragnarsson, f. 15.6. 1978,
sagnfræðingur, búsettur í Reykjavík
en kona hans er Hrefna Sigurjóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og
skóla og eru börn þeirra Áslaug Lilja
og Sigurjón Kári; Önundur Páll, f.
27.5. 1982, stjórnmálafræðingur og
hagfræðinemi, búsettur í Reykjavík
en kona hans er Una Sighvatsdóttir,
blaðamaður við Morgunblaðið.
Systkini Ragnars er Greta Önund-
ardóttir, f. 28.10. 1948, kennari og
flugfreyja, búsett í Reykjavík; Ásgeir
Önundarson, f. 10.11. 1950, bókari í
Reykjavík; Páll Torfi Önundarson, f.
30.3. 1955, yfirlæknir í blóðrann-
sóknum við Landspítalann, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Ragnars eru Önundur
Ásgeirsson, f. á Sólbakka á Flateyri
14.8. 1920, fyrrv. forstjóri Olíu-
verslunar Íslands, og Eva Harne
Ragnarsdóttir, f. 14.7. 1922, kennari
og húsfreyja.
Úr frændgarði Ragnars Önundarsonar
Ole Christian Harne
gestgjafi í Árhúsum í Danmörku
Margrete Harne
f. Nilsen, húsfr.
Ásgeir Eyþórsson
kaupmaður í Kórnesi og Rvík.
Jensína Matthíasdóttir
af Vigur- og Eyrarætt
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Hrauni.
Torfi Halldórsson
stofnandi Stýrimannask. á Ísaf.
María Össurardóttir
frá Súgandaf.
Ragnar
Önundarson
Önundur Ásgeirsson
fyrrv. forstj. Olíuverslunar Íslands
Eva Harne Ragnarsdóttir
kennari og húsfr.
Ragnar Ásgeirsson
ráðunautur og rith.
Grete Harne
húsfr.
Ásgeir Torfason
skipstj. á Flateyri.
Ragnheiður Eiríksdóttir
húsfr. á Flateyri.
Eiríkur Sigmundsson
b. á Hrauni á Ingjaldssandi.
Ragnar Ásgeirsson
læknir á Ísaf.
María Ragnarsdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík.
Jensína Eiríksdóttir
frá Hrauni
Þórhallur Ásgeirsson,
fyrrv. ráðuneytisstj.
Vala Thoroddsen
forsætisráðherrafrú
Ásgeir
Thoroddsen hrl.
Ásgeir Ásgeirsson
forseti
Skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar
Ragnar með dýrgrip sem hann eign-
aðist eftir afa sinn og nafna. Hann
lét gera upp púltið í upprunalegri
mynd og gaf það forsetaembættinu
á Bessastaði. Það var afhent þangað
1. desember sl.
Morgunblaðið/G. Rúnar