Morgunblaðið - 14.08.2012, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2012
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Fastus til framtíðar
Bjóðum öflugar og endingargóðar
vélar frá Electrolux og Primus.
Hafðu samband við söluráðgjafa
okkar og við aðstoðum þig við að
finna hagkvæmustu lausnina.
ÞVOTTAVÉLAR, ÞURRKARAR,
STRAU- OG BROTVÉLAR
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
„Ég hef haft kynni af svo mörgum
skemmtilegum tónlistarmönnum í
gegnum tíðina sem hafa á einn eða
annan hátt haft áhrif á mig í tónlist-
inni. Mér datt svo í hug að það gæti
verið gaman að gera eitthvað með
þessum hetjum mínum opinber-
lega,“ segir Ívar Pétur Kjartansson,
tónlistarmaður og plötusnúður.
Þriðjudagskvöld á Kaffibarnum
nú í ágústmánuði kallast Ívar undir
áhrifum en þar fær Ívar til liðs við
sig nokkrar af „hetjunum“ sínum úr
tónlistarheiminum. Ívar hefur í
fimm ár þeytt skífum á aðal-
skemmtistöðum borgarinnar og spil-
að með hljómsveitum og tónlist-
armönnum á borð við FM Belfast,
Benna Hemm Hemm og Good Moon
Deer.
Mæting verið góð
„Það er gaman að geta þakkað op-
inberlega fyrir sig og fá þá sem hafa
haft áhrif á mann frá unglingsárum
til að vinna með sér. Þetta fólk hefur
haft áhrif á mig og suma myndi ég
hreinlega kalla lærifeður eins og
Curver Thoroddsen. Í síðustu viku
var Sigtryggur Baldursson með mér
á Kaffibarnum en ekki síst þar sem
að ég er sjálfur trommuleikari hefur
hann haft mikil áhrif á mig. Sig-
tryggur er að mínu mati einn færasti
trommuleikari í heiminum.“ Mæting
var góð síðasta þriðjudag og greini-
lega mikill áhugi fyrir samstarfi Ív-
ars og Sigtryggs.
Örvar Smárason, einn af stofn-
endum hljómsveitarinnar Múm er sá
sem Ívar fær til sín í kvöld. Örvar
mun bæði tína til tónlist sem hefur
haft áhrif á Múm og svo tónlist sem
hann er að hlusta á í dag. Múm er sú
hljómsveit sem fleytti Ívari í gegn-
um menntaskólann, að hans sögn.
Þá mun Ghostigital slást í för með
Ívari 21. ágúst.
„Nei, ég hef ekki unnið með þessu
fólki á þennan hátt áður og gaman
að fá svona jákvæð viðbrögð við
þessari hugmynd. Svo er ferða-
mannastraumur það mikill að það
hefur verið ótrúlega gaman að spila
á sumrin á virkum dögum á Kaffi-
barnum. Erlendir ferðamenn eru í
stuði hvort sem það er þriðjudags-
eða miðvikudagskvöld, það skiptir
þá engu máli. Ég myndi segja að það
hafi yfirleitt verið fleiri erlendir
ferðamenn á þessum uppákomum
nema kannski að síðast hafi um það
bil jafn margir Íslendingar og út-
lendingar mætt.“
Kvöldin hans Ívars hefjast klukk-
an 22 og standa þar til Kaffibarnum
er lokað eða til klukkan 01.00.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kvöldið Ívar Pétur spilar með Örvari Þóreyjar- Smárasyni í kvöld.
Goðin hans Ívars
Ívar Pétur Kjartansson þeytir skífum
með helstu áhrifavöldum sínum
Danshópurinn Shalala, leiddur af
Ernu Ómarsdóttur, dansara og
danshöfundi, kom fram á Fen-
eyjatvíæringnum í danslistum sem
fram fór í júní sl. Tvíæringurinn er
með virtari danshátíðum sem
haldnar eru í Evrópu og steig
margur heimskunnur danshóp-
urinn og dansarinn á svið í ár, líkt
og hin fyrri. Má þar nefna Ultima
vez og ballerínuna Sylviu Guillem.
Erna og félagar hennar í Shalala
voru í Feneyjum í viku við æfingar
og sýningar á verkinu Við sáum
skrímsli. Þá sýndi hópurinn verkið
Teach us to outgrow our madness í
Suður-Frakklandi fyrir rúmri viku
og mun sýna það víða um Evrópu í
haust. Viðtal við Evrópu vegna
tvíæringsins má finna á vefnum
YouTube með því að slá inn í leit-
arglugga: „Dance Biennale 2012 -
Erna Ómarsdóttir (interview)“.
Farsæl Erna Ómarsdóttir.
Shalala á Feneyja-
danstvíæringnum
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
Ýmislegt er í bígerð um þessar
mundir hjá félögum Vesturports. Nú
er verið að setja upp leiksýninguna
Bastard í Malmö
og í haust verður
hún sýnd í Kaup-
mannahöfn. Í
kjölfarið á því
verður sýningin
sett upp með ís-
lenskum leik-
urum í Borgar-
leikhúsinu.
Leiksýningin
Faust verður
sett upp í New York í desember á
listahátíðinni BAM og Hamskiptin
verða sýnd í London í janúar í Lyric
leikhúsinu. Við það má bæta að tvær
sjónvarpsþáttaraðir og kvikmyndir
eru væntanlegar frá leikhópnum.
Afsanna eða sanna
Íslendingasögurnar
„Þetta eru völd atriði úr Íslend-
ingasögunum,“ segir Rakel Garð-
arsdóttir um sjónvarpsþætti sem
hún vinnur nú að við að framleiða
ásamt Ágústu Ólafsdóttur. „Það eru
í raun tíu ár síðan fornleifafræðing-
urinn og handritahöfundurinn Vala
Garðarsdóttir byrjaði að vinna við
verkefnið, en hún kom með það til
okkar í Vesturporti fyrir einu og
hálfu ári síðan. Þá unnu hún og
Björn Hlynur Haraldsson handritið
saman. Hann byrjaði svo að leik-
stýra þáttunum og við erum búin að
vera að taka í allt sumar,“ segir
Rakel.
Þættirnir eru sex talsins og eru
bæði leiknir þættir og fræðsluþættir
í senn að sögn Rakelar.
„Í þáttunum reynum við að kom-
ast að því hvort Íslendingasögurnar
séu sannar eða ekki,“ segir Rakel.
Ríkissjónvarpið hefur keypt sýning-
arrétt á þáttunum segir Rakel og
„vonandi verður fyrsti þátturinn
sýndur milli jóla og nýárs“. Þar að
auki hafa Norðurlöndin og Norður-
Ameríka keypt sýningarrétt á þátt-
unum að sögn Rakelar. „Við viljum
koma þáttunum að sem víðast. Það
er einnig markmið hjá okkur að þeir
verði nýttir í skólakerfinu í fram-
tíðinni,“ segir Rakel.
Mæður í fangelsi
Nína Dögg Filippusdóttir vinnur
einnig að gerð sjónvarpsþátta,
ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur.
„Þetta er sjónvarpsþáttasería sem
Unnur Ösp og ég erum búnar að
vera vinna að mjög lengi. Hún fjallar
um konur í fangelsi en við erum
ennþá að vinna í handritinu,“ segir
Nína Dögg. Framleiðslufyrirtækið
Mystery kemur að gerð þáttanna en
að sögn Nínu Daggar eru þeir vænt-
anlegir í sjónvarpið um haustið á
næsta ári. Nína Dögg segir kveikj-
una að þáttunum hafa verið grein
sem birtist í blaðinu Ísafold sem
fjallaði um mæður í fangelsi en um
þær mundir voru Unnur Ösp og
Nína nýbúnar að eignast sín fyrstu
börn. „Í kjölfarið að því fórum við að
hugsa hvað þetta eru magnaðar að-
stæður. Við hringdum í fangelsið og
fengum að koma í heimsókn og
spjölluðum við mæður þar. Út frá
því kviknaði þessi hugmynd að vekja
athygli á málefninu sem er ennþá
mikið tabú og falinn heimur. Það eru
mæður í öllum kringumstæðum,“
segir Rakel.
Vesturport er einnig með kvik-
mynd í bígerð en Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg og Rakel gátu lít-
ið sagt um hana að svo stöddu. Nína
Dögg mun fara með aðalhlutverkið í
þeirri mynd að sögn Gísla. Rakel
bætir við að þjóðin geti beðið spennt
eftir myndinni. „Þetta verður alveg
svakalegt.“
Vesturport með
marga bolta á lofti
Sjónvarpsþættir, kvikmynd og leiksýningar erlendis
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Vesturport Nína Dögg Filippusdóttir lék í Faust sem Vesturport setti á svið
í Borgarleikhúsinu 2010 og fer nú með til New York í desember.
Rakel
Garðarsdóttir
Kvikmyndin Oblivion, sú sem tekin
var að hluta hér á landi í sumar og
skartar Hollywood-stjörnunni Tom
Cruise, verður frumsýnd viku fyrr
en áætlað var, 12. apríl á næsta ári
og þá eingöngu í IMAX-kvikmynda-
húsum. Framleiðandi myndarinnar,
Universal Pictures, og IMAX-
fyrirtækið sendu frá sér tilkynn-
ingu þessa efnis í gær. Myndin
verður heimsfrumsýnd viku síðar,
19. apríl. Í Oblivion segir af Jack
nokkrum Harper sem hefur þann
starfa að gera við fjarstýrðar flaug-
ar og er hann einn fárra sem sinna
því starfi á jörðinni því hún hefur
meira eða minna verið lögð í eyði af
manna völdum. Harper bjargar
ókunnri þokkagyðju sem brotlent
hefur geimfari sínu og hrindir sú
björgun af stað atburðarás mikilli
og Harper þarf að bjarga mannkyni
öllu, að því er fram kemur á vefnum
IGN.
Oblivion frumsýnd
viku fyrr í IMAX
Framtíðartryllir Tom Cruise leikur
Jack Harper í kvikmyndinni Oblivion.
AFP