Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 6

Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Lífið er litríkt Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 60 ára reynsla á Íslandi BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir Þorsteinn Ásgrímsson Þegar Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra tilkynnti fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatt á hótel og gististaði úr 7% í 25,5% í fyrradag sagði hún að ferðaþjónustan hefði verið á undanþágum eða ríkisstyrk fram til þessa í formi lágs virðis- aukaskatts. Almennt þrep í virðisaukaskatti er 25,5% segir á vefsíðu Ríkisskattstjóra en 7% virðisauka- skattur er innheimtur af tiltekinni vöru og þjón- ustu. Má þar nefna afnotagjöld Ríkisútvarpsins, sölu tímarita, dagblaða, bóka, geisladiska, að- gang að vegamannvirkjum t.d. gjaldtöku vegna Hvalfjarðarganganna, matvæli og aðrar vörur til manneldis, og sölu á heitu vatni, rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns. Þá er í þessum flokki upptalin útleiga hótel- og gistiherbergja og annarrar gistiþjónustu en miðað við yfirlýsingu fjármálaráðherra mun hún hverfa úr 7% flokk- inum í maí á næsta ári. Dagsferðir undanþegnar virðisauka Jón Guðmundsson, skrifstofustjóri hjá Rík- isskattstjóra, segir að lítið hafi breyst í 7% virð- isaukaskattsflokknum undanfarin ár. „Mest af þessu er búið að vera nokkuð lengi. Það er verið að halda þessu lágu því þetta eru nauðsynjavörur að stórum hluta, eins og matur, heitt vatn og raf- magn.“ Jón segir að auk 25,5% og 7% skattaflokkanna sé í rauninni einn skattflokkur í viðbót, það er 0% flokkurinn. Undir hann falla m.a rafbílar en síð- astliðið vor samþykkti Alþingi bráðabirgða- ákvæði þar sem heimilt er að fella niður virð- isaukaskatt af rafmagns- eða vetnisbifreið að ákveðnu hámarki. Í skattflokki núll eru líka flokkar innan ferðaþjónustunnar, því dagsferðir fyrir ferðamenn eru undanþegnar virð- isaukaskatti. Steinþór Haraldsson hjá Ríkisskattstjóra staðfesti í samtali við mbl.is í gær að skipulagðar ferðir með leiðsögn fararstjóra væru und- anþegnar virðisaukaskatti. Undir þetta falla t.d. allar sleða-, hesta-, fjórhjóla- og rútuferðir. Í skýrslu sem unnin var af Ferðamálastofu fyrir samgönguráðuneytið er gerður sam- anburður á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu milli Norðurlandanna og þar eru flokkarnir hópferða- bifreiðar og ferðaþjónusta sögð vera með 0%. Það má því ætla að t.d. hvalaskoðunarferðir og langar gönguferðir um hálendið með leiðsögu- manni séu einnig undanþegin virðisaukanum. Aðili innan gistiþjónustunnar sagði í samtali við mbl.is að óeðlilegt væri að þegar ætti að draga skatt úr ferðamannageiranum væri ávallt farið beint í gistiaðilana, en horft framhjá þeim sem byðu upp á ferðir og afþreyingu. Í byrjun þessa árs var sérstakur gistináttaskattur, 100 krónur á hverja selda gistináttaeiningu, settur á. Sýndi ferðaþjónustunni óvirðingu Samtök ferðaþjónustunnar segja hugmyndir ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 25,%% vera mikil vonbrigði og rothögg fyrir ferðaþjónustuna. Í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér í gær segja þau að fjármálaráðherra hafi sýnt ferðaþjónustunni og starfsfólki hennar fádæma óvirðingu með því að segja neðra þrep virðisaukaskatt vera ríkis- styrk. Þá benda samtökin á að 29 þjóðir af 32 í Evr- ópu séu með gistinguna í neðra þrepi virð- isaukaskatts og nefna sem dæmi að Þjóðverjar hafi lækkað virðisaukaskatt á gistingu úr 19% í 7% þegar fór að kreppa að í Evrópu. Skipulagðar ferðir undanþegnar Morgunblaðið/RAX Blikur á lofti Ferðamenn hafa hópast til landsins í ár, en ferðaþjónustan hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts.  Misjöfn skattlagning innan ferðaþjónustunnar  Gisting fer í virðisaukaskattflokk 25,5% á meðan skipulagðar ferðir með leiðsögn eru undanþegnar virðisaukaskatti  Rothögg fyrir ferðaþjónustuna Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Hinn 10. febrúar 2012 skrifuðu vel- ferðarráðuneytið, Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnu- lífsins (SA) undir samkomulag um þriggja ára til- raunaverkefni um þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið til- raunaverkefn- isins er að efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðs- aðgerðum. Nokkrar tafir hafa verið á verk- efninu síðan það var fyrst kynnt til sögunnar en það fór af stað um mánaðamótin. Þrjú stéttarfélög á höfuðborg- arsvæðinu taka þátt í verkefninu og er VR meðal þeirra. „Okkur var til- kynnt með bréfi frá Vinnumála- stofnun fyrir mánaðamótin að okk- ar félagsmenn sem eru atvinnulausir myndu fá þjónustu frá okkur næstu þrjú árin í vinnu- miðlun og starfs- og námsráðgjöf,“ segir Stefán Einar Stefánsson, for- maður VR. Síðan verkefnið fór af stað um mánaðamótin hafa um 120 fé- lagsmenn komið án boðaðs viðtals á skrifstofur VR í leit að hjálp. „Þetta er til merkis um það að stéttarfélögin í landinu standi nær þeim einstaklingum sem lenda í því áfalli að missa vinnuna heldur en Vinnumálastofnun,“ segir Stefán. Gagnrýnir atvinnuleysistölur Samkvæmt skýrslu Vinnu- málastofnunar var skráð atvinnu- leysi í júlí 4,7%. Í skýrslunni kemur fram að að 8.372 manns hafi verið atvinnulausir í mánuðinum og því hafi þeim fækkað um 332 eða 0,1 prósentustig. Stefán er ósammála því mati. „Þau verkefni sem Vinnumála- stofnun hefur farið út í eins Vinn- andi vegur og annað slíkt, felur að sjálfsögðu atvinnuleysi sem annars væri til staðar ef ekki væri fyrir þessi verkefni. Við teljum auðvitað betra að fólk sé í slíkum úrræðum heldur en á atvinnuleysisskrá en það breytir því ekki að vandinn er stærri en tölur Vinnumálastofnunar gefa til kynna,“ segir hann. Atvinnulaust fólk streymir til VR  120 hafa mætt frá mánaðamótum Stefán Einar Stefánsson Forráðamenn ferðaþjónustufyrirtækisins Ice- land Excursions – Allrahanda, íhuga nú að hætta þátttöku í verkefninu „Ísland allt ár- ið“. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að hugmynd fjármálaráðherra um að hækka virðisaukaskatt á gistingu vinni freklega gegn markmiðum þessa átaks. Fyrirtækið telur að hækkun gistikostnaðar eigi eftir að leiða til fækkunar ferðamanna og að ekki verði af upphaflegum áætlunum um 12% fjölgun vetrarferðamanna. Ríkisvaldið geti sparað sér þær 300 milljónir sem það ætlaði að setja í verkefnið og ferðaþjónustan sömu upphæð – „og veitir víst ekki af til að eiga eitthvert smáræði upp í þá hækkun á virðisaukaskattinum sem fyrirtækin þurfa að taka á sig ef fjármálaráðherra er virkilega al- vara með þessari gölnu hugmynd,“ segir í yf- irlýsingu frá fyrirtækinu. Ferðamálasamtök Snæfellsnes mótmæla einnig harðlega áætlunum ríkisstjórnarinnar um hækkun á virðisaukaskatti á gistingu. Samtökin telja ferðaþjónusta hafa verið í stórsókn á tímum mikilla efnahagserfiðleika og að hlutur hennar í endurreisn og uppbygg- ingu í kjölfar hrunsins hafi verið mikill. Tals- menn ríkisstjórnarinnar hafi undanfarin ár farið fögrum orðum um hlut ferðaþjónustu í atvinnulífinu og lofað stuðningi við uppbygg- ingu greinarinnar. Því komi hugmyndir um hækkun virðisaukaskatts samtökunum mjög á óvart. Íhuga að hætta í átaksverkefni HÆKKUN Á VIRÐISAUKASKATTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.