Morgunblaðið - 15.08.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
Almar
Hönnuður: Sturla Már Jónsson
Áklæði í mörgum litum, úr leðurlíki eða taui.
Grindur krómaðar eða lakkaðar að eigin vali
Verð frá: 38.900,- (bólstraður eða spónlagður)
Nýr stóll
www.facebook.com/solohusgogn
ERT ÞÚ MEÐ VERKI?
Stoðkerfislausnir hefjast 3. september nk.
Hentar þeim sem eru að glíma við einkenni
frá stoðkerfi og vilja læra á sjálfan sig og
finna sín mörk í hreyfingu.
• Mán., mið. og fös. kl. 15:00 og 16:30.
• Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara ásamt
kennslu í réttri líkamsbeitingu
• Fyrirlestrar um verki, svefntruflanir og heilbrigðan lífstíl
• 8 vikna námskeið
• Verð: 39.800 kr. (19.900 kr. á mánuði)
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Allir verkir hafa minnkað. Ég var áður alltaf svo
þreytt og alltaf að leggja mig. Mér finnst satt að
segja að allir sem eru að finna til verkja ættu að
koma hingað. Hreyfingin hefur líka áhrif á alla
starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir
sálina. Mér líður miklu betur og ég er ákveðin í
að halda áfram.“
Sólveig Guðmundsdóttir
Þjálfari: María Jónsdóttir sjúkraþjálfari
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Europris auglýsti í gær að verslun
fyrirtækisins í Korputorgi yrði lokað.
Ekki hefur verið samið við nýjan
leigjanda, samkvæmt heimildum
Morgunblaðið. Um er að ræða 1600
fermetra verslunarrými en húsið er
um 45 þúsund fermetrar. Um 70%
hússins eru í útleigu. Stekkjarbrekk-
ur, fyrirtækið sem á Korputorg, hefur
óskað eftir því við Reykjavíkurborg
að deiliskipulagi verði breytt, þannig
að þarna megi reka, auk verslunar,
lagerstarfsemi, léttan iðnað og gagna-
ver. Framtíðin mun leiða í ljós hvaða
starfsemi fer í rýmið sem er laust.
Ekki stendur til að reka í Europris-
rýminu nokkrar minni verslanir.
Fasteignafélagið SMI, sem á eign-
arhaldsfélagið um Korputorg og fleiri
eignir, er að stærstum hluta í eigu Ar-
ion banka með 39% hlut og þrotabús
Landsbankans með 35%. Jákup Ja-
cobsen, stofnandi Rúmfatalagersins á
18%, samkvæmt tilkynningu til
Fyrirtækjaskrár.
Þeir sem til þekkja benda á að
flestar verslanir sem eru yfir þúsund
fermetrar séu í ágætis fasteignum nú
þegar og að það sé sjaldgæft að fyr-
irtæki reki margar slíkar verslanir
hér á landi. Davíð Albertsson, fram-
kvæmdastjóri SMI, segir í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið vilji opna
fyrir sem flesta möguleika fyrir fast-
eignina, með umsókninni til Reykja-
víkurborgar, til að finna megi hent-
uga leigjendur í rýmið. Að hans sögn
ganga verslanir í húsinu almennt vel.
Davíð segir að umsóknarferlið um
breytt deiliskipulag taki um átta til
tíu vikur og að stutt sé síðan umsókn-
in hafi verið lögð inn.
Léttur iðnaður, lager eða gagnaver
er mun plássfrekari starfsemi en
verslun. Ekki þarf að ráðast í miklar
framkvæmdir til að reka í auða rým-
inu léttan iðnað eða lager en aftur á
móti þarf að gera töluverðar og
kostnaðarsamar breytingar til að
hægt sé reka þar gagnaver, að sögn
Davíðs.
Fasteignafélagið SMI er með starf-
semi í þremur löndum: Íslandi, Lett-
landi og Litháen. Fyrirtækið á tæp-
lega 250 þúsund fermetra í
verslunarhúsnæði. Á Íslandi á það sjö
fasteignir, húsið sem hýsir Rúmfata-
lagerinn í Skeifunni, Smáratorg 1, 2
og 5, Dalsbraut og Korputorg. Í Lett-
landi á það fimm fasteignir; eitt vöru-
hús og fjórar verslunarmiðstöðvar. Í
Litháen á það fimm verslunarmið-
stöðvar.
Um 70% Korputorgs eru í útleigu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fasteignir Stjórnendur fasteignafélagsins um Korputorg bíða eftir svörum
frá borginni hvort reka megi í húsinu margþættari starfsemi en verslun.
Hafa til skoðunar að breyta hluta af rýminu undir léttan iðnað, lagerstarfsemi eða gagnaver
Bankar eiga
í Korputorgi
» 30% rýmisins í Korputorgi
standa auð.
» Óskað hefur verið eftir
breytingu á deiliskipulagi til að
reka þar annað en verslun.
» Til greina kemur að reka þar
gagnaver, léttan iðnað eða
lager.
» Arion banki og þrotabú
Landsbankans eiga stóran hlut
í fasteignafélaginu sem á
húsið.
Skráð atvinnuleysi í júlí 2012 var
4,7% en að meðaltali voru 8.372 at-
vinnulausir í júlí
og fækkaði at-
vinnulausum um
332 frá júní eða
um 0,1 prósentu-
stig, samkvæmt
frétt Vinnu-
málastofnunar í
gær.
Körlum á at-
vinnuleysisskrá
fækkaði um 294
og konum um 38.
Atvinnuleysið var 5,4% á höfuðborg-
arsvæðinu og minnkaði úr 5,5% í
júní. Á landsbyggðinni var atvinnu-
leysið 3,5% og breyttist ekki frá júní.
Mest var atvinnuleysið á Suð-
urnesjum 7,4% og minnkaði úr 7,5%
í júní. Minnst var atvinnuleysið á
Norðurlandi vestra 1,2%. Atvinnu-
leysið var 4,1% meðal karla og 5,4 %
meðal kvenna.
Alls voru 8.696 manns atvinnu-
lausir í lok júlí. Þeir sem voru at-
vinnulausir að fullu voru hins vegar
7.818. Fjöldi þeirra sem hafa verið
atvinnulausir lengur en 6 mánuði
samfellt er nú 5.441 og hefur fækkað
um 63 frá lokum júní og eru um 63%
þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í
júlí. Alls voru 1.242 á aldrinum 16-24
ára atvinnulausir í lok júlí eða um
14.3% allra atvinnulausra.
Atvinnu-
leysi 4,7%
Án vinnu Örlítil
fækkun.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-..
+/0-+0
+.1-1.
+,-0/2
.1-+3
+0-/20
+..-33
+-4+05
+/1-12
+20-.,
++,-4
+/0-3.
+.1-50
+,-/2.
.1-.+,
+0-/,,
+.5
+-4.+0
+/1-4/
+20-0
.13-//+
++,-0/
+//-10
+.1-0.
+,-,
.1-.0/
+0-,4+
+.5-52
+-4.3+
+/+-+.
+2/-++
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Stuttar fréttir ...
● Verðbólga jókst óvænt í Bretlandi í
júlí og mælist hún nú 2,6%, samkvæmt
nýjum tölum Bresku hagstofunnar, sem
fréttavefur BBC greindi frá í gær. Verð-
bólgan mældist 2,4% í júní.
Helstu skýringar á aukinni verðbólgu
á þessum árstíma eru sagðar verð-
hækkanir á flugfargjöldum, hveiti, korni
og olíu, auk þess sem útsölulok í versl-
unum eru sögð hafa verið óvenju-
snemma í ár.
Talsmaður breska fjármálaráðuneyt-
isins sagði við BBC í gær, að verðbólga í
Bretlandi væri nú helmingi minni en
hún mældist í september í fyrra, en
allar hækkanir yllu vonbrigðum.
Verðbólga jókst óvænt
í júlí í Bretlandi í 2,6%