Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
NÝ
JU
NG
!
Við kynnum nýjan hvítmygluost frá Mjólkursamsölunni
undir nafninu Dala-Auður. Osturinn er einstaklega
mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru
mygluosta frá MS.
Dala-Auður er 170 g og er unnin úr nýmjólk.
Nafn ostsins er vísun í Auði djúpúðgu sem var
landnámskona í Dölunum og ættmóðir Laxdæla.
MJÚKUR OG LJÚFFENGUR
HVÍTMYGLUOSTUR ÚR DÖLUNUM
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
12
–0
63
1
Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Samtaka íslamskra ríkja, OIC, sam-
þykktu í gær á fundi sínum í Mekka í
Sádi-Arabíu að mæla með brott-
rekstri Sýrlands úr samtökunum
vegna stefnu Bashars al-Assads Sýr-
landsforseta gagnvart stjórnarand-
stæðingum. Íran, helsta vinaríki
Sýrlands, andmælti ákvörðuninni.
Þjóðhöfðingjar aðildarríkjanna
þurfa að staðfesta samþykktina til að
hún öðlist gildi en 57 ríki eiga aðild
að OIC.
Niðurstaða ráðherranna þykir
vera mikið siðferðislegt og pólitískt
áfall fyrir Assad og stuðningsmenn
hans. Ekkert lát er á átökum stjórn-
arhers Assads og uppreisnarmanna í
stærstu borg landsins, Aleppo, og
víðar. Sýrlenska mannréttindastöð-
in, SOHR, sem hefur aðsetur í Bret-
landi, áætlar nú að 23.000 manns hafi
fallið frá því að átökin hófust í fyrra.
Stjórn Assads „að hrynja“
Riad Hijab, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Sýrlands, flúði nýlega til
Jórdaníu með fjölskyldu sinni. Hann
sagði á blaðamannafundi í gær að
ríkisstjórn Sýrlands væri að hrynja,
„siðferðislega, fjárhagslega og hern-
aðarlega“. Innan við 30% landsins
væru enn í höndum Assads. Hijab
hvatti uppreisnarmenn til að þétta
raðir sínar og bað sýrlenska stjórn-
arhermenn að standa með þjóðinni.
Fulltrúi Assads er nú í Peking í
Kína til að ræða við stjórnvöld þar.
Talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins segir að Kínastjórn íhugi
að bjóða fulltrúum stjórnarandstæð-
inga einnig til fundar til að ræða mál
Sýrlands. Kínverjar og Rússar hafa
beitt neitunarvaldi til að fella sam-
þykktir öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna um aðgerðir gegn Assad en
hvatt til vopnahlés. kjon@mbl.is
AFP
Flúinn Riad Hijab á fréttamanna-
fundi í Amman í gær.
Assad
vinafár á
OIC-fundi
Vilja víkja Sýrlandi
úr samtökunum
Efnasambandið
triclosan hefur
frá áttunda ára-
tugnum verið
notað í margar
vinsælar hrein-
lætisvörur, ekki
síst sótthreins-
andi sápu, munn-
skol og
svitalyktareyði.
En Fox-sjónvarpsstöðin segir að
fram komi í ritinu Proceedings of
the National Academy of Sciences
að notkunin sé nú talin geta skaðað
vöðva og valdið hjartabilun. Vís-
indamenn við Davis-háskóla í Kali-
forníu benda á að vaxandi notkun
triclosan eigi þátt í því að efnið hafi
safnast fyrir í líkömum manna.
Einnig hafi það víða mengað nátt-
úruna. kjon@mbl.is
TRICLOSAN-MENGUN
Varasöm sápa
Miklar óeirðir urðu í fátækrahverfi
í borginni Amiens í Norður-
Frakklandi aðfaranótt þriðjudags
og særðust 16 lögreglumenn.
Kveikt var í leikskóla og íþrótta-
miðstöð er gjörónýt, a.m.k. þrír
menn sem áttu leið fram hjá slös-
uðust þegar þeir voru dregnir út úr
bílum sínum.
Spenna hefur ríkt undanfarna
mánuði milli lögreglunnar og ungs
fólks í hverfinu en þar er mikið at-
vinnuleysi. Ljóst þykir að samskipti
lögreglu og ungmenna í fátækra-
hverfum, oftast úr röðum innflytj-
enda, hafi lítið batnað frá 2005.
Óeirðir geisuðu þá í mánuð um allt
landið og heilu hverfin loguðu.
kjon@mbl.is
FRAKKLAND
Óeirðir í Amiens
Talið er að 36 hafi týnt lífi í árásum
sjálfsvígsmanna í héraðshöfuð-
staðnum Zaranj í Nimroz í Afgan-
istan í gær. Borgin er skammt frá
landamærunum að Íran í vest-
urhluta landsins. Flest fórnar-
lömbin voru að kaupa inn í tilefni
Eid, einnar af mestu trúarhátíðum
múslíma, að sögn AFP. Árásar-
mennirnir voru 11 og þrír þeirra
sprengdu sig á fjölförnum stöðum,
einn við sjúkrahús. kjon@mbl.is
AFGANISTAN
Tugir féllu í sjálfs-
morðsárásum
Pattaralegur grís í stíu sinni á búgarði í Winsen í aust-
anverðu Þýskalandi. En svínaræktendur eru ekki jafn
kátir: verð á fóðri hefur hækkað á alþjóðamörkuðum
og ógnar nú afkomu bænda. Stofnanir Sameinuðu þjóð-
irnar óttast sprengingu í matvælaverði og hvetja til
þess að hætt verði að framleiða eldsneyti úr korni.
AFP
Ánægður grís í Þýskalandi
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hart er nú sótt að Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs, og útbreidd-
asta blað landsins, VG, hvatti hann í
gær til að segja af sér vegna mistaka
lögreglunnar í
tengslum við
hermdarverkin 22.
júlí í fyrra. Stolten-
berg hefur harmað
þau mistök sem
gerð hafi verið og
segist axla ábyrgð
á þeim.
Mjög harðorð
skýrsla rannsókn-
arnefndar um
hryðjuverkin og viðbrögð yfirvalda var
birt í fyrradag. Þar segir að oft hafi
verið rætt um umbætur á öryggismál-
um en þær dottið upp fyrir. Helstu
gallarnir á viðbrögðum vegna hryðju-
verka snúist ekki um skort á lögreglu-
búnaði eða mannafla heldur hugarfar
og afstöðu. „Mikilvægasta ábending
nefndarinnar er að yfirmenn á öllum
stigum í stjórnsýslunni vinni skipulega
að því að efla grundvallarviðhorf og
þankagang, bæði sín eigin og stofnan-
anna, gagnvart áhættumati, við-
bragðsgetu, samstarfi, netnotkun og
árangursmiðaðri stjórnun.“
Skiptar skoðanir um afsögn
Miklar umræður voru í gær á sam-
skiptavefjum um hvatningu VG og
skoðanir afar skiptar. Heimildarmenn
Aftenposten segja ólíklegt að skýrslan
kosti ráðherrann stólinn. Það fari þó
eftir því hve vel honum takist upp þeg-
ar þing komi saman til að fjalla um
skýrsluna. „Þegar meirihlutastjórn er
við völd er mjög erfitt að sjá fyrir sér
að ríkisstjórnin fari frá,“ segir Bjørn
Erik Rasch, prófessor í stjórnvísind-
um við Óslóarháskóla. Ávallt sé um
mikla jafnvægislist að ræða þegar
ráðamenn segist axla ábyrgð án þess
að það hafi nokkar afleiðingar fyrir þá
„en ég tel meiri líkur á breytingum í yf-
irstjórn lögreglunnar en í ríkisstjórn-
inni“.
Háttsettir ráðamenn
sváfu á verðinum
Stoltenberg segist axla ábyrgð á vanrækslu yfirvalda í
öryggismálum en talið ólíklegt að hann segi af sér
Jens Stoltenberg
Leif Persson, prófessor í af-
brotafræði í Svíþjóð, álítur
ljóst að norska lögreglan hafi
brugðist, segir í Dagens
Nyheter. Ekki voru settir upp
vegatálmar, ekki gefin út
landsviðvörun, ekki náð í
þyrlu, grannhéruð ekki beðin
um aðstoð. Og viðbragða-
áætlun var ekki notuð en
reyndar nýtist þær að jafnaði
lítið þegar á reyni. Persson
telur að sænska lögreglan
hefði ekki staðið sig neitt
betur ef hún hefði þurft að
kljást við álíka vanda – og
hún muni varla læra neitt af
mistökum Norðmanna.
Ekkert skárra
í Svíþjóð?
SEIN VIÐBRÖGÐ LÖGREGLU