Morgunblaðið - 15.08.2012, Side 19

Morgunblaðið - 15.08.2012, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Bannað Piltarnir freistuðust til að teika strætisvagn á Hverfisgötunni en vita að það getur verið stórhættulegt og gera það örugglega aldrei aftur. Eggert Ríkisútvarpið flutti fyrr í vikunni fréttir af gangi þeirrar und- irbúningsvinnu, sem ríkisstjórnarmeiri- hlutinn á þingi hefur ákveðið í sambandi við stjórnarskrárbreyt- ingar. Meðal þess sem fram kom var að lög- fræðingahópur, sem stjórnarmeirihlutinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk í vor til að fara yfir tillögur stjórnlagaráðs, myndi trúlega ekki skila niðurstöðum sínum fyrr en að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu, sem meirihluti Alþingis ákvað 24. maí sl. að fram skuli fara einhvern tímann í sumar eða haust, en þó eigi síðar en 20. október. Það hefur að vonum vakið furðu margra, að þessi tvö verkefni, þ.e. vinna lögfræðingahópsins annars vegar og undirbúningur þjóðar- atkvæðagreiðslu hins vegar, væru í gangi á sama tíma, án þess að um nokkurt innbyrðis samhengi væri að ræða. Vinna lögfræðingahópsins eigi að hafa sinn gang án tillits til þess að ætlunin sé að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu, og þjóðar- atkvæðagreiðslan eigi að fara fram hvort sem lögfræðingarnir hafi skilað niðurstöðum sínum eða ekki. Þetta er auðvitað sérkennilegt í ljósi þess að viðfangsefnið er það sama; að fjalla um tillögurnar sem stjórnlagaráð afhenti forseta Al- þingis þann 31. júlí 2011. Lögfræðingunum er, samkvæmt bókun meirihlutans í stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd, ætlað eft- irfarandi hlutverk: „…að skoða og fara lagatæknilega yfir tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar- skrá. Tillögurnar verða yfirfarnar nokkurra vel metinna lögfræðinga. Þetta er auðvitað furðulegt vinnu- lag, hvernig sem á það er litið. Það ætti að vera óþarft að taka fram að þessum áformum var mót- mælt harðlega af fulltrúum stjórn- arandstöðunnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á sínum tíma og komu þau sjónarmið líka fram í umræðum á þingi. Jafnframt kom fram að þingmenn stjórnarand- stöðunnar gerðu í sjálfu sér engar athugasemdir við að lögfræð- ingahópnum væri falið það verk- efni, sem hér um ræðir, en sam- hengi eða samhengisleysi í vinnu þeirra og undirbúningi fyrirhug- aðrar þjóðaratkvæðagreiðslu vekti furðu. Þjóðaratkvæðagreiðslan væri fullkomlega ótímabær í haust í ljósi þess að vinnan við tillögur að stjórnarskrárbreytingum væri í miðju kafi. Þessi tiltekna uppsetning hlut- anna af hálfu þingmeirihlutans og forystu hans setur þjóðaratkvæða- greiðslu í haust í svolítið sérstakt ljós. Þar kemur auðvitað fleira til, sem vonandi gefst kostur á að rekja fljótlega. Og læt ég þá alveg liggja milli hluta þá spurningu, hvort búið sé að taka ákvörðun með formlega réttum hætti um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október en ekki einhvern allt ann- an dag. og skoðaðar m.a. með tilliti til eftirfarandi atriða: a) mannréttinda- sáttmála sem íslenska ríkið hefur skuld- bundið sig til að fara eftir, b) innra samræmis og mögulegra mót- sagna, c) réttarverndar miðað við gildandi stjórnarskrá og grein- argerð með tillögum d) málsóknamöguleika gegn rík- inu Sérfræðingarnir hafa einnig ver- ið beðnir um að yfirfara grein- argerð stjórnlagaráðs með til- lögum þess og skrifa drög að greinargerð með frumvarpinu.“ Það er því alveg ljóst að lögfræð- ingunum er ætlað viðamikið verk- efni og niðurstöður þeirra hljóta að skipta miklu máli þegar tekin er af- staða til tillagna stjórnlagaráðs. Hér er alls ekki bara um einhvern lögfræðilegan prófarkalestur að ræða, eins og stundum hefur mátt ráða af talsmönnum stjórnarmeiri- hlutans á þingi. Og um hvað á svo þjóð- aratkvæðagreiðslan svokallaða í haust svo að fjalla? Jú, meg- inspurningin, sem ætlunin er að leggja fyrir kjósendur, er sú hvort þeir vilji að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar að nýju frumvarpi til stjórnarskipunarlaga, sem lagt verði fram á þingi í haust. Eins og tímaramminn lítur nú út er ljóst að niðurstaða hinnar lög- fræðilegu vinnu á ekki að skipta neinu máli í því samhengi. Kjós- endur eiga að svara fram- angreindri spurningu jákvætt eða neikvætt, án þess að hafa nokkra hugmynd um niðurstöður eða af- rakstur margra mánaða vinnu Eftir Birgi Ármannsson » Það er því alveg ljóst að lögfræðingunum er ætlað viðamikið verk- efni og niðurstöður þeirra hljóta að skipta miklu máli. Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Skringilegur ferill stjórnarskrármáls Forystumenn Sam- fylkingarinnar eru sannfærðir um að það sé vænlegt til árangurs að beita hótunum gagn- vart pólitískum and- stæðingum. Þeim tókst að brjóta vinstri græna til hlýðni í ríkisstjórn og fá þá til að svíkja eitt helgasta kosningalof- orð sitt – að standa heilshugar gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á síðustu mánuðum ársins 2008 – mitt í hruninu – varð samfylkingum tölu- vert ágengt gagnvart sjálfstæð- ismönnum, sem hröktust undan kröfu um að Ísland gerðist aðili að Evrópusambandinu. Samstarfið við Samfylkinguna hefur reynst Vinstri grænum dýr- keypt. Þrír þingmenn sögðu skilið við þingflokkinn árið 2012 og flokk- urinn stendur höllum fæti meðal kjósenda. Brestir komu í ljós snemma á kjörtímabilinu. Fyrst varðandi umsókn að Evrópusam- bandinu, síðan við afgreiðslu á Ice- save-lögum, þá við afgreiðslu fjár- laga. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2011 kom í ljós að þrír þing- menn VG töldu sig ekki geta stutt lögin. Alti Gíslason, Lilja Móses- dóttir og Ásmundur Einar Daðason, sátu hjá við afgreiðslu þeirra. Síðar gengu þau úr þingflokki Vinstri grænna. Þremenningarnir unnu sér inn óhelgi í hugum forystu Samfylk- ingarinnar. Þingmenn VG voru kall- aðir kettir og Lilja hryssa og Ás- mundur Einar og Atli folöldin þeirra. Ekki jafningar Jóhanna Sigurð- ardóttir og Össur Skarphéðinsson hafa aldrei litið á liðsmenn Vinstri grænna sem jafninga heldur aðeins sem nauðsynlega meðreiðasveina á leið inn í draumaland Evr- ópusambandsins og evrunnar. Þess vegna er talað niður til þeirra í hvert sinn sem ástæða er talin. Þessu fékk Jón Bjarnason að kynn- ast þegar forsætisráðherra sagði hann bera ábyrgð á að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu náðu ekki fram – hann hefði verið að „dunda“ við málið, sem Össur Skarphéðinsson líkti við bílslys. „Vandamál ríkisstjórnarinnar, er að mínu mati Jóhanna Sigurð- aróttir sjálf,“ svaraði Jón Bjarna- son, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann var rekinn úr ríkisstjórninni. Katrín Jakobsdóttir, mennta- málaráðherra og varaformaður VG, og Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra hafa lýst því yfir að end- urmeta þurfi stöðuna í viðræðunum við Evrópusambandið. Setja um- sóknina á ís, draga til baka eða efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram. Árni Þór Sigurðs- son, formaður utanríkisnefndar, virðist vera sömu skoðunar. Össur Skarphéðinsson brást við með því að hóta stjórnarslitum. Jóhanna Sigurðardóttir talaði af þjósti og sakaði þingflokk VG um kosningaskjálfta og engin ástæða væri til að endurskoða aðildar- viðræðurnar vegna „panic“ viðbragða. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur flokksins, vísar hins vegar á að- stoðarmenn sína til að meta hvort ástæða sé til að ræða við fjölmiðla um málið. Stjórnarslit eða heimabrúk Sá er þetta skrifar hefur haldið því fram að Vinstri grænir séu að und- irbúa stjórnarslit. Forysta Vinstri grænna verður að þjappa liði sínu saman og fátt er betur til þess fallið en að láta samstarfið við Samfylk- inguna brotna á Evrópumálum. Aðr- ir halda því fram að ummæli Katr- ínar og Svandísar séu aðeins til heimabrúks til að lægja öldurnar innan flokksins. Ekki er víst að það takist enda eru margir flokksmenn reiðir og kjósendur hafa snúið baki við flokknum, líkt og skoðanakann- anir sýna. Kosningasigurinn frá 2009 hefur þurrkast út og gott betur. Ekkert hefur leikið VG verr en að- ildarumsóknin til Evrópusambandið með stuðningi meirihluta þingflokks- ins. Málflutningur Steingríms J. Sig- fússonar um Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands, hefur gjör- breyst frá því hann tók höndum sam- an við Jóhönnu Sigurðardóttur í rík- isstjórn. Í nóvember 1999 talaði hann um „skollaleik“ sem hafi verið að- dragandi þess að koma löndum inn í Evrópusambandið. Í desember 2011 lagðist Steingrímur J. hins vegar á móti því að aðildarviðræðum við Evr- ópusambandið væri frestað. Þá taldi hann nauðsynlegt að láta reyna á „eitthvað af grundvallarhagsmunum okkar í viðræðum þannig að við séum einhverju nær“. Þetta er þvert á það sem Steingrímur hélt fram árið 1999 þegar hann sagði að það lægi fyrir í öllum meginatriðum, hvað fælist í að- ild. Gegn þjóðaratkvæðagreiðslu Í maí 2012 greiddi Steingrímur at- kvæði gegn því að efnt yrði til þjóð- aratkvæðis um hvort halda skyldi að- ildarviðræðum áfram. Tíu þingmenn Vinstri grænna lögðust gegn því að áðurnefnd þjóð- aratkvæðagreiðsla færi fram. Þjóð- aratkvæðagreiðsla hefði þó verið í samræmi við yfirlýsingu sem for- maður Vinstri grænna gaf á Alþingi þegar samþykkt var að hefja við- ræður. Steingrímur J. Sigfússon sagði í umræðum um atkvæða- greiðsluna 16. júlí 2009: „Öll eigum við það sameiginlegt, þingmenn VG, að áskilja okkur rétt til málflutnings og baráttu utan þings sem innan í samræmi við grundvallaráherslur flokksins og okkar sannfæringu. Það tekur einnig til þess að áskilja okkur rétt til þess að slíta samningaviðræðum séu þær ekki að skila fullnægjandi árangri á hvaða stigi málsins sem er sem og auðvitað að hafna óviðunandi samn- ingsniðurstöðu.“ Þingmenn VG áskildu sér því rétt til þess að styðja tillögu um að draga umsókn um aðild að Evrópusam- bandinu til baka, hvenær sem er óháð þátttöku í ríkisstjórn, enda ljóst að umsóknin væri ekki að skila tilætl- uðum árangri. Fram til þessa hefur Steingrímur J. Sigfússon ekki viljað láta reyna á þessa yfirlýsingu, ekki einu sinni með því að samþykkja að láta kjósendur skera úr um málið með beinum hætti. Yfirlýsingar Katrínar Jakobsdóttur og Svandísar Svavarsdóttur gefa tilefni til að ætla að nú verði breyting á enda augljóst að Vinstri grænir geta ekki gengið til kosninga með Evrópusambandið og aðildarviðræðurnar hangandi yfir sér. Tveir kostir Engan skal undra að margir fé- lagar Steingríms J. haldi því fram að forysta flokksins hafi svikið grunn- stefnu flokksins. Hjörleifur Gutt- ormsson, sem gekk úr Alþýðu- bandalaginu með Steingrími árið 1998, eftir að samþykkt var að taka þátt í stofnun Samfylkingarinnar, segir að það sé „orðið verkefni fyrir sálfræðinga að lesa í málflutning“ Steingríms J. í Evrópumálum. Steingrímur J. á tvo kosti í stöð- unni. Hann getur haldið áfram sam- starfinu við Jóhönnu og Össur og jafnvel samþykkt að bola óþægum ráðherrum úr ríkisstjórn eða hann getur látið sverfa til stáls og end- urnýjað með því trúnað við stefnu Vinstri grænna. Velji Steingrímur J. fyrri kostinn er vandséð með hvaða hætti hann ætlar að eiga samræður við kjósendur í aðdraganda kosn- inga. Trúverðugleikinn verður lítill sem enginn. Kannski er Steingrímur J. tilbúinn til að greiða hvað sem er fyrir samstarfið við Samfylkinguna og velþóknun Jóhönnu og Össurar. Eftir Óla Björn Kárason » Velji Steingrímur J. fyrri kostinn er vandséð með hvaða hætti hann ætlar að eiga samræður við kjósendur í aðdraganda kosninga. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Dýrkeypt samstarf við Samfylkinguna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.