Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
✝ Gunnlaugur M.Kjerúlf fæddist
á Hrafnkelsstöðum
í Fljótsdal 9. des-
ember 1919. Hann
lést á heimili sínu á
Egilsstöðum 6.
ágúst 2012.
Foreldrar Gunn-
laugs voru Metú-
salem J. Kjerúlf
bóndi, f. á Melum í
Fljótsdal 14.1.
1882, d. 12.12. 1970, og Guðrún
Jónsdóttir f. á Hólum í Horna-
firði 4.4. 1884, d. 3.2.1956.
Fæddust þeim hjónum 17 börn.
Þau eru: Aðalbjörg f. 16.4.
1906, d. 2.11. 1949; Jónína Guð-
rún f. 11.4. 1907, d. 1921; Þor-
björg f. 27.11. 1908, d. 13.11.
1975; Stúlka f. andvana 27.11.
1909; Sigurður f. 30.10. 1910, d.
10.5. 1915; Jón f. 3.2. 1912, d.
29.9. 1970; Andrés f. 6.2. 1913,
d. 30.5. 1913; Anna f. 20.5. 1914,
d. 29.7. 1995; Eiríkur f. 30.10.
1915, d. 11.5. 1991; Sigríður f.
10.2. 1917, d. 23.4. 1998; Hjört-
ur f. 3.4. 1918, d. 15.9. 1919;
Andrés Hjörtur f. 21.1. 1921, d.
21.2. 1979; Guðrún f. 22.1. 1923;
Ragnhildur Björg f. 22.1. 1923,
d. 6.3. 1999; Stefán f. 21.5. 1924,
brún, f. 20.4. 1968. Maki: Stein-
ar Gunnarsson, f. 12.2. 1969.
Börn þeirra: Elísabet Ýrr, f.
21.10. 1993, Steinar Gunnar, f.
28.6. 2000, og Tómas Axel, f.
9.11. 2001; Gunnlaugur, f. 29.4.
1969. Maki: Harpa Hlín Jón-
asdóttir, f. 23.10. 1968. Dætur
þeirra: Védís Hrönn, f. 10.1.
1991, Steinunn Bjarkey, f. 5.5.
1996, og Elísabet Arna, f. 29.11.
2002.
2) Aðalbjörg, f. á Egils-
stöðum 24.11. 1950, búsett á
Vopnafirði. Maki: Jón Pétur
Einarsson f. á Vopnafirði 16.4.
1950. Dóttir þeirra: Una Björk
Kjerúlf, f. 5.4. 1975. Maki: Hilm-
ar Þór Guðmundsson, f. 24.5.
1972. Þau skildu. Börn þeirra:
Auður Ísold f. 28.2. 2004 og
Jökull Þór f. 16.1. 2007.
Árið 1942 hóf Gunnlaugur
búskap með Unu að Arnhóls-
stöðum í Skriðdal í tvíbýli við
Sigríði systur sína og mann
hennar, Einar Pétursson. Árið
1946 fluttu Gunnlaugur og Una
í Buðlungavelli í Vallahreppi og
bjuggu þar til ársins 1962 en þá
fluttust þau til Egilsstaða. Hóf
Gunnlaugur vinnu hjá Kaup-
félagi Héraðsbúa og vann þar
allan sinn starfsaldur eða til 72
ára aldurs. Í nokkur ár var
hann sláturhússtjóri hjá Kaup-
félaginu en lengst af vann hann
við afgreiðslustörf.
Útför Gunnlaugs fer fram frá
Valþjófsstaðarkirkju í dag 15.
ágúst 2012 klukkan 14.
d. 7.8. 1968 og Ás-
dís f. 17.7. 1926, d.
28.3. 2007.
Kona Gunnlaugs
var Una J. Kjerúlf,
f. í Brekkugerði í
Fljótsdal 10.5.
1921, d. 25.5. 1991.
Foreldrar hennar
voru Jörgen E.
Kjerúlf f. 15.6.
1878, d. 27.5. 1961,
og Guðrún Björg
Elísabet Jónsdóttir f. 5.3. 1882,
d. 22.4. 1972. Dætur Gunnlaugs
og Unu eru tvær:
1) Guðrún Elísabet, f. á
Hrafnkelsstöðum 5.7. 1941, bú-
sett á Egilsstöðum. Maki: Axel
Haraldur Ólafsson, f. 20.8. 1943,
d. 21.9. 1987. Þau skildu. Börn
þeirra eru: Rúnar Ólafur, f.
19.6. 1965. Maki: Valdís Hauks-
dóttir, f. 13.10. 1969. Þeirra
börn: Axel Snær, f. 24.8. 1998,
og Brynja Líf, f. 1.2. 2003. Dótt-
ir Rúnars úr fyrri sambúð er
Auður Hlín, f. 6.3. 1990. Móðir
hennar er Halla Auðunardóttir,
f. 27.4. 1971; Ægir, f. 19.3. 1967.
Maki: Vigdís Hulda Kristjáns-
dóttir, f. 11.9. 1964. Synir
þeirra: Elvar Þór, f. 3.1. 1989,
og Unnar Már f. 17.3. 1992; Kol-
Minn góði vinur, Gunnlaugur
Kjerúlf, er látinn, níutíu og
tveggja ára að aldri. Hann fékk
hægt andlát í svefni rétt rúm-
um sólarhring eftir að við vin-
irnir höfðum átt dagstund sam-
an og rifjað upp gamlar
minningar. Viltu hafa það betra
– varð Gunnlaugi oft að orði ef
honum fannst eitthvað hafa
lukkast vel. Nei, það varð sann-
arlega ekki á betra kosið. Hann
hafði lifað langa og farsæla ævi,
sáttur við guð og menn, þess
albúinn að stíga yfir á aðrar
lendur. Gunnlaugur Kjerúlf var
gegnvandaður maður að allri
gerð. Orðvar og hæverskur,
skyldurækinn svo af bar, mátti
ekki til þess hugsa að bregðast
í nokkrum hlut er honum var
trúað fyrir. Einstaklega hjálp-
samur og greiðvikinn ef leitað
var til hans og munu margir til
vitnis um það þegar hann lagði
allt til hliðar sem hann var að
fást við og lagði á sig ómælt
erfiði til að leysa hvern þann
vanda sem við var að etja. Ætíð
með slíkri ró og yfirvegun sem
væri honum einstök ánægja og
heiður að geta liðsinnt þeim
sem í hlut átti.
Lopapeysa var það sem
leiddi okkur saman. Peysa sem
móðir mín lánaði honum eitt
sinn í vetrarkuldum á Egils-
stöðum með þessum orðum:
Hérna, Gunnlaugur minn, þessi
peysa hefur oft hlýjað honum
Eysteini mínum, hún getur allt
eins hlýjað þér. Þá höfðum við
Gunnlaugur ekki enn haft
spurnir hvor af öðrum. Lopa-
þráðurinn sá arna átti eftir að
halda hátt í hálfa öld. Vinátta
okkar þróaðist hægt og var-
færnislega framan af en efldist
með hverju ári. Þær eru orðnar
býsna margar ferðirnar sem við
fórum saman á vit óspilltrar
náttúru, inn til dala, upp um
heiðar, oft að fjallavötnum,
fjarri ys og þys nútímans.
Tjölduðum gjarnan eina til
tvær nætur, sáum sólina ganga
undir og koma svo upp aftur að
vörmu spori. Heyrðum him-
brimann syngja, fylgdumst með
óðinshananum kvika í vatns-
skorpunni, skoðuðum hug-
fangnir hreiður í móa og kjarri.
Af engum manni hef ég
meira lært um margslungna
þræði íslenskrar náttúru en
Gunnlaugi Kjerúlf og kenndi
hann mér að meta öll þau und-
ur að verðleikum. Þegar ég
kveinkaði mér eitt sinn í bréfi
undan vetrarlöngum aðskilnaði
okkar skrifaði hann til baka
mér til hughreystingar og lauk
bréfinu þessum orðum: Hug-
ans leið er hægt að rata/
haustkvöld dimm sem björtu
vorin. Og víst er um það, minn
kærasti vinur, að meðan ég
held ráði og rænu mun ég rata
til minninganna um óska-
stundir okkar við fjallavötnin
fagurblá. Hafðu heila þökk fyr-
ir allt.
Elsu og Aðalbjörgu, svo og
öllum afabörnunum votta ég
mína dýpstu samúð.
Eysteinn Björnsson.
Ég var upp með mér að
hann kallaði mig nafna sinn og
hélt lengi í hönd hans á úti-
dyratröppunum heima á Sól-
heimum uns mamma bað hon-
um vægðar svo hann mætti
koma inn fyrir. Ekki veit ég
erindið og hefur sjálfsagt ekki
verið brýnt utan það að líta inn
hjá þessum næstu nágrönnum
sínum í hreppnum og góðum
vinum. Kvöldaði og pabbi
kveikti á gasluktinni, sem svo
var kölluð, eins konar sam-
blandi af prímus og Aladín-
lampa, og gaf svo skæra birtu
að okkur var ráðlagt að horfa
ekki í það ljós. En nú þurfti
birtunnar með því að gesturinn
var að handfjatla eldhúsklukk-
una sem hafði bilað fyrir
nokkru og vakti hjá foreldrum
mínum það venjubundna við-
kvæði við slíkar aðstæður að
þau skyldu biðja Gunnlaug að
líta á þetta næst þegar hann
kæmi. Og Gunnlaugur á Buðl-
ungavöllum, innsta bæ í Valla-
hreppi, kom og leit á eldhús-
klukku foreldra minna. Eitt af
öðru lágu á eldhúsborðinu
skrúfur, tannhjól og gangráð-
urinn, þetta dularfulla hjól sem
snerist fram og til baka í takt
við tikk-takk klukkurnar.
Í æsku minni nutum við
handlagni Gunnlaugs við allt
sem bilaði vélarkyns á heim-
ilinu, saumavélina, eldhús-
klukkuna, skilvinduna og
prjónavélina sem mamma átti í
félagi við nokkrar konur í sveit-
inni. Við horfðum hugfangin á
þennan gest, börnin, mann sem
gat gert við klukkur og kom í
hlaðið á gráum hesti að jafnaði
en var fótgangandi í þetta sinn.
Kvaddi með kossi og nafna sinn
með löngu handabandi að venju
en pabbi fylgdi honum á leið.
Upp úr lágnættinu vaknaði ég
við að þeir stóðu undir hús-
veggnum og töluðu saman.
Pabbi hafði fylgt vini sínum
heim í túngarð en honum
fannst ekki mega minna vera
en að endurgjalda samfylgdina
með því sama. Einhvern tímann
undir morgun hafa þessir ná-
grannar og vinir sæst á að
skiljast miðja vegu milli bæj-
anna, hafa kvaðst, gengið af
stað, litið við og veifað í kveðju-
skyni.
Það var sunnudagur í lok
fyrri sláttar. Gunnlaugur sat á
þúfu við túnfótinn út og niður
af bænum og við í kring: „Þetta
er góður gripur sem þú hefur
fengið leyfi til að eignast,
gæskur, en mundu að þetta er
ekki leikfang“. Pabbi hafði látið
undan þrábeiðni Dæa, elsta
bróður míns, og leyft honum að
eignast byssu ári fyrr en þá
tíðkaðist í sveitum. Með því
skilyrði að Gunnlaugur kenndi
honum að fara með hana.
Við vorum flutt út í Hall-
ormsstað og þetta sumar geng-
um við sunnudag eftir sunnu-
dag, bræðurnir, sem leið lá inn
í Buðlungavelli þar sem Gunn-
laugur kenndi Dæa allt sem
hægt var að læra tólf ára gam-
all um tuttugu og tveggja kalí-
bera riffil með magasíni.
Hann kenndi okkur sannar-
lega að umgangast þennan grip
af varúð og virðingu en um leið
gaf hann okkur, sem endranær,
af ljúfmennsku sinni og vináttu,
af ást sinni á náttúrunni og
þekkingu sinni á landinu. Sann-
ur og látlaus í hátt. Þannig tók
hann sér bólfestu í hugarheimi
okkar. Þegar við minnumst nú
og iðulega Gunnlaugs á Buðl-
ungavöllum finnum við hvað
æskukynni okkar af þessum
góða dreng hafa skilið eftir sig
bjarta mynd af honum sjálfum
en um leið af þeirri mildu ver-
öld sem þau kynni veittu okkur
hlutdeild í.
Gunnlaugur Sigurðsson
frá Hallormsstað.
Gunnlaugur M.
Kjerúlf
Kær tengdamóðir mín hefur
kvatt þessa jarðvist. Þó sökn-
uður fylli hjarta mitt er þakk-
læti fyrir hennar hönd ríkjandi.
Hún var orðin mjög þreytt og
veik og þráði að komast til
Halla síns, sem fór fyrir mörg-
um árum. Hún var lengi ósátt
við Guð að hafa tekið hann frá
henni svo snöggt. Ég kom fyrst
til hennar 16 ára gömul og tók
hún mér strax eins og dóttur.
Hún var ekki einungis tengda-
móðir mín heldur líka ein allra
besta vinkona sem ég hef átt.
Ég var saklaus sveitastúlka
fjarri föðurhúsum og móður-
höndum. Aðeins 17 ára eign-
aðist ég fyrsta barnabarnið
Elín Hannesdóttir
✝ Elín H. Hann-esdóttir fædd-
ist í Hleiðargarði í
Saurbæjarhreppi,
Eyjafirði 9. maí
1926. Hún lést 5.
júlí 2012.
Útför Elínar fór
fram frá Akur-
eyrarkirkju 16. júlí
2012.
hennar og vék hún
ekki frá mér þá tvo
sólarhringa sem
það tók. Hún upp-
fræddi mig um allt
sem ung kona og
móðir þurfti að
vita. Hún kenndi
mér að halda heim-
ili, sauma, elda,
baka og hvað það
er ég þurfti á að
halda.
Hún tók ekki
einungis mér opnum örmum við
fyrstu kynni, heldur líka for-
eldrum mínum og systkinum og
var mikill vinskapur á milli fjöl-
skyldnanna.
Ella var glaðvær og hlý
kona, sem bar hag fjölskyld-
unnar fyrir brjósti, sérstaklega
allra barnabarnanna og lang-
ömmubarnanna. Ekki fyrir
löngu sagði hún við mig að
þetta væri stór og fallegur hóp-
ur sem hún ætti og meðan hún
hafði heilsu fannst henni gam-
an að þurrka af myndunum af
þeim og spjalla aðeins við hvert
og eitt þeirra í leiðinni.
Hún hafði ríka réttlætis-
kennd og næma siðferðistilfinn-
ingu og fannst erfitt að sjá fólk
ranglæti beitt og var alltaf
tilbúin að aðstoða ef þörf var á.
Á meðan hún bjó í Víðimýrinni
var oft gestkvæmt og margir í
heimili, þrátt fyrir það sinnti
hún saumaskap í fullu starfi
heima. Aðstaðan var í svefn-
herbergi þeirra Halla og kvart-
aði hann stundum undan títu-
prjónum í hjónarúminu. Eftir
fráfall hans flutti hún í Skarðs-
hlíðina og þar sem við vorum
flutt austur á land áttum við at-
hvarf hjá henni þegar við kom-
um í bæinn.
Gisting var líka oft vís fyrir
vini okkar og vandamenn. Eftir
að barnabörnin fullorðnuðust
var líka verið hjá ömmu í lengri
og skemmri tíma, það var ákaf-
lega dýrmætt fyrir þau. Nú á
seinni árum þegar ég var á ferð
norður yfir öræfin á vetrum
beið mín ávallt heit kjötsúpa
hjá henni.
Ég þakka Ellu fyrir alla um-
hyggjuna og vináttuna sem hún
sýndi mér og fjölskyldu minni í
gegnum árin og votta börnum
hennar og öðrum aðstandend-
um mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Guðlaug Ólafsdóttir.
✝
Eiginmaðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR INGIMUNDARSON,
Brekkubraut 13,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 5. ágúst.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 16. ágúst
kl. 13.00.
Árnína H. Sigmundsdóttir,
Sigrún Einarsdóttir, Snorri S. Skúlason,
Sigmundur Einarsson, Margrét Kjartansdóttir,
Inga Einarsdóttir, Þórarinn E. Sveinsson,
Valborg Einarsdóttir, Stefán Sæmundson,
Valdemar Einarsson, Sif Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
GÍSLI SCHEVING KRISTMUNDSSON,
Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði, mánudaginn 13. ágúst.
Útförin auglýst síðar.
Elín Kristín Kristmundsdóttir,
Anna Scheving Kristmundsdóttir,
Hallgrímur Kristmundsson,
Virgill Scheving Einarsson,
Hannesína Scheving Skarphéðinsdóttir,
Svanur Scheving Skarphéðinsson, Brynja Hafsteinsdóttir,
Kristmundur Skarphéðinsson, Ingunn Lúðvíksdóttir,
Elín Kristín Scheving Skarphéðinsdóttir
og börn.
✝
Ástkær móðir okkar,
ÞORBJÖRG THEODÓRSDÓTTIR
frá Bjarmalandi,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
mánudaginn 13. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 18. ágúst kl. 14.00.
Sólveig Sigurðardóttir,
Theodór Gunnar Sigurðsson,
Guðrún Ásta Sigurðardóttir.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ELÍSABET JÓHANNA SVAVARSDÓTTIR,
Hjallabrekku 29,
Kópavogi,
er látin.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Karitas, heimahjúkrun.
Læknum og öllu hjúkrunarfólki er þakkað fyrir góða umönnun.
Þökkum auðsýnda samúð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Ólafur Guðmundsson,
Sif Ólafsdóttir, Bjarni Ólason,
Hlín Ólafsdóttir, Halldór Birgir Halldórsson,
Freyr Ólafsson
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN ÞÓRISSON,
fyrrverandi skipstjóri,
áður til heimilis að Hamrahlíð 25,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 6. ágúst.
Útför fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 16. ágúst
kl. 13.00.
Svava Sveinsdóttir,
Júlía Margrét Þorsteinsdóttir, Skarphéðinn Reynisson,
barnabörn og aðrir aðstandendur.