Morgunblaðið - 15.08.2012, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur er 59 ára í dag. Hún stefnir aðþví að halda upp á afmælið í faðmi fjölskyldunnar og er sér-staklega glöð yfir heimkomu sonar síns sem býr í New York.
„Ég ætla að hafa fiskibollur og þó að það hafi ekki verið venjan hing-
að til þá ég að spá í að hafa það að venju næstu 50 árin,“ segir Vigdís
og hlær við. „Mamma mín er fiskibollusérfræðingur og ég mun sækja
þær til hennar og bera þær svo á borð,“ segir Vigdís. Hún er kenn-
aramenntuð auk þess að vera með BA-próf í íslensku og bókmennta-
fræði frá Háskóla Íslands. Vigdís hefur einnig lokið gráðu í uppeld-
isfræði. Best þekkt er hún þó fyrir ritstörf sín og vinnur nú að
ástarsögu. „Ég er að vinna að yndislegustu ástarsögu í heimi,“ segir
Vigdís. Hún vill ekki gefa upp titil bókarinnar. „Ekki get ég látið hana
heita yndislegasta ástarsaga í heimi. Og þó,“ segir hún og hlær. Vig-
dís býr í Reykjavík og á tvö börn. Hólmar sem er tónlistarmaður og
Þórdísi sem er einkaþjálfari. „Ég er svo mikið afmælisbarn í hjarta að
annað eins þekkist varla. Það er nú líka vegna þess að strákurinn
minn er hérna. Þá er allt svo gott. Við sjáumst bara einu sinni á ári því
hann býr í New York,“ segir Vigdís. Spurð um áhugamál utan rit-
starfa segir hún að henni finnist fátt skemmtilegra en að spjalla. „Ég
er svona spjallari. Ekkert er betra en að gera það í þægilegu veðri, en
ekki of mikilli sól,“ segir Vigdís. vidar@mbl.is
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur er 59 ára
Vigdís Grímsdóttir Rithöfundurinn er 59 ára í dag og ætlar að fagna
með því að bjóða til fiskibolluveislu í faðmi fjölskyldunnar.
Annað eins afmælis-
barn þekkist varla
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Jóhannes, Freyja og Jóhanna á Akureyri söfnuðu flöskum sem þau seldu fyrir
3.235 krónur. Upphæðin rann öll til Rauða krossins.
Söfnun
Noregur Helga Dís fæddist 31. júlí kl.
21.44. Hún vó 4.035 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Anna Huld
Jóhannsdóttir og Ernir Brynjólfsson.
Nýr borgari
Y
ngi Karl fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp í Langholtshverf-
inu. Hann var í Hlíða-
skóla, Langholtsskóla,
lauk stúdentsprófi frá MS 2002, var
sendisveinn í Kaupmannahöfn í eitt
ár, stundaðí nám á hönnunarbraut
Tækniskóla Íslands og útskrifaði
2007, starfaði við mótelsmíði á arki-
tektastofunni Batteríinu í Hafn-
arfirði 2007-2008 og lauk BA-prófi í
arkitektúr frá Listaháskóla Íslands
vorið 2011. BA-ritgerð hans ber
heitið Lestur okkar á umhverfi:
hvernig snerta óáþreifanleg bygg-
ingarefni við okkur?
Yngvi Karl starfar nú á arkitekta-
stofunni Yrki – Arkitektar, og er á
leið til Danmerkur þar sem hann
hefur MA-nám í arkitektúr við Há-
skólann í Árósum í haust.
Yngi Karl hefur, ásamt fleirum,
unnið að verkefninu Eyðibýli á Ís-
landi. Það snýst um skrásetningu,
ljósmyndun og ýmsar heimildarann-
sóknir á yfirgefnum íbúðarhúsum á
Íslandi, hvort sem um er að ræða
hús í þéttbýli eða til sveita.
Í fyrra kom út fyrsta bindið af rit-
um þessa verkefnis en tvö önnur
bindi munu koma út nú á næstunni.
Hinn algjöri íþróttaálfur
Yngvi Karl stundaði fjölda
íþróttagreina á unglingsárunum.
Hann æfði og keppti í knattspyrnu
með Þrótti – Reykjavík; æfði og
keppti í handbolta með Víkingi –
Reykjavík; æfði og keppti með yngri
flokkum Vals í körfubolta, keppti í
badminton með TBR og í íshokkíi
með Skautafélagi Reykjavíkur. Þá
Yngvi Karl Sigurjónsson, BA í arkitektúr – 30 ára
Fjölskyldan Yngvi Karl og Lilja Ösp Sigurjónsdóttir viðskiptafræðingur með Sunnu Maríu og Kötlu Karitas.
Umhverfi – undirvitund
Eyðibýlahópurinn Hópurinn tekur á móti viðurkenningu frá forsetanum á
Bessastöðum. Frá vinstri: Arnþór Tryggvason; Birkir Ingibjartsson; Yngi
Karl, Steinunn Eik Egilsdóttir og Árni Gíslason.
Ljósmynd /María Rúnarsdóttir
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
samskipti@tonaflod.is | www.tonaflod.is
Fyrirtæki með yfir 20 ára reynslu
Vantar þig heimasíðu?
...eða er kominn tími til að hressa upp á þá gömlu?
Sími 553 0401
Engin útborgun, 0% vextir
Bjóðum vaxtalaus lán í allt að 12 mánuði
fyrir VISA og Mastercard korthafa