Morgunblaðið - 15.08.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 15.08.2012, Síða 27
æfði hann blak, varð Íslandsmeistari í blaki með Þrótti og lék með ung- lingalandsliði í blaki um skeið. Hann æfði auk þess og keppti í frjálsum íþróttum með Ármanni en spilar nú bumbubolta í knattspyrnu með fé- lögum sínum. Yngvi Karl lærði á gítar í einka- tímum um árabil frá tólf ára aldri og lék með ýmsum bílskúrsböndum á unglingsárunum. Hann hlustar mik- ið á tónlist, einkum djass, blús, rokk og indí en hefur einnig áhuga á ýmis konar klassískri tónlist. Umhverfisskynjun: flókið ferli Yfirskriftin á BA-ritgerðinni þinni er forvitnileg, Yngvi Karl. Segðu okkur svolítið frá ritgerðinni: „Já, þetta er nú svolítið huglægt og heimspekilegt efni. Ég er í raun að fjalla um það hvernig ýmsir um- hverfisþættir, aðrir en hreint form og efnismassi, hafa áhrif á skynfæri okkar og þar með tilfinningar og gildi. Okkur líður stundum vel í til- teknu umhverfi eða illa annars stað- ar, án þess að átta okkur á áhrifa- þáttunum. En hér skipta máli atriði eins og rými, ljós, skuggar, hlutföll, yfirborðsáferð og jafnvel margvísleg þekking okkar sem við tengjum við- komandi umhverfi, eins og t.d. menningarsaga eða vittneskja um voveiflega atburði. Að skynja um- hverfi er svolítið eins og að raða saman stóru og flóknu púsluspili.“ Fjölskylda Kona Yngva Karls er Lilja Ösp Sigurjónsdóttir, f. 16.9. 1982, við- skiptafræðingur, dóttir Sigurjóns Sigurbjörnssonar, starfsmanns hjá Marel og Íslandsmeistara í 100 kíló- metra hlaupi, og Maríu Jónsdóttur, textilhönnuðar og bókara. Dætur Yngva Karls og Lilju Asp- ar eru Sunna María Yngvadóttir, f. 7.10. 2007,og Katla Karitas Yngva- dóttir, f. 1.10. 2009. Alsystir Yngva Karls er Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir, f. 1.3. 1977, starfs- og námsráðgjafi hjá Mími – Símenntun. Hálfsystkini Yngva Karls: Valdi- mar Karl Guðlaugsson, f. 5.3. 1962, viðskiptafræðingur; Karl Höskuldur Guðlaugsson, f. 10.9. 1966, hagfræð- ingur; Ingibjörg Leifsdóttir, f. 25.3. 1970, leikskólakennari. Foreldrar Yngva Karls: Sigurjón Svavar Yngvason, f. 26.12. 1940, tæknifræðingur í Reykjavík, og Margrét Ingibjörg Valdimarsdóttir, f. 27.1. 1943, píanókennari og meina- tæknir. Úr frændgarði Yngva Karls Sigurjónssonar Þorsteinn Valdimarsson b. á Bakka í Bakkaf. Steinunn Stefánsdóttir húsfr. á Bakka. Guðbjörn Sigurjónsson b. á Króki í Flóa. Margrét Pálmadóttir húsfr. á Sauðfelli Sigurjón Jónsson b. í Kirkjuskógi í Dölum Kristín Ásgeirsdóttir húsfr. í Kirkjuskógi Yngvi Karl Sigurjónsson Sigurjón Svavar Yngvason tæknifræðingur í Rvík. Margrét Ingibjörg Valdimarsd lífeindafr. Sigrún Guðbjörnsdóttir húsfr í Rvík. Valdimar Þ. Karl Þorsteinss. skrifstofustj. í Rvík Þuríður Sigurjónsdóttir húsfr. á Sauðafelli og í Rvík Yngvi Finnbogason b. á Sauðafelli í Dölum og lagerm. í Rvík. Sigurður Sigurðarson, víglsubiskup í Skálholt Ólafur Sigurðsson fyrrv. fréttam Gissur Sigursson fréttamaður Gissur Gissurarson óperusöngvari Margrét Gissurardóttir húsfr. á Króki. Geir Gissurarson b. í Byggðarhorni Stefanía Gissurard. húsfr. á Selfossi Hjördís Geirsdóttir söngkona Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona Finnbogi Finsson b. á Sauðafelli. Sveinn Finnsson b. á Kolsstöðum Arndís Finnsdóttir húsfr. á Hólmlátri á Skógarströnd Ásmundur Sveinsson myndhöggvari Anna Sigfúsdóttir húsfr. í Drápuhlíð Sigfús Daðason skáld Afmælisbarnið Yngvi Karl. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Jón fæddist að Háagerði í Austur-Húnavatnssýslu þann 15.8.1882, sonur Björns Jónssonar, hreppstjóra á Veðramóti, og Þor- bjargar Stefánsdóttur frá Heiði í Gönguskörðum. Meðal systkina Jóns voru Haraldur Björnsson leikari og Björg, móðir Sigurðar, alþm. og rit- stjóra Morgunblaðsins. Meðal móð- ursystkina Jóns voru Sigurður, pr. í Vigur, og Stefán skólameistari, faðir Valtýs, ritstjóra Morgunblaðsins, og Huldu skólastjóra. Fyrri kona Jóns var Geirlaug Jó- hannesdóttir og eignuðust þau tíu börn: Stefán, arkitekt í Reykjavík; Jó- hönnu Margréti lengi húsfreyju í Nor- egi; Þorbjörgu, skólastjóra Hjúkr- unarkvennaskóla Íslands; Sigurgeir skrifstofumann; Björn, héraðslækni í Kanada; Ragnheiði Lilju, húsfreyju í Bandaríkjunum; Gyðu, húsfreyju í Reykjavík; Jóhannes Geir listmálara; Ragnheiði, húsfreyju í Reykjavík, móður Óskars, útgefanda Morg- unblaðsins, og Geirlaug bókbindara í Reykjavík. Fósturdóttir Jóns er Geir- laug Björnsdóttir meinatæknir. Seinni kona Jóns var Rósa Stefánsdóttir. Jón lauk gagnfræðaprófi frá Möðruvöllum 1899, kennaraprófi frá Jonstrup á Sjálandi 1908 en sótti jafn- framt námskeið við Kennaraháskóla Kaupmannahafnar 1905 og fór síðar utan í námsferðir. Jón var skólastjóri Barnaskóla Sauðárkróks frá 1908-52, og skóla- stjóri unglingaskóla þar 1908-46. Hann vann ötullega að málefnum góðtemplara, sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir regluna og var heiðursfélagi Stórstúku Íslands. Þá hlóðust á Jón almenn trún- aðarstörf enda maður virtur og vin- sæll með afbrigðum. Hann var hreppsnefndarmaður í tvo áratugi og oddviti lengst af, sóknarnefnd- arformaður í 40 ár, formaður Ung- mennafélagsins Tindastóls, sat í stjórn Rauða kross félags Skaga- fjarðar og Dýraverndunarfélags Skagafjarðar, var heiðursfélagi ým- issa samtaka og félaga og fyrsti heið- ursborgari Sauðárkróks. Jón lést 21.8. 1964. Merkir Íslendingar Jón Þ. Björnsson 95 ára Einar Kristjánsson 90 ára Oddný E. Thorsteinsson 85 ára Guðrún Guðjónsdóttir 80 ára Álfheiður Jetzek Árni Gunnlaugsson Margrét Jónsdóttir Pétur Pétursson 75 ára Hákon Sigurgrímsson Hermann Sigurðsson Marsibil Þórðardóttir 70 ára Björn Pálsson Díana B. Valtýsdóttir Kristín Thorarensen Páll Helgason 60 ára Björg Hauksdóttir Elín Kristín Sæmundsdóttir Guðbjörg Þrúður Gísladóttir María Sigríður Þórarinsdóttir Ólöf Anna Guðmundsdóttir 50 ára Ágústa Björnsdóttir Elísabet Traustadóttir Garðar Páll Vignisson Hafsteinn Hafsteinsson Hallgrímur Stefánsson Karólína D. Þorsteinsdóttir Laufey Arnardóttir Unnur Björk Snorradóttir 40 ára Aðalsteinn Arnar Jóhannesson Ástvaldur Jóhannesson Dalia Marija Morkunaite Guðrún Ósk Sigurðardóttir Halldóra Aðalsteinsdóttir Halldór Eyjólfsson Houria Oulad Idriss Kristín Ósk Sverrisdóttir Kristrún Helga Jóhannsdóttir Margrét Rúnarsdóttir Pétur Erling Leifsson Rúnar Laufar Ólafsson Sigurbjörg Björgvinsdóttir Sigursteinn Ívar Þorsteinsson Snjólaug Aðalgeirsdóttir 30 ára Berglind Ósk Aðalsteinsdóttir Guðmunda María Sigurðardóttir Guðni Ásgeirsson Magnús Hreggviðsson Roy Gústaf Jackson Sigmundur Davíðsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Sveinn Baldvinsson Þorsteinn Kristinn Ingimarsson Til hamingju með daginn 30 ára: Guðni lauk sveinsprófi í blikksmíði og stundar nám í vél- og orkutæknifræði við HR. Maki: Guðrún Þóra Hálf- dánsdóttir, f. 1983, við- skiptafr. við Arion banka. Dóttir: Kristín María, f. 2008. Foreldrar: Ásgeir Guðni Hjálmarsson, f. 1953, starfsmaður hjá Norð- lenska, og María S. Stef- ánsdóttir, f. 1956, starfsm. við Hlíf. Guðni Ásgeirsson 30 ára: Árný ólst upp á Akranesi, lauk þar sam- ræmdum prófum og er nú heimavinnandi. Maki: Guðlaugur Tóm- asson, f. 1978, ofngæslu- maður hjá ELKEM. Börn: Svanfríður Erla, f. 2001; Þórður Breki, f. 2007, og Gyða Karen, f. 2009. Foreldrar: Soffía Þórð- ardóttir, f. 1949, ljósmóðir, og Böðvar Björnsson, f. 1946, hjá Norðuráli. Árný Rós Böðvarsdóttir 30 ára Bergrún ólst upp á Höfn, lauk hjúkr- unarfræðiprófi frá HÍ og starfar við LSH í Reykja- vík. Maki: Ragnar Freyr Þor- steinsson, f. 1980, húsa- smiður. Synir: Benedikt Ísak, f. 2008, og Þorsteinn Leví, f. 2012. Foreldrar: Ólöf Óladóttir, f. 1959, sjúkraliði, og Benedikt Sigurbergsson, f. 1952, sjómaður á Höfn. Bergrún S. Benediktsdóttir - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga frá 11-16 VERÐHRUN! 70% AFSLÁTTUR AF ÚTSÖLUVÖRUM Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.