Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 28

Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR DÖMUR! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hrúturinn skammast sín ekki fyrir tilfinningar sínar og uppsker heilbrigði fyrir vikið. Mundu samt að gera ekki meiri kröfur til annarra en sjálfs þín. 20. apríl - 20. maí  Naut Varðandi ótilgreint atvik í sambandi, fellur allt í ljúfa löð innan tíðar. Allt virðist kosta of mikið, vera of mikil fyrirhöfn eða tilgangslaust. Láttu það eftir þér að kaupa þér eitthvað fallegt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur ekkert að skammast þín fyrir og getur því alveg horft stoltur framan í heiminn. Vertu bara sjálfum þér trúr og til- litssamur; þá fer allt vel. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Bestu lausnirnar koma ekki úr huga þínum heldur í gegnum hann. En fyrir- komulag sem reynt er að þröngva upp á þig virkar ekki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér liggur ekki lífið á að velja næsta skref í viðkvæmu máli. Leitaðu þér aðstoðar og komdu lagi á tilfinningalíf þitt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er eitthvað sem stendur í veg- inum fyrir því að þú náir þeim árangri, sem þú stefnir að. Forðastu ákveðið fólk. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er rangt að láta eigið skap bitna á öðrum. Vertu hvergi smeykur því þú hefur alla burði til að vinna verkið. Jarðarmerki á borð við nautið geta liðsinnt voginni við að koma hugmyndum í áþreifanlega mynd. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver uppákoma verður til þess að þú þarft að láta uppi hug þinn til máls, sem þú hefðir helst viljað láta kyrrt. Gefðu þér tíma til að vinsa þær bestu úr. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Lífið er til þess að fagna því. Stattu vörð um orðspor þitt og hlustaðu aldrei á sögur sem hafa ekki við nein rök að styðjast. Auðlegð og kraftur annarra kemur þér að góðum notum í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fjármálin þurfa aðgæslu við svo þú ættir að halda útgjöldunum niðri eins og frekast er kostur. Nú er rétti tíminn til þess að nota innsæið og bjóða fram aðstoð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að berjast fyrir sjálf- stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni. Vertu staðfastur og forðastu að falla í freistni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Skilgreiningin sem lýsir þér best núna er einbeittur. Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann á stuðningi þínum að halda. Hjálmar Freysteinsson kastarfram limru, ef til vill innblás- inn af ólympíuleikum: Sigfinnur aldrei sótti fast að sofa hjá eða trúlofast; nei ástríða hans þess ágæta manns einskorðaðist við sleggjukast. Stefán Þorláksson, fyrrverandi menntaskólakennari og leið- sögumaður, hefur stundum borið á góma í Vísnahorninu, enda með skemmtilegri mönnum. Hlymrekur handan orti til hans á sínum tíma: Margt erlent er sniðugt og eggjandi, hvort orðmælt það fer eða hneggjandi; það má hefja upp glaum, það má taka í taum, en á túrhesta er ekki leggjandi. Hlymrekur handan og félagar voru iðulega í slagtogi við Gísla Jónsson er hann hélt úti íslensku- þáttum í Morgunblaðinu. Ekki var á allra vitorði að Gísli var jafnframt dyggur stuðningsmaður KA á Akureyri. Er Willoughby þjálfara voru þökkuð góð störf í þágu fé- lagsins orti Gísli til hans, bæði á ensku og íslensku: There was a soccer team north by the sea which in first division wished to be, and the struggle was tough, but they did well enough. Thanks for brilliant work, Willoughby. Og svona útleggst limran á ís- lensku: Það var knattspyrnulið sem hét KA Það keppti af festu og þráa og í órofa heild kvaddi öfuga deild. Þökk sé Willoughby, kappanum knáa. Í kennaraverkfalli var ort limra um Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra – áður knattspyrnu- mann: Liðin er tíð minnar trúar á tuddann sem launþega púar á og ég held að héðan sé fljótfarið með’hann í bílferð austur að Brúará! Albert átti þá tík sem hann hélt i trássi við lög og rétt í Reykjavik og Stefán Þ. Þorláksson orti: Menn eru teknir að trúa á að tíkarhirðirinn snúi á BSRB og sennilegt sé að hann syndi fimlega í Brúará! Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af sleggjukasti, KA og tíkarhirðinum snúna G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð il e g i Fe rd in a n d G æ sa m a m m a o g G rí m u r STUNDUM ER EKKI ALLT SEM SÝNIST. VÓ! ÞANNIG AÐ EF TIL VILL ER ÉG Í BANASTUÐI NÚNA? MÉR FINNST FÓLK ALDREI HLUSTA ÞEGAR ÉG TALA VIÐ ÞAÐ ... ÞAÐ ER EINS OG ÉG NÁI EKKI AÐ HALDA ATHYGLI ANNARRA. ÞEGAR ÉG TALA VIÐ FÓLK VIRÐIST HUGUR ÞESS REIKA, ÞAÐ STARIR ÚT Í BLÁINN OG ... OG ... OG ... ÚFF! ATHUGAÐU HVER ER AÐ BANKA. VEIT EKKI HVER ÞAÐ ER, EN HANN VIRÐIST VERA ÆSTUR ÚT AF EINHVERJU! HVERNIG GEKK VINI ÞÍNUM Í AÐGERÐINNI? ÞESSUM SEM LÉT LAGA Á SÉR NEFIÐ OG FÉKK HÁRÍGRÆÐSLU? EINMITT! EKKI NÓGU VEL. Brandarinn um manninn, sem íbænum sínum bað um að fá stóra vinninginn í lottóinu, er alþekktur. Eftir að maðurinn hafði suðað í al- mættinu svo vikum skipti heyrði hann rödd af himnum: „Reyndu þá að drattast til að kaupa þér miða!“ x x x Nú hefur Víkverji komist að því aðþað þarf ekki einu sinni að kaupa sér miða. Í fyrradag datt hann loks- ins í lukkupottinn og er orðinn millj- ónamæringur. „Þér er hér með til- kynnt að netfang þitt hefur unnið 5.000.000 (fimm milljónir evra) í ár- legum drætti okkar árið 2012 sem fram fór í liðinni viku,“ sagði í upphafi bréfs frá Loterie Romande í Sviss. Í bréfinu kemur fram að netfang Vík- verja hafi fengist í handahófsúrtaki úr milljónum netfanga og drátturinn hafi verið hluti af „alþjóðlegu verk- efni, sem við skipuleggjum á hverju ári til að gefa aftur til samfélagsins“. Sérstaklega er tekið fram að um tölvupóstsátak sé að ræða og því hafi ekki verið seldir miðar. x x x Í tölvupóstinum var síðan sér-staklega tekið fram að Víkverji héldi vinningnum og öllum upplýs- ingum um hann vandlega leyndum þar til hann hefði fengið féð í hendur til að ekki kæmu fram aðrar kröfur og koma í veg fyrir að almenningur reyndi að misnota sjóðinn. Þetta skil- ur Víkverji fullkomlega og vonar að lesendur sínir virði þann trúnað sem hann sýnir þeim með þessum skrif- um. x x x Víkverji komst í mikið uppnám þeg-ar hann las um vinninginn. Ekki minnkaði uppnámið þegar hann hafði reiknað út að fimm milljónir evra eru um tæpar 740 milljónir króna, en þó fór hann skyndilega að hafa áhyggjur af lækkandi gengi evrunnar, sem hann hafði áður látið sér í léttu rúmi liggja. Víkverji sér fram á náðuga daga. x x x Þetta verður væntanlega síðastiVíkverji Víkverja. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Sjá, hann kemur í skýj- unum og hvert auga mun sjá hann, jafnvel þeir sem stungu hann, og allar kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yf- ir honum. Vissulega, amen. (Opb. 1, 7.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.