Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 33

Morgunblaðið - 15.08.2012, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2012 Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Nýverið fóru fram Biophiliu-kennarasmiðjur í Háteigs- skóla þar sem kennurum gafst tækifæri á að læra að nota verkfærakistu sem tilheyrir Biophiliu-verkefni Bjarkar og miðlar vísindum og tónlist. Fjórir skólar sendu kennarateymi sem samanstanda af tónlistarkenn- ara, vísindakennara og bekkjarkennara eða deildarstjóra til þess að taka þátt í smiðjunum. Í heild hafa teymi úr sjö skólum sótt smiðjurnar fyrir kennara, en þátttaka kennara í smiðjunni er skilyrði fyrir því að skólar geti fengið verkfærakistuna að láni og haldið tónvís- indasmiðjur fyrir nemendur. Kistan samanstendur af iPödum, kennsluhugmynd og séruppteknum vísindainnslögum með vísindamönnum frá Háskóla Íslands. Hún mun flakka um skóla Reykjavík- urborgar næstu þrjú ár þar sem skólum gefst tækifæri á að halda Biophiliu-smiðjur. „Kennarar fara á námskeiðið og í kjölfarið fær skóli eina kistu og það er algjörlega undir skólanum komið hvernig hann útfærir smiðjurnar. Við hvetjum til að börn á aldrinum 10 til 12 ára taki þátt og að hefðbundin kennsla sé lögð niður á meðan skól- anum er breytt í Biophiliu-vinnustofur í eina til tvær vik- ur,“ segir Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, verkefn- istjóri fyrir Reykjavíkurborg og einn af skipuleggjendum Biophiliu-smiðjanna fyrir grunnskóla. Tónvísindasmiðjurnar í verkfærakistunni eru hann- aðar af Björk í samstarfi við Arnfríði, Curver Thorodd- sen, umsjónarmann Biophiliu-kennsluverkefnisins, og Guðrúnu Bachmann kynningarstjóra Háskóla Íslands. „Borginni fannst ótrúlega spennandi að taka þátt í þessu verkefni af því að það er verið að nota listir í gegnum menntun og sköpun sem rannsóknaraðferð. Í raun er þetta tímamótaverkefni og mikil vitundarvakning í tón- list, raungreinum og verkgreinum innan skóla,“ segir Arnfríður. Kveikjan að einhverju stærra Markmiðið með tónvísindasmiðjunum er að sýna möguleika á fjölbreyttum og þverfaglegum kennsluað- ferðum, hvernig sé hægt að tengja saman náttúrufræði og tónlist, og brjóta niður hið hefðbundna kennsluform sem er bundið við 45 mínútna kennslustund. „Þannig vonumst við til þess að stuðla að þverfaglegri samvinnu milli sviða innan skóla,“ segir Arnfríður. Að svo stöddu eru Biophiliu-smiðjurnar val eða þema- vika í skólum sem munu taka þátt en Arnfríður segist vonast til þess að hægt verði að gera þær að föstum lið í skólastarfi og að þær verði kveikja að áhuga á ýmislegu fleiru, t.d. meira samstarfi og meiri dýpt í listagreinum í skólakerfinu. „Þannig að Biophilia er í rauninni bara kveikjan að einhverju miklu stærra. Verkefnið er í raun grunnur að menningaruppeldi,“ segir Arnfríður. „Biophiliasmiðjur eru menningaruppeldi“  Sjö grunnskólar njóta góðs af verkefnakistu smiðjanna Morgunblaðið/Sigurgeir S. Þverfaglegt Kennarar læra á tónvísindasmiðjur Biophiliu-verkefnakistunnar með spjaldtölvum og kennslu- hugmyndum og miðla þekkingunni svo áfram til nemenda með sköpun sem rannsóknaraðferð. Bæn hefst á skældum klif-andi barnsgráti og sígursíðan smám saman upp íþekkilegan drunga og þaðan í óþægileg óhljóð. Tónlistin á skífunni er raf- tónlist, tölvu- tónlist, en mann- röddin er vel notuð, barns- gráturinn í upp- hafi, sem gæti þó reyndar verið tölvubarn, öldungsrödd í Öldung- inum, illi innheimtumaðurinn í Mammón („þú veist /það kemur að því / þarf að greiða þínar skuldir til baka“) sem gengur af göflunum í Retoríu og svo spámaðurinn í Húsið andar. Margt er afskaplega vel gert á plötunni, til að mynda megnið af Út- burði umskiptings og eins laga- tvennan Mammón / Retoría, lög sem eru ólík en renna vel saman, en á heildina litið finnst mér vanta sam- hengi í skífuna, hvort sem það væri í heildarhljóm eða lagaskipan. Dæmi um það er hvernig sú grimmd- arstemmning sem Mammón / Re- toría skapa gufar upp þegar Bæn hljómar, eins skemmtilegt og það lag annars er, en önnur lagatvenna, Bæn og Lofun, tengjast einmitt saman mjög skemmtilega og rök- rétt. Lofun finnst mér reyndar besta lag plötunnar, bardúnslegur bassinn ber lagið uppi sem er kryddað af þruski og braki. Frábært lag. Loka- lag skífunnar, Húsið andar, er líka mjög gott, góð keyrsla skreytt með gamaldags rafhljóðum. Bæn Margt er vel gert á plötu Að- alsteins Jörundssonar eða AMFJ, Bæn. Samhengi óskast Geisladiskur Bæn bbbnn Plata Aðalsteins Jörundssonar sem starfar undir listamannsnafninu AMFJ. Falk gefur út. ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST David Bowie, Sex Pistols, Rolling Stones og Kate Bush afþökkuðu boð um að koma fram á lokaathöfn Ólympíuleikanna í Lundúnum sem fram fór sunnu- daginn sl. Breska dagblaðið The Guardian greinir frá því að framleiðandi athafnarinnar, Kim Gavin, hafi beðið fyrrgreinda tónlistarmenn um að koma fram á hátíðinni. Hann hafi þurft að biðja The Who þrisvar áður en hljómsveitin samþykkti loks að koma fram. Afþökkuðu boð um að koma fram á lokaathöfn ÓL David Bowie EGILSHÖLL VIP 12 12 12 L L L L L L L L ÁLFABAKKA 12 12 12  KVIKMYNDIR.IS  HOLLYWOOD REPORTER  SÉÐ OG HEYRT  MBL BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 2D SEEKING A FRIEND... KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES KL. 3 - 6:30 - 8 - 10 2D DARK KNIGHT RISES VIP KL. 3 - 6:30 - 10 2D MAGIC MIKE KL. 10:20 2D MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 3:40 2D KRINGLUNNI L L 12 12 BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 5 2D SEEKING... KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT... KL. 7 - 8 - 10:30 2D DARK KNIGHT RISES 2D KL. 3 - 6:10 - 8 - 9:20 - 10 - 11:10 TOTAL RECALL 5:20 - 8 - 10:30 2D TED KL. 7:30 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3 3D BRAVE ÍSL.TALI KL. 3:20 - 5:40 2D ÍSÖLD 4 ÍSL.TALI KL. 3 2D MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 5 2D L 12 12 AKUREYRI SEEKING A FRIEND.. KL. 6 - 8 - 10:10 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 6 3D DARK KNIGHT RISES KL. 8 2D Sýnd með íslensku og ensku tali – sýnd í 2D og 3D Frá Framleiðendum Toy Story 3, Finding Nemo og Up.  - Miami Herald - Rolling Stone - Guardian - Time Entertainment 53.000 GESTIR Á 19 DÖGUM STÆRSTA MYND ÁRSINS b.o. magazine e.t. weekly STEVE CARELL KEIRA KNIGHTLEY KEFLAVÍK 12 12 12 TOTAL RECALL KL. 8 2D DARK KNIGHT RISESKL. 10:30 2D SEEKING A FRIEND KL. 8 - 10:10 2D TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileiki á góðu verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.