Morgunblaðið - 31.08.2012, Side 11
starfað í leikskóla KFUM&KFUK
og á skrifstofu samtakanna en í sum-
ar vann hún í sumarbúðum samtak-
anna víða um land
„Viðhorf samstarfsfólks míns
hefur verið frábært og það hefur
sýnt mér mikinn stuðning og vin-
semd.
Þegar ég byrjaði að læra ís-
lensku lagði fólk sig fram um að út-
skýra fyrir mér ný orð og málfræði.
Um jólin var ég líka boðin að eyða
tveimur dögum með fjölskyldu eins
samstarfsfélaga míns. Slíku hafði ég
alls ekki búist við og gladdi það mig
mikið. Einnig var mér boðið í gít-
artíma og ég kynntist vel finnskri
konu sem hér hefur búið hálfa æv-
ina. Hún var mjög dugleg að fara
með mig hitt og þetta og sjá til þess
að ég hefði allt sem ég þarfnaðist. Þá
hefur mér alltaf fundist gaman að
ganga úti í náttúrunni og var mér
boðið í gönguhóp af einni samstarfs-
konu minni. Fólkið í þeim hópi tók
mér afar vel og tók t.d. ekki í mál að
ég borgaði bensín þegar við fórum í
lengri ferðir. Íslenska sumarið hefur
verið frábært með gönguferðum,
sundferðum í vötnum, jöklagöngu,
köfun og mörgu fleiru.
Síðan verð ég að fá að minnast á
íslensku börnin sem ég hef unnið
með í sumar. Mörg þeirra hafa kom-
ið til mín og þakkað mér fyrir sam-
veruna með faðmlagi. Þau eru svo
opin og mikil krútt,“ segir Elena.
Vinsæll puttaferðalangur
Elena gerði sér líka lítið fyrir og
ferðast hringinn í kringum landið á
puttanum. Hún lagði af stað í ferðina
í rútu og segist hafa hugsað mér sér
hvert hún væri að fara og út í hvað
hún væri eiginlega komin. Löngunin
til að skoða landið hafi verið yf-
irsterkari en allt annað en það kom á
daginn að fólk sem hún hitti á ferða-
laginu reyndist henni mjög vel. Alls
stoppuðu 23 bílar fyrir Elenu og
voru þar af Íslendingar í 15 þeirra.
„Eftir þessa ferð finnst mér Ís-
lendingar hafa gott viðhorf til putta-
ferðalanga. Sem dæmi get ég nefnt
að par sem tók mig upp í keyrði mig í
upplýsingamiðstöð ferðamanna sem
þau halda úti og þar fékk ég að sjá
mynd um eldgosið í Eyjafjallajökli.
Síðan keyrði dóttir þeirra mig beint
á tjaldstæðið því klukkan var orðin
margt. Á Akureyri sneri fjölskylda
við til að sækja mig því þau tóku ekki
eftir mér fyrr en of seint. Síðasta
daginn tók mig síðan upp í kona sem
starfar hjá Kristjáns bakaríi á Ak-
ureyri og var á leið í Hveragerði og
keyrði mig alla leið heim að dyrum.
Það sama er að segja um stráka í
hljómsveit sem tóku mig upp í á
Snæfellsnesi,“ segir Elena.
Ísland sýnir gott fordæmi
Elena hefur einnig getað nýtt
tímann á Íslandi til að undirbúa sig
fyrir frekara nám. Þá hafi hún fengið
hugmynd að doktorsverkefni sínu á
Íslandi og sé nú tilbúin í námið.
„Ég hef velt fyrir mér framtíð-
inni upp á síðkastið og hvað ég geri
þegar ég kem aftur heim. Ég hef
getað nýtt tímann á Íslandi til að
undirbúa mig fyrir það sem er fram-
undan. Með dvöl minni hef ég líka
öðlast meiri færni í að skipuleggja
tímann minn betur þannig að ég nái
að sinna öllum mínum verkefnum.
Mér fannst íslenski veturinn oft
erfiður og ég varð dálítið þung í
skapi myrkri og roki. En það varð
líka til þess að hugurinn reikaði heim
og ég varð þakklátari fyrir allar þær
góðu stundir sem ég hef átt með for-
eldrum mínum og vinum í Úkraínu.
Ég öðlaðist mikla lífsreynslu á Ís-
landi sem ég mun geta notað til að
breyta sjálfri mér og um leið hjálpað
þeim sem vilja gera slíkt hið sama.
Ég tel að Íslandi sýni öðrum löndum
gott fordæmi, hér eru miklar tækni-
nýjungar en um leið er virðing borin
fyrir gömlum hefðum og Íslendingar
virðast vera stoltir af sögu sinni. Hér
er hugsað vel um hlutina og Íslend-
ingar eru góðir í að bregðast við
vondu veðri, náttúruhamförum og
fleiru slíku. Hér á þessari litlu eyju
verðið þið að bjarga ykkur og ein-
mitt þetta varð kveikjan að því sem
mig langar að rannsaka í dokt-
orsnáminu. Hvernig Úkraína gæti
tekið Ísland sér til fyrirmyndar því
úkraínska þjóðin og landið hefur
mikla möguleika sem mætti nýta
betur,“ segir Elena.
Elena hefur áhuga á
íþróttum, tónlist, úti-
vist, hagfræði og atferli
mannfóksins og segist
aldrei neita tækifæri um
að gera, sjá og reyna
eitthvað nýtt.
Hressing Elena fær sér tesopa á göngu á Fimmvörðuhálsi, hún hefur notið þess að stunda útivist á Íslandi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
Samstarfsmaður minn tjáðimér um daginn að allt hóp-efli væri fyrir leikskólabörn.Mér þótti það heldur mikill
sleggjudómur og var ekki tilbúinn að
taka undir orð hans. Kvöldverður
með fjölskyldunni er til að mynda
hópefli á sinn hátt sem og jólapeysu-
klúbburinn sem ég ætla að stofna.
Hinsvegar er ýmiss konar hópeflandi
hegðun sem mér þykir miður. Til að
taka dæmi þá þykir mér það ein-
staklega kjánalegt þegar hljómsveit-
armeðlimir skipa áhorfendum á tón-
leikum sínum að haga sér eins og þeir
væru staddir í Söngvaborg með
Siggu Beinteins. Mögulega er það
bara ég sem er svona stirður og leið-
inlegur.
Ég lenti í slíkum aðstæðum fyrir
skemmstu þegar ég var staddur á
tónleikum með ónefndri hljómsveit á
skemmtistað í miðborg Reykjavíkur.
Áhorfendur höfðu þá verið skikkaðir
til að stunda alls kyns látbragðsæf-
ingar á milli þess sem okkur var tjáð
hversu yndislegt lífið og við sjálf vær-
um. Þá datt söngvaranum það snjall-
ræði í hug að fá alla tónleikagesti til
að setjast á gólfið. Ég leit niður
og virti fyrir mér bjórklístrað
gólfið og alla þá drullu sem
hafði fylgt skítugum skóm gest-
anna að utan.
Eins og hendi væri veifað
höfðu allir tónleikagestirnir
fengið sér sæti á klístr-
uðu gólfinu. Eftir stóð
ég eins og upprétt
löngutöng á krepptum
hnefa og hljómsveit-
armeðlimirnir og
gestirnir störðu for-
viða á mig. Djöfull
var ég leiðinlegur.
Þegar fólkið stóð gat
ég að minnsta kosti fal-
ið gleðiskort minn. Ég
velti því fyrir mér um stund hvort ég
ætti að snúa mér við og ganga út.
Þegar ég hugsa til baka, þá hefði það
verið einkar pínlegt en engu að síður
mjög fyndið. Sökum þess hversu ríkt
hjarta mitt er að manngæsku þá
ákvað ég að setjast á hækjur mér svo
að öllum liði betur. Með öðrum orðum
þá lét ég undan hópþrýstingi.
Þannig sat hjörðin og gerði bylgjur
með höndunum á sér að skipan
söngvarans í þónokkurn tíma. Sjald-
an hefur mér liðið jafn kjánalega. Það
var ekki fyrr en söngvarinn hafði
lokið sér af við það að telja niður
frá þremur að gestir fengu að
standa á fætur. Ekki nóg með
það heldur stukku allir á fætur í
yfirdrifnum fagnaðarlátum jafn-
framt því sem glimmeri rigndi
yfir skarann. Ég haskaði
mér út af staðnum og
staðnæmdist ekki fyrr en
ég var kominn á
stað þar sem allir
voru jafn nið-
urdrepandi og ég, í
leigubílaröðinni á
Lækjargötunni.
»Eins og hendi væriveifað höfðu allir tón-
leikagestirnir fengið sér sæti
á klístruðu gólfinu. Eftir
stóð ég eins og upprétt
löngutöng á krepptum
hnefa og hljómsveitarmeð-
limirnir og gestirnir störðu
forviða á mig. Djöfull var
ég leiðinlegur.
Heimur Davíðs Más
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Ellen Magnúsdóttir er 27 ára frí-
stundamálari sem hefur málað frá 14
ára aldri en hún gerir einnig skart,
hálsmen, hringa með hekludúllum og
steinum og armbönd. Ellen verður
með skartið sitt til sölu á Múlatorgi
(við hliðina á Góða hirðinum) í dag,
föstudag 30. ágúst frá klukkan 12-18
og á laugardaginn kl. 11-16.
Um að gera er að koma við fyrir þá
sem hafa gaman af fallegu skarti og
vantar eitthvað nýtt fyrir haustið.
Endilega …
… kíkið á EM
art á Múlatorgi
Skart Lokkar úr smiðju Ellenar.
www.volkswagen.is
Frelsi til
að ferðast
Volkswagen Tiguan
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan
Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá
5.790.000 kr.
Fullkomið leiðsögukerfifyrir Ísland
Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir
aðeins 5,8 l á hverja 100 km.