Morgunblaðið - 31.08.2012, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
Ég held að ég verji afmælisdeginum bara í vinnunni, það ersvo gaman þar,“ segir Jóhannes Jónsson, áður kenndur viðBónus-verslanirnar og nú kaupmaður í Iceland, en hann er
72 ára í dag. Jóhannes og eiginkona hans, Guðrún Þórsdóttir, deila
afmælisdegi, en 21 ár er á milli þeirra hjóna. „Við höfum yfirleitt
haldið upp á þetta saman, en hún er erlendis núna og kemur ekki
fyrr en á laugardaginn, þannig að ég er mjög einmana.“ Allt veislu-
hald bíður því þess að hún snúi til baka.
Spurður um áhugamál segir Jóhannes að hann hafi mjög gaman
af golfi. Hann hefur þó lítið getað komist á völlinn í sumar. „Það hef-
ur allt farið í þessa uppbyggingu í Iceland, og því hef ég ekkert
komist.“ Forgjöf Jóhannesar er 36, enda tekur hann ekki oft þátt í
mótum eða slíku. „Það er svo gott að hafa þessa forgjöf, maður man
hana alltaf,“ segir Jóhannes og bætir við kíminn: „Þegar kemur að
golfinu er áhuginn stórkostlegur, en árangurinn enginn!“
Fyrr í sumar opnaði Jóhannes, eins og alkunna er, verslunina Ice-
land hér á landi. Hann er mjög ánægður með gengi hinnar nýju
verslunar. „Viðtökurnar hafa verið alveg frábærar og umfram mín-
ar björtustu vonir.“ Jóhannes segir að góðum árangri í síðustu verð-
könnun ASÍ verði fylgt eftir. „Þetta er upphafið að framtíðinni.“
sgs@mbl.is
Jóhannes Jónsson er 72 ára í dag
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nýtt upphaf Jóhannes í Iceland er hæstánægður með viðtökurnar
sem Iceland-verslunin hefur hlotið hjá Íslendingum.
„Þetta er upphafið
að framtíðinni“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akranes Kristofer Erik fæddist 17.
nóvember kl. 16.47. Hann vó 4.060 g
og var 54 cm langur. Foreldrar hans
eru Unnur Aðalheiður Jónsdóttir og
Jón Ásgeir Valsson.
Nýir borgarar
Vestmannaeyjar Dís fæddist 26. apríl
kl. 10.18. Hún vó 3.760 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Þóra Gísla-
dóttir og Júlíus Ingason.
I
ngibjörg fæddist í Reykjavík,
ólst þar upp og á Hallorms-
stað frá fjögurra til átta ára
aldurs, en síðan aftur í
Reykjavík. Hún var í Barna-
skólanum á Hallormsstað, í Voga-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MS
1992, stundaði leiklistarnám við
Neighborhood Playhouse-leiklist-
arskólann í New York en sá skóli
hefur útskrifað fjölda frægra leikara
á borð við Grace Kelly, Diane Keaton
og Gregory Peck. Þaðan útskrifaðist
Ingibjörg 1998 og var síðan búsett í
Los Angeles í eitt ár.
Ingibjörg stundaði jafnframt pí-
anónám við Tónlistarskóla FÍH um
fimm ára skeið á unglingsárunum og
stundaði síðar nám við Tónvinnslu-
skóla Þorvaldar Bjarna, árið 2004.
Ingibjörg hefur stundað jóga um
langt árabil. Hún lærði fyrst jóga-
öndunar- og líkamsæfingar, hefur
sótt mikinn fjölda jóganámskeiða og
kennaranámskeiða í jóga víða um
Ingibjörg Stefánsdóttir, jógakennari, leikari og söngkona – 40 ára
Morgunblaðið/Ernir
Í jógastellingu Ingibjörg hefur stundað jóga víða um heim, m.a. hjá læriföður á Indlandi, Sri.K. Pattabhi Jois.
Jóga veitir innri frið
Afmælisstemning Elín og Ásta Lilja lesa áður en pakkinn er opnaður.
Elín Pálfríður Alexandersdóttir varð
áttræð í gær, 30. ágúst. Hún er fædd
og uppalin í Grindavík og hefur búið
það alla tíð. Elín hefur á undanförnum
áratugum tekið virkan þátt í bæði at-
vinnulífi og menningarstarfi bæjarins
auk þess að syngja í kirkjukór Grinda-
víkurkirkju í áratugi. Eiginmaður henn-
ar er Edvard Júlíusson, fyrrverandi
skipstjóri og útgerðarmaður.
Afmæli
80 áraSkápar
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Skólaskápar
Munaskápar
Sundstaðaskápar
Vinnustaðaskápar
Starfsmannaskápar