Morgunblaðið - 31.08.2012, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2012
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður að sætta þig við ákvarðanir
annarra varðandi starfið eða jafnvel heim-
ilislífið í dag. Verkin þín eru mun betri núna.
20. apríl - 20. maí
Naut Allir uppskera svo sem þeir hafa sáð til
og þú auðvitað líka. Farðu varlega, einhverra
hluta vegna er einkalíf þitt áberandi um þess-
ar mundir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Farðu varlega í innkaupum í dag, þú
freistast til þess að kaupa meira en þú hefur
ráð á. Láttu lítið á þér bera og ekki búast við
miklu í stöðu þar sem þú þarft að treysta á
aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki amalegt lífið þessa dag-
ana svo þú skalt njóta þess til hins ýtrasta.
Aðrir munu bregðast fljótt við athugasemd-
um þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver vinnufélagi þinn getur ekki hætt
að angra þig, þótt þú hafir ítrekað rætt við
hann. Viðræður við foreldra og maka eru hlý-
legar í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér er að takast að koma skikki á hlut-
ina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem
þú hefur lagt á þig. Sá vitri veit að hann veit
ekki allt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér vinnst ákaflega vel þessa dagana og
afköst þín vekja athygli yfirboðaranna. Lærðu
að segja nei og taktu svo hlutina fyrir einn í
einu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sjálfsöryggi og þolinmæði skipt-
ir miklu máli þegar þú leysir úr vandamálum.
Þér hættir til að segja fólki aðeins það sem
það vill heyra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Óvænt daður kann að gleðja og
jafnframt rugla þig í ríminu í dag. Veltu fyrir
þér gæðum lífsins og sjáðu hversu verðmæti
hluta og verðgildi þeirra eru afstæð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ættir að búa þér til tíma fyrir
sjálfan þig í dag svo þú getir hugleitt menn og
málefni í ró og næði. Kannaðu alla mögulega
sem eru í stöðunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þig langar til að öðlast dýpri þekk-
ingu á málefnum sem þú hefur vanalega eng-
an áhuga á. Spurðu þig hvað þú hefur lært og
hvernig þú getur nýtt þér það.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast þótt á móti blási um stund. Haltu
þínu striki og láttu neikvæðar raddir ekki hafa
áhrif á þig.
Pétur Stefánsson er í sum-arskapi er hann yrkir í létt-
um dúr:
Nú er ég klipptur og nú er ég þveg-
inn,
nú hef ég snurfusað skeggið á mér.
Nú er ég klár svona nokkurnveginn
að næla í stelpur er kvölda fer.
Nú er ég friðsæll og nú er ég spakur,
nú hef ég fengið mér brasilískt vax.
Nú er ég glaður, því nú er ég rakur,
nú er ég til í skemmta mér strax.
Sigrún Haraldsdóttir sendi hon-
um kveðju af þessu tilefni: „Þú
ert heppnari en kerlingin á
Skólavörðuholtinu sem ég hitti
þegar ég var að koma úr sundi í
hádeginu. Hún hafði þetta að
segja:
Í endemis þjarkinu þessu
þrautpínd ekkert skil,
líf mitt er klárlega í klessu
komið en gang til.
Ég var alveg hissa og spurði
hvað hefði komið fyrir, hún svar-
aði:
Vanlíðan til veislna heftir,
vont er á mér baksið,
brennd er svo og bólótt eftir
brasilíska vaxið.“
En Pétri leist bara vel á kerl-
inguna nýrakaða og bólótta.
Þó kerlingin sé sár og svekkt
segi ég nú bara,
að ekki væri amalegt
upp á hana að fara.
Þegar Sigrún bar skilaboðin til
kerlingar stóð ekki á svari:
Ég legg í þennan létta drátt
og lítið skal mig þvinga
en bara ekki bölva hátt
er bólur fara að springa.
Þá varð Pétri nóg boðið:
Af graftarkýlum hún er hrjáð
og holdið rautt af bruna,
ég held það væri heillaráð
að hætta við kerlinguna.
En Ágúst Marinósson á ráð
undir rifi hverju:
Eftir rakstur, eftir vax
er að þér fer að sverfa.
Old Spice læknar alveg strax.
allar bólur hverfa.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af kerlingunni á Holtinu
og brasilísku vaxi
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
ER ÞETTA
PIRRANDI?
JÁ, JÓN. OG HEFUR
VERIÐ ÞAÐ Í ÞRJÁTÍU
OG ÞRJÚ ÁR, JÓN!
KANNSKI VAR ÉG
OF AUGLJÓS?
ÉG ER MEÐ GÓÐAR FRÉTTIR
FYRIR ÞIG Í DAG, HAMLET!
ÞÚ ERT Í MEIRA
UPPÁHALDI HJÁ MÉR
EN HORAÐI HANS,
FRIÐRIK FEITI OG
ILLA LYKTANDI INGVAR!
ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI ALLTAF
GOTT AÐ VERA Í UPPÁHALDI?
JÆJA, ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ
MAMMA ÞÍN SENDI ÞIG HINGAÐ ER
SÚ AÐ GÓÐUR SÁLFRÆÐINGUR GETUR
HJÁLPAÐ ÞÉR AÐ FINNA SJÁLFAN ÞIG.
TAKK, SÁLI,
EN ÉG HELD BARA
AÐ ÉG GERI ÞAÐ
UPP Á EIGIN
SPÝTUR. ÞÚ ERT
HÉR
Veðrið leikur við Víkverja og aðraá höfuðborgarsvæðinu en nú er
komið haust. Víkverji merkir það á
bílstjórunum, sem sáust ekki á
svæðinu í sumar, en eru komnir á
kreik á ný. Þar sem er 80 km há-
markshraði aka þeir á 60 km hraða á
vinstri akrein Miklubrautar áleiðis í
Mosfellsbæ og kæra sig kollótta þótt
þeir haldi tugum bíla fyrir aftan sig
og pirri marga ökumenn mikið með
háttalagi sínu.
x x x
Víkverji hefur á tilfinningunni aðSiglfirðingar og nærsveitamenn
tali á svipuðum nótum um ferða-
menn sem silast um þjóðveg nr. 793
að eða frá Strákagöngum. Víkverji
fór þessa leið í sumar og ók varlega
enda vegurinn slæmur og óþarflega
bratt niður í sjó. Best var líðanin
þegar enginn bíll var í augsýn en
sælan stóð stutt og fyrr en varði var
Víkverji orðinn lestarstjóri. Emb-
ætti sem hann dreymdi um við lestur
barnabóka vel fyrir fermingu en
varð því afhuga þegar frá leið enda
lestir óþekkt fyrirbæri hér á landi og
lestarstjóri nokkuð sem enginn
þekkti, hvorki í orðabókum né í
raunveruleikanum. Hann áttaði sig
samt á breyttri stöðu á veginum
norður þar og leysti málið með því að
koma sér út af veginum en komst
ekki hjá því að sjá illilegar augnagot-
ur þeirra sem á eftir komu.
x x x
Upplifun Víkverja var á sömu nót-um í Víkurskarði og Ljósavatns-
skarði. Þar fór hann sér að engu óðs-
lega, var töluvert undir hámarks-
hraða, en aðrir ferðalangar virtust
vera að missa af einhverju og
brunuðu fram úr þegar færi gafst til
– og jafnvel þegar slíkur akstursmáti
var óðs manns æði. Víkverji áttaði
sig ekki almennilega á þessu hátta-
lagi og minntist sæludaganna á trak-
tornum í sveitinni fyrir vestan forð-
um. Tækinu því var mest hægt að
koma á 12 km hraða og þótt aka
þyrfti með heyvagninn í eftirdragi
einn eða tvo kílómetra á þjóðveg-
inum létu aðrir vegfarendur það ekki
á sig fá, drógu úr hraðanum og óku á
eftir sveitafólkinu, þar til það beygði
inn heimreiðina í átt að hlöðunni. En
nú er komið haust. víkverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt.
(Sálm. 86:11)