Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 2

Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Lyfjaval.is • sími 577 1160 Bílaapótek Hæðasmára 15% afsláttur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Grænlenska landstjórnin endurnýjaði ekki þjónustusamning við Flugfélag Íslands um flug til Austur-Grænlands. Þess í stað var samið við Air Green- land. Ákvörðunin hefur vakið óánægju á Austur-Grænlandi og lýsa heima- menn áhyggjum vegna framtíðar ferðaþjónustu á svæðinu. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, sagði að tólf þjónustusamningar um flug í almanna- þágu á Grænlandi hefðu átt að renna út um næstu áramót. Auglýst var eftir tilboðum og Flugfélag Íslands sendi tilboð í maí. Grænlenska landstjórnin ákvað að hafna öllum tilboðum og framlengja alla samninga óbreytta til næstu tveggja ára, nema samninginn við Flugfélag Íslands. Hann náði til eins verkefnis af þessum tólf, það er flugs til Kulusuk og Constable Point á Austur-Grænlandi. Flugfélagið hefur sinnt þessu verkefni í tíu ár. Samið var við Air Greenland um að sinna þessum bæjum og er félagið nú með alla flugþjónustusamninga á Grænlandi. Var þessi ákvörðun til- kynnt fyrir rúmri viku. En missir Flugfélagið þarna stóran bita? „Það munar um þetta. Þetta skilar nokkrum hundruðum milljóna í veltu og hefur verið ágætis verkefni sem við hefðum viljað halda,“ sagði Árni. Hann sagði það hafa komið á óvart að samið skyldi um óbreytt fyrirkomulag allra annarra samninga en við Flugfélag Ís- lands. Flugfélag Íslands hefur óskað eftir nánari upplýsingum um samninginn við Air Greenland um flug til Kulusuk og Constable Point en ekki fengið þær enn. Árni kvaðst ekki vita hvort ætl- unin væri að sinna þessum áfangastöð- um héðan frá Íslandi eða frá Nuuk á Grænlandi. Undirskriftum hefur verið safnað á Austur-Grænlandi til þess að mót- mæla þessari ákvörðun landstjórnar- innar. Þá kemur það fram í grænlensk- um fjölmiðlum að margir íbúar og sveitarstjórnarmenn á Austur-Græn- landi eru ósáttir við þessa ákvörðun og óttast um framtíð ferðaþjónustu á svæðinu verði ekki tryggðar traustar samgöngur við Ísland. Flugfélagið missir samning  Grænlensk stjórnvöld endurnýjuðu ekki samning við Flugfélag Íslands um flug til Austur-Grænlands  Heimamenn óttast áhrifin sem það hefur á ferðaþjónustu Morgunblaðið/RAX Austur-Grænland Flugfélag Íslands er ekki lengur með samning við græn- lensk stjórnvöld um flugþjónustu við bæi á Austur-Grænlandi. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Neyðarstigi almannavarna á Norð- urlandi var aflýst í gærkvöldi og að- gerðastjórn, sem stýrt hefur aðgerð- um eftir óveðrið í byrjun vikunnar, hætti störfum. Þungi leitarinnar í gær var á Þeistareykjasvæðinu þar sem 70-80 leitarmenn voru að störfum. Einnig var leitað í Mývatnssveit, vestan Gæsafjalla og í Bárðardal. Alls voru um 100 manns við leit í gær í um- dæminu, að sögn Svavars Pálssonar, sýslumanns á Húsavík. Leitin gekk þokkalega víðast hvar, en aðstæður voru erfiðar, þoka og rigning. Svavar sagði að Mývetning- ar væru að mestu búnir að ná utan um sín mál. Þeir ættu þó eftir að fara í aðrar göngur um svæði sem væri mjög erfitt yfirferðar. „Það er búið að ná umtalsverðum árangri í Mývatnssveit eins og ann- ars staðar,“ sagði Svavar. Hann telur víst að tjónið sé mest í Mývatnssveit. Bæði tapaðist fé og eins þurfti að hella niður mjólk vegna rafmagns- leysis og girðingar lögðust á löngum köflum. Svavar taldi að það tæki langan tíma að reikna tjónið til fulls. „Það er heilmikil vinna sem tekur við,“ sagði Svavar. „Ekki bara að vinna úr því sem lýtur að tjóninu heldur að vinna með áfallið sem sveitirnar hafa orðið fyrir. Það verð- ur gert með markvissum hætti, fræðslu og íbúafundum í næstu viku.“ „Þetta er ekki búið“ „Þetta gekk þokkalega en það var þoka og rigning hérna í dag,“ sagði Böðvar Baldursson, bóndi í Heiðar- garði og fjallskilastjóri á Þeista- reykjasvæðinu, í gærkvöldi. Jarðýta var þá að ryðja slóð fyrir fé sem reka á í Hraunsrétt í dag. Réttað verður á morgun, sunnudag. Leiðin er 15-20 km. Böðvar sagði að menn giskuðu á að 3.000-3.500 fjár yrðu rekin niður. „Það er búinn að vera gríðarmikill mannskapur þarna, en það náðist ekki nógu vel fyrir skyggni,“ sagði Böðvar. Heimamenn nutu aðstoðar björgunarsveitarmanna af höfuð- borgarsvæðinu og Austfjörðum. „Við komumst á svæði í dag sem var lítið búið að fara á. Það voru grafnar upp einar 30-40 kindur. Snjórinn hafði aðeins sigið og þetta er farið að koma upp. Þetta er ekki búið.“ Böðvar sagði að allt féð sem fannst grafið í fönn í gær hefði verið lifandi nema fjórar kindur. Hann sagði að féð hefði brætt vel frá sér og gerði hann sér góðar vonir um að fleira fé ætti eftir að finnast á lífi. „Ég veit um helling af fé sem er eftir, en menn náðu þessu ekki sam- an, það er svo erfitt að reka það.“ Neyðarstigi almannavarna var aflétt í gærkvöldi Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Fjárleit Liðsmenn úr Björgunarsveitinni Ársól á Reyðarfirði tóku þátt í leit að fé á Þeistareykjum í vikunni. Þar er búið að grafa fjölda kinda úr fönn. Kindurnar bræða frá sér og þarf að grafa nokkuð djúpt eftir þeim sumum.  Rekin verða 3.000-3.500 fjár af Þeistareykjum í dag Leitað að fenntu fé » Björgunarsveitarmenn að- stoðuðu bændur í Hörgárdal við smölun og fjárleitir í gær. » Einnig hefur verið leitað kinda á afréttum Skagfirðinga og Húnvetninga. » Þungi leitarstarfsins hefur verið í Þingeyjarsýslu, í Mý- vatnssveit, Bárðardal, Þeista- reykjum, Flateyjardal og víðar í umdæminu. Karlmaður á þrí- tugsaldri var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í Hér- aðsdómi Reykja- ness. Þá var hann dæmdur til þess að greiða fórnar- lambi sínu eina og hálfa milljón króna í skaðabætur sem og annan sakarkostnað. Maðurinn réðst á fyrrverandi eig- inkonu föður síns á heimili hennar í Kópavogi aðfaranótt 1. apríl síðastlið- ins í kjölfar ásakana um að hún hefði stolið af sér 1.500 krónum og eyðilagt líf sitt og föður síns. Hann réðst á hana þar sem hún sat í sófa í stofunni og tók hana kverkataki og kýldi hana í síðu, hendur og andlit. Þá reyndi hann að kæfa hana með því að halda kodda fyrir andliti hennar. Maðurinn var handtekinn af lög- reglu síðar um nóttina en þá hafði hann ráðist aftur á konuna og meðal annars barið hana með kertastjaka. Hann viðurkenndi brot sitt fyrir lög- reglu og ennfremur að markmiðið hefði verið að drepa konuna. 5 ára fangelsi fyrir manndrápstilraun Héraðsdómur Reykjaness.  Greiði eina og hálfa milljón í skaðabætur Forsætisráðuneytið hefur birt þing- málaskrá yfir þau mál sem ríkis- stjórnin hyggst leggja fram á Al- þingi í haust og eftir áramótin. Alls eru 177 mál á málaskránni, að meðtöldum skýrslum, sem lögð verða fram á Alþingi. Ný þingmál sem leggja á fyrir Alþingi eru 117 talsins og auk þess verða endurflutt fjölmörg þingmál. Meðal mála sem forsætisráð- herra ætlar leggja fram í haust er frumvarp um auðlindaarð í orku- geiranum og frumvarp um breyt- ingu á stjórnsýslulögum þar sem „verður stefnt að því að einfalda og samræma lagaákvæði um þagn- arskyldu opinberra starfsmanna og skýra skyldur þeirra varðandi með- ferð trúnaðarupplýsinga“, eins og segir í lýsingu. Atvinnuvega- ráðherra ætlar í haust að flytja frumvarp um stjórn fiskveiða sem byggist á frumvarpinu sem lagt var fram sl. vor „en jafnframt verður höfð hliðsjón af þeirri umfjöllun sem það frumvarp hlaut á Alþingi“. 177 mál á málaskrá ríkisstjórnarinnar Alls varð 221 umferðarslys á höf- uðborgarsvæðinu frá ársbyrjun og til loka ágúst sl. Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 9% milli ára. Þegar árið 2012 var borið saman við sama tímabil 2009- 2011 hafði umferðarslysum fækkað um 14% á tímabilinu. Í síðastliðnum ágústmánuði varð 31 umferðarslys sem var fjölgun frá mánuðinum á undan en þá varð 21 slys í umferð- inni. Slysin í ágúst síðastliðnum voru einnig fleiri en á sama tíma í fyrra. Á löggæslusvæði 1 voru slys- in fleiri í ágúst en höfðu orðið í nokkrum öðrum mánuði það sem af var árinu. Í fyrra urðu flest umferð- arslys í september og desember, 33 í hvorum mánuði. Þetta kemur fram í afbrotatöl- fræði lögreglu höfuðborgarsvæð- isins fyrir ágúst 2012. »16 Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað miðað við nýliðin ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.