Morgunblaðið - 15.09.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Mest selda bókin á Íslandi 2012
Heilsuréttir fjölskyldunnar
3.
PRENTU
N
KOMINÍ
VERSLA
NIR!
bokafelagid.is
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Þetta er nú eiginlega ósköp svipað
og undanfarin ár. Það eru fáir sem
koma til landsins, það er svona einn
og einn en þeir eru fáir og maður sér
það á auglýstum stöðum eins og til
dæmis í heilsugæslunni að það er erf-
itt ef ekki ómögulegt að manna stöð-
ur,“ segir Þorbjörn Jónsson, formað-
ur Læknafélags Íslands, um hvort
flótti íslenskra lækna í læknastöður
erlendis standi enn yfir og hvort ís-
lenskir læknar í námi erlendis séu
ennþá tregir til þess að koma aftur
heim til Íslands.
Aðspurður hvort læknar sem eru
með atvinnu hér á landi séu ennþá að
leita út fyrir landsteinana að vinnu
segir Þorbjörn svo vera. Að sögn
Þorbjörns er ekki einungis um ung-
lækna að ræða heldur einnig reynslu-
bolta. „Það eru jafnvel menn sem eru
búnir að vinna hérna í áratug, eða
áratugum saman, sem eru að finna
sér starfsvettvang erlendis. Það eru
alveg dæmi um það,“ segir Þorbjörn.
Þá segir Þorbjörn að það sé
kannski algengara að menn minnki
við sig starfshlutfall og vinni erlendis
á móti vinnu sinni hérlendis. „Þá
verður vinnuframlag íslenskra lækna
minna hér á landi,“ segir Þorbjörn en
að sögn hans hefur þetta fyrirkomu-
lag farið vaxandi og segist hann vita
fjöldamörg dæmi um svona. Að-
spurður til hvaða landa íslenskir
læknar leiti aðallega, hvort sem varð-
ar fullt starf eða hlutastarf, segir
Þorbjörn að þeir leiti aðallega til ná-
grannaríkjanna Noregs og Svíþjóð-
ar. Þá segist hann einnig vita um
dæmi um lækna sem flutt hafi til
Bandaríkjanna og Hollands, en slíkt
sé þó sjaldgæfara.
Þróunin áhyggjuefni
Aðspurður hvort þessi þróun sé
ekki áhyggjuefni segir Þorbjörn svo
vera og bendir á að læknar hafi haft
áhyggjur af þessu alveg frá hruni.
„Það er miklu meira vinnuálag, þann-
ig að menn þurfa hreinlega að hlaupa
hraðar,“ segir Þorbjörn og bendir á
að þetta bitni á þeim læknum sem eft-
ir verða.
Að sögn Þorbjarnar hefur á síð-
ustu árum orðið marktæk fjölgun á
starfandi læknum sem eru á aldrin-
um 60-70 ára. „Ég held að það sé um
fjórðungur lækna sem er á aldurs-
bilinu sextíu plús og það er mjög hátt
hlutfall,“ segir Þorbjörn og bætir við
að þetta sé merki um það að unga
fólkið skili sér ekki nægilega mikið
heim til þess að endurnýja.
„Það stefnir náttúrlega í óefni
vegna þess að læknahópurinn mun
halda áfram að eldast, væntanlega á
svipuðum hraða og núna, og það er
slæmt fyrir læknisfræðina á Íslandi,
nýjungar og annað slíkt, vegna þess
að þetta byggist náttúrlega á því að
það komi inn yngri sérfræðingar með
nýja þekkingu með sér, bæði fræði-
lega þekkingu og verkkunnáttu. Ef
það dregst saman getum við ekki
boðið okkar sjúklingum sambærilega
þjónustu á við þá sem sjúklingar ann-
ars staðar á Norðurlöndunum fá,“
segir Þorbjörn.
„Það stefnir nátt-
úrlega í óefni“
Segir lækna með áratuga reynslu leita sér að vinnu erlendis
Morgunblaðið/Ásdís
Læknaflótti Formaður Læknafélags Íslands segir dæmi um að læknar með áratuga reynslu flytji af landi brott.
Þróun læknisfjölda á Norðurlöndunum
Fjöldi íbúa/lækni á árunum 2001-2010
Heimild: SNAPS-En arbetsgrupp i de nordiska läkarförbunden
2001 2006 2010
350
300
250
200
150
100
50
0
Danmörk Noregur Ísland
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Ég skil það að fólk á spítalanum er
yfirhöfuð ekki á háum launum. Það
er fullur skilningur hjá mér á því og
það hefur verið okkar verkefni á
spítalanum að berjast fyrir því að
fólk fái betri laun og við erum alltaf
að reyna það,“ segir Björn Zoëga,
forstjóri Landspítalans, spurður út í
viðbrögð sín við þeirri gagnrýni sem
sett hefur verið fram af hálfu heil-
brigðisstarfmanna á þá launahækk-
un sem hann hlaut fyrir stuttu. Á
meðal þeirra félagasamtaka heil-
brigðisstarfsmanna sem gagnrýnt
hafa nýlega launahækkun Björns
eru Læknafélag Íslands, Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga og
Sjúkraliðafélag Íslands.
Aðspurður hvort um sé að ræða
meiri gagnrýni en hann hafi upp-
haflega átt von á segir Björn að
hann hafi ekki gert sér grein fyrir
því hvort launahækkunin yrði fyrir
gagnrýni eður ei. „Ég hafði ekki
hugsað út í það vegna þess að ég
ákvað ekki þessa launahækkun, hún
er ekki mitt verk,“ segir Björn og
bætir við að hann sé þó vanur því að
taka á móti málefnalegri gagnrýni á
sín verk.
Misskilin launahækkun
Að sögn Björns hefur ákveðinn
misskilningur breiðst út þess efnis
að þau laun sem Guðbjartur Hann-
esson, velferðarráðherra, ákvað
hafi átt að gera hann samkeppn-
ishæfan við starfsbræður sína er-
lendis. „Þessi laun eru ekki sam-
keppnishæf við útlönd, það er ekki
það sem er á bak við þessa launa-
hækkun,“ segir Björn.
Þá segist hann ávallt hafa verið
stuðningsmaður þess að hækka laun
heilbrigðisstarfsmanna. „Bæði um
leið og hægt er, og um leið og við
getum, þá verður auðvitað farið í
það að reyna að hækka laun okkar
starfsfólks,“ segir Björn og bætir
við: „Í opinberum könnunum í síð-
ustu viku kom í ljós að opinberir
starfsmenn eru lægra launaðir en
fólk á einkamarkaðnum og við höf-
um alltaf bent á það og margoft sagt
frá því að laun okkar fólks eru of
lág.“
Hefur skilning
á áhyggjum
starfsmanna
Laun heilbrigðisstarfsfólks eru of lág
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Launahækkun Björn segist skilja
launaáhyggjur starfsmanna LSH.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna í Reykjavík,
hyggst gefa kost á sér í fyrsta sætið í
Reykjavík fyrir alþingiskosning-
arnar í vor verði flokksmönnum veitt
tækifæri til að velja á framboðslista í
prófkjöri.
„Með framboði mínu til formanns í
nóvember síðastliðnum steig ég auð-
vitað ákveðið skref í átt að því að
segja að ég væri reiðubúin að taka
að mér verkefni á vettvangi lands-
málanna,“ sagði Hanna Birna um að-
draganda ákvörðunarinnar í samtali
við mbl.is í gær. „Ég er í stjórn-
málum til þess að gera gagn, mig
langar að vinna í þágu almennings
og ég lít svo á að stærsta verkefnið í
íslensku samfélagi í dag sé að skapa
aðstæður þar sem fólk hafi tækifæri
til betra lífs. Mig langar að leggja
mitt af mörkum í þeim efnum og ég
tel mig gera það
best með því að
taka þessa
ákvörðun,“ sagði
hún.
Hanna Birna
sagði ekki tíma-
bært að gefa út
neinar yfirlýs-
ingar um fram-
boð til varafor-
manns flokksins á
næsta landsfundi en sagði jafnframt
að hún útilokaði ekkert í því sam-
bandi.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi og annar maður á lista Sjálf-
stæðisflokks í borginni, segist fagna
því að öflug manneskja á borð við
Hönnu Birnu verði í framboði í
Reykjavík en hann gerir ráð fyrir að
hún muni sinna oddvitastarfinu enn
um sinn. „Svo munum við þá ráða
fram úr því. Þegar skipt hefur verið
um oddvita í okkar röðum hefur það
verið í samræmi við framboðslista
flokksins í síðustu kosningum og list-
inn hefur þá einfaldlega færst upp.
Og ég gef auðvitað kost á mér í það
verkefni að leiða borgarstjórnarhóp
Sjálfstæðisflokksins,“ segir hann.
Júlíus segir það forréttindi að
starfa fyrir borgarbúa og hefur ekki
í hyggju að flytja sig yfir í lands-
málapólitíkina. Í sama streng tekur
Gísli Marteinn Baldursson. „Hjarta
mitt er algjörlega í borgarmál-
unum,“ segir hann. Kjartan Magn-
ússon, þriðji maður á lista Sjálfstæð-
isflokksins í borginni, segist hins
vegar aðspurður um oddvitastöðuna
og landsmálin vera að hugsa málin
almennt og að hann útiloki ekki neitt
í þeim efnum. holmfridur@mbl.is
Gefur kost á sér í fyrsta sætið
Júlíus Vífill segist tilbúinn að leiða borgarstjórnarflokkinn
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Ung kona velti bifreið sinni á Sól-
heimasandi skömmu eftir hádegi í
gær. Að sögn lögreglu missti hún
stjórn á bifreiðinni með þeim afleið-
ingum að hún lenti utan vegar.
Bifreiðin fór eina veltu og endaði á
hvolfi. Konan var flutt á Hvolsvöll til
aðhlynningar en að sögn lögreglu er
ekki talið að hún hafi hlotið alvarleg
meiðsl í óhappinu. Bifreiðin er á hinn
bóginn mikið skemmd.
Lenti utan
vegar og valt Þrír karlmenn reyndu síðdegis í
gær að lokka níu ára gamalt barn
inn í bifreið í ofanverðum Grafar-
vogi. Var foreldrum barna í Keldu-
skóla í kjölfarið sendur tölvupóstur
þar sem þeir voru látnir vita af at-
vikinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu var
málið tilkynnt til hennar og er það í
rannsókn. Barnið brást hárrétt við
og forðaði sér en talið er að um gráa
fólksbifreið hafi verið að ræða.
Reyndu að lokka níu
ára barn í bifreið