Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Fjárlagafrumvarpið hefur komiðilla við marga. Ekki aðeins þá
sem greiða enn hærri skatta í boði
ríkisstjórnarinnar heldur einnig við
þá sem þurfa að búa við lítt rök-
studdan niðurskurðinn.
Einn þeirra erGissur Pét-
ursson, forstjóri
Vinnumálastofn-
unar, sem hefur
greinilega ekki
mikla trú á for-
sendum fjárlaga.
Um fyrirhugaðastórfellda
lækkun framlaga til
stofnunarinnar á
næsta ári segir Giss-
ur: „Stofnunin
stækkaði í kjölfar hrunsins og að
sjálfsögðu er ekki óeðlilegt að hún
minnki aftur þegar ástandið batnar,
en það verður þá líka raunverulega
að gera það.“
Þetta eru athyglisverð ummæliforstjóra stofnunar sem hefur
það hlutverk að fylgjast með at-
vinnuástandinu í landinu.
Hann hefur eins og aðrir fengiðað fylgjast með þeirri glans-
mynd sem forsætisráðherra og aðrir
stjórnarliðar hafa dregið upp af
efnahagsástandinu og þeim meinta
stórkostlega bata sem hér hafi orðið
og sé að verða.
Þrátt fyrir þetta segir forstjóriVinnumálastofnunar að ástand-
ið þurfi raunverulega að batna.
Sumum nægir að spunaveruleik-inn batni og þeir gleðjast yfir
minna atvinnuleysi og minni fjár-
lagahalla á pappírnum. Jákvæð
þróun í spunaheimum hjálpar öðrum
lítið.
Gissur
Pétursson
Efnahagsbati í
spunaheimum
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 14.9., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 4 rigning
Kirkjubæjarkl. 8 rigning
Vestmannaeyjar 10 alskýjað
Nuuk 3 súld
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skúrir
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 12 skúrir
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
London 18 heiðskírt
París 17 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 12 skýjað
Berlín 18 heiðskírt
Vín 17 léttskýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 15 léttskýjað
Montreal 23 alskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 20 skýjað
Orlando 26 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:53 19:54
ÍSAFJÖRÐUR 6:55 20:01
SIGLUFJÖRÐUR 6:38 19:44
DJÚPIVOGUR 6:22 19:24
Fertugur Þjóðverji gleypti 1,3 kg af
kókaíni í 108 pökkum og reyndi að
smygla því til landsins. Tollgæslan
stöðvaði hann við hefðbundið eftirlit í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 27. ágúst
sl. Maðurinn var þá að koma frá
Kaupmannahöfn. Grunur lék á að
hann væri með fíkniefni innvortis.
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók manninn og fór með hann í sneið-
myndatöku. Samkvæmt henni virtist
hann vera með mikið af fíkniefnum
innvortis. Maðurinn var úrskurðaður
í gæsluvarðhald daginn eftir að hann
var handtekinn og á næstu dögum
skilaði hann af sér 107 pakkningum
sem allar innihéldu kókaín, sam-
kvæmt tilkynningu lögreglustjórans
á Suðurnesjum. Önnur sneiðmynda-
taka sýndi að ein pakkning til við-
bótar var föst efst í meltingarvegi
mannsins. Hann var því fluttur á
sjúkrahús þar sem gerð var á honum
aðgerð til að fjarlægja pakkninguna.
Ekki vitað um vitorðsmenn
„Maðurinn reyndist hafa flutt inn-
vortis 1,3 kíló af kókaíni milli landa.
Er þetta talið mesta magn fíkniefna
sem einstaklingur hefur flutt inn-
vortis í einni ferð. Efni pakkning-
anna var þykkt og vel til þeirra vand-
að. Tómar vógu þær um 200 grömm,
þannig að samtals hafði maðurinn
gleypt 1,5 kíló,“ segir í tilkynning-
unni.
Lögreglan á Suðurnesjum fer með
rannsókn málsins og telst hún vera á
lokastigi. Styrkleiki efnisins liggur
ekki fyrir, að sögn lögreglunnar á
Suðurnesjum. Ekki hafa fleiri verið
handteknir vegna málsins og rann-
sókn hefur ekki enn leitt í ljós að
hann hafi átt sér vitorðsmenn hér á
landi að því er lögreglan sagði. Mað-
urinn hefur setið í gæsluvarðhaldi
frá því að málið kom upp.
gudni@mbl.is
Tekinn með
1,3 kg af
kókaíni
innvortis
Talið vera það
mesta sem fíkniefna-
smyglari hefur gleypt
DAGUR
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
P
O
K
A
H
O
R
N
IÐ
Kæru landsmenn!
Til hamingju með
Dag íslenskrar náttúru
sunnudaginn 16. september.
Í aldanna rás hefur íslensk náttúra
gefið kraft og veitt innblástur um
leið og hún hefur gert okkur kleift að
lifa af í harðbýlu landi.
Í náttúru landsins er falinn fjársjóður
sem mikilvægt er að varðveita fyrir
komandi kynslóðir.
Njótum gjafa náttúrunnar og fögnum
Degi íslenskrar náttúru
sunnudaginn 16. september.
Upplýsingar um dagskrá er að finna á
www.umhverfisraduneyti.is.