Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkrókur
Svo lengi sem elstu menn muna,
en þeir eru nú svo sem ekki alltaf
albestu heimildirnar, er það sumar
sem nú er á förum mun betra en
flest önnur. Að vísu vantaði vætu í
jörðina, og dæmi voru um að tún
væru brunnin og heyfengur af þeim
í rýrara lagi, en vissulega voru
mörg héruð verr sett en Skaga-
fjörður.
Það norðanáhlaup sem gekk
yfir landið um liðna helgi olli hér í
Skagafirði heilmiklu tjóni, þó að
minna væri um skaða á raflínum en
austar í landshlutanum, en hins-
vegar fennti fé og eru bændur enn
að leita þess fjár sem hrakist hefur
undan veðrinu og fennt. Einkum er
þetta í innsveitum en í þeim hluta
fjarðarins sem þekktastur er fyrir
snjóþyngsli, Fljótunum, var ástandi
einna best svo og úti á Skaga.
Á haustdögum var loksins haf-
ist handa við viðbyggingu Árskóla,
sem til stóð að hæfust þegar er
skóla lauk í vor, og má ætla að taf-
samt verði um framkvæmdir ef tíð-
arfar verður áfram umhleypinga-
samt og gerir erfitt um útivinnu.
Ekki hvað síst mun þetta gera það
skólastarf sem fram fer erfiðara og
valda meiri truflunum en þurft
hefði, ef áætlanir hefðu gengið fram
eins og ætlað var.
Í sumar tók sveitarstjórn sig til
og merkti vel allar götur í þétt-
býlisstöðum fjarðarins, á Sauð-
árkróki, Hofsósi og í Varmahlíð og
var þetta verulega ánægjulegt
framtak, enda allar götumerkingar í
hinum herfilegasta ólestri fram til
þessa. Voru dæmi til að aðfluttir á
Króknum, sem jafnvel hafa búið þar
um nokkur ár, hefðu á orði að það
væri ánægjulegt að vita nú með
fullri vissu, við hvaða götu þeir ættu
heima.
Nú í desember eru 120 ár frá
vígslu Sauðárkrókskirkju, en á
fjórðu helgi jólaföstu 1892 var kirkj-
an vígð og þótti eitt með veglegri
guðshúsum landsins á þeirri tíð.
Sagt var að hún rúmaði í sæti hvert
mannsbarn í söfnuðinum og meira
til. Forgöngu um kirkjubygginguna
hafði danskur kaupmaður Ludvig
Popp og lagði hann umtalsvert fjár-
magn til byggingarinnar og gaf
mikið af búnað til þess að kirkjan
yrði svo vegleg sem verða mætti.
Ekki auðnaðist Popp kaupmanni að
vera viðstaddur vígslu kirkjunnar,
en þá lá hann banaleguna, en hafði
látið útbúa burðarfleka til þess að
hann kæmist til athafnarinnar. Af
því gat þó ekki orðið, en vonsku-
veður sem gekk yfir þegar athöfnin
fór fram varð til þess að fjölmargir
gátu ekki verið viðstaddir vígsluna.
Á þeim 120 árum sem Sauðár-
krókskirkja hefur þjónað Sauð-
krækingum sem miðstöð trúar og
menningarlífs, hefur íbúum fjölgað
umtalvert og því hefur söfnuðurinn
látið stækka kirkjuna þrisvar og
endurgera hana sem næst því sem
var í upphafi og er hún nú svo sem
fyrr hið fegursta guðshús og von
manna að hún megi hér eftir sem
hingað til vera kjarninn í gamla
miðbænum á Sauðárkróki. Í tilefni
tímamótanna hefur verið áformað
að setja upp flóðlýsingu á kirkjuna,
en einnig að setja upp gangstígalýs-
ingu í kirkjugarði og er ætlað að
þessum framkvæmdum verði lokið
við afmælishátíð sem haldin verður
fyrsta sunnudag í aðventu næst-
komandi. Unnið er að því að fá til
landsins eitt af barnabörnum Lud-
vigs Popp kaupmanns frá Dan-
mörku, og mun hún þá tendra ljósin
sem lýsa munu upp þessa gömlu og
góðu kirkju, sem verið hefur at-
hvarf Sauðkrækinga í sorg og gleði.
Halda upp á 120 ára afmælið
Morgunblaðið/Ómar
Sauðárkrókskirkja Flóðlýsing verður sett upp við kirkjuna á næstunni.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Fjölskylduvæn göngu- og sögu-
messa með keltneskum brag verður
haldin á Akranesi og í Hvalfjarð-
arsveit á sunnudag, degi íslenskrar
tungu.
Að messunni standa Akranesbær,
Akraneskirkja, Innri-Hólmskirkja
og Biskupsstofa.
Messan hefst í Akraneskirkju kl.
13. Þaðan verður ekið með rútu að
Innri-Hólmskirkju þar sem kirkja
var reist á landnámstíð og helguð
Guði og dýrlingnum Kolum Killa.
Þaðan verður ekið að Görðum og
gengið til Kalmansvíkur og gengið
eða ekið þaðan aftur til Akra-
neskirkju. Eftir kærleiksmáltíð þar
bjóða Kvenfélag Akraneskirkju og
Akranesbær til kirkjukaffis í Vina-
minni. Tónlistarmenn munu þar
leika keltneska tónlist. Miðað er við
að allri dagskránni verði lokið fyrir
kl. 17.
Akraneskirkja.
Göngu- og sögu-
messa á sunnudag
Luis E.Arreaga,
sendiherra
Bandaríkjanna,
mun veita Hall-
birni J. Hjart-
arsyni við-
urkenningu fyrir
að koma kántrý-
tónlist á fram-
færi á Íslandi og
fyrir framlag
hans til kántrý-
tónlistar
Viðurkenningin verður afhent í
Kántríbæ á Skagaströnd kl. 17 á
þriðjudag.
Mun sendiherrann veita Hall-
birni viðurkenningu frá Country
Music Association í Bandaríkj-
unum og sendiráði Bandaríkjanna
á Íslandi
Bandaríkjamenn
heiðra Hallbjörn
Hallbjörn
Hjartarson
Fuglavernd skorar á veiðimenn
að virða friðun blesgæsar, nú
þegar gæsirnar séu að streyma
til landsins frá varpstöðvum sín-
um á Grænlandi.
Fuglavernd skorar einnig á
lögreglumenn og sýslumanns-
embætti í Borgarfirði og á Suð-
urlandi að auka eftirlit með
gæsaveiðum og skoða afla veiði-
manna.
Veiðimenn virði
friðun blesgæsar
STUTT
Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is
veisluþjónusta hinna vandlátu
Kokkurinn hjálpar þér að halda
hina fullkomnu veislu
Árshátíðir
Brúðkaup
Erfidrykkjur
Fermingar
Fundir
Kynningar
Þema
kokkurinn.is
Ferskur fiskur öll
hádegi í Víkinni
Fjallalamb á framandi máta
Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk,
ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á
salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum
sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu
2.690 kr.
Hálendis
spjótNÝTT
Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi,
sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is