Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
„Aðgangur að öruggu íbúðar-
húsnæði er mannréttindi en ekki
forréttindi,“ segir í ályktun sem
annað þing ASÍ-UNG sendi frá sér í
gær en ASÍ-UNG er skipað ungum
félagsmönnum aðildarfélaga Al-
þýðusambands Íslands. Í álykt-
uninni segir einnig að mikilvægt sé
að ungt fólk hafi raunhæft val um
búsetuform og fái húsnæðisstuðn-
ing óháð því hvort það velji að
leigja eða eiga húsnæði.
„Þing ASÍ-UNG áréttar að íbúð-
arhúsnæði á viðráðanlegum kjörum
sé grundvallaratriði svo ungt fólk
geti komið undir sig fótum og skap-
að fjölskyldum sínum góð lífsskil-
yrði,“ segir í ályktuninni.
Þá segir að gera þurfi leigu að
raunhæfum valkosti á húsnæð-
ismarkaði en til þess þurfi m.a. að
stuðla að stofnun stórra leigufélaga
sem tryggi öruggt langtíma leigu-
húsnæði fyrir ungt fólk á viðráð-
anlegum kjörum. Einnig þurfi
greiðslumat vegna íbúðarkaupa að
vera raunhæft og taka aukið mið af
stöðu hvers og eins.
Mannrétt-
indi ekki
forréttindi
ASÍ-UNG ályktar
um húsnæðismál
Morgunblaðið/Ómar
Fundur Annað þing ungra félags-
manna ASÍ fór fram í gær.
Í gær afhentu börn Kristjáns Eld-
járns, fyrrverandi forseta og þjóð-
minjavarðar, Myntsafni Seðlabanka
og Þjóðminjasafns minnis- og heið-
urspeninga ásamt skyldum gögnum
sem voru í eigu Kristjáns. Þá voru
þrjátíu ár liðin frá dánardægri for-
setans, sem lést 14. september
1982.
Munirnir verða í eigu Þjóðminja-
safns en varðveittir í Myntsafninu
og verða til sýnis í anddyri Seðla-
bankans alla virka daga næstu vik-
ur milli kl. 13 og 16.
Merkar
minjar
Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Afhending F.v. Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Margrét Hallgríms-
dóttir þjóðminjavörður og Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og skáld.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2013
veldur gífurlegum vonbrigðum að
mati Samtaka verslunar og þjón-
ustu, SVÞ, þar sem frumvarpið fari í
veigamiklum atriðum gegn helstu
baráttumálum samtakanna.
„Þau áform stjórnvalda að hækka
tryggingagjaldið, nú þegar allar for-
sendur eru til þess að lækka það um-
talsvert, mega ekki ganga eftir. Fyr-
irtæki í verslun og þjónustu bera
flest hver hlutfallslega háan launa-
kostnað og því er hlutur trygginga-
gjaldsins mikill og torveldar fyrir-
tækjum í þessum atvinnugreinum að
standa undir þeim kjarasamningum
sem gerðir voru, hvað þá að fjölga
starfsfólki,“ segir m.a. í fréttabréf-
inu. Þá eru áform um að afla 800
milljóna króna viðbótartekna af
vörugjöldum sem lögð verða á mat-
vöru sögð nokkuð sem engan óraði
fyrir.
Gagnrýna
harðlega boð-
aðar hækkanir
ASÍ og BSRB hafa tekið höndum
saman um sameiginlega fræðslu
fyrir starfsfólk sitt og stjórnir með
það fyrir augum að mæta breyttum
tímum, nýjum áherslum og viða-
meiri verkefnum.
Í þessum tilgangi hefur verið bú-
in til námsleiðin „Forystufræðsla
fyrir stjórnir og starfsfólk stétt-
arfélaga“ og er markmiðið með
henni að miðla, ræða og þróa áfram
þekkingu og aðferðir innan sam-
takanna og efla um leið fag-
mennsku og lýðræðisleg vinnu-
brögð, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá ASÍ í gær.
Forystufræðslan er heildstæð
námsleið sem skiptist í níu náms-
þemu með 30 námskeiðum sem
spanna alls 192 klukkustundir. Boð-
ið verður upp á nokkur námskeið á
hverju misseri, bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og á landsbyggðinni.
Stefnt er að því að bjóða upp á fjar-
nám. Stýrihópur stýrir verkefninu
en umsjón er í höndum Félagsmála-
skóla alþýðu og Fræðslusetursins
Starfsmenntar.
Hefja forystufræðslu
í launþegasamtökum
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Falleg birta með ljósum
frá Smith & Norland
Þetta er vélin
handa þér
Við eldum
með Siemens
Sölusýning Í dagfrá kl. 10 til 16
Í dag efnum við til sölusýningar
í verslun okkar að Nóatúni 4.
Þar gefst tækifæri til að skoða
allt hið nýjasta sem við bjóðum,
m.a. þráðlausa síma, eldunartæki,
kæli- og frystitæki, uppþvotta-
vélar, þvottavélar, þurrkara, ryk-
sugur, smátæki og mikið úrval af
alls kyns lömpum til heimilisnota.
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Veittur verður ríflegur
staðgreiðsluafsláttur.
Skoðið öll Tækifæristilboðin á
www.sminor.is.
Látið sjá ykkur
og njótið dagsins með okkur.
Það verður heitt á könnunni!