Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 22

Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Íslenska lífeyrissjóðakerfið er tekið fyrir í Lífi og sjóðum, tveimur heim- ildarþáttum eftir leikstjórann Gunn- ar Sigurðsson. Fyrri þátturinn var sýndur 10. september sl. á RÚV og verður sá seinni sýndur næsta mánudagskvöld, 17. september, kl. 22.20. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari sá um handritsgerð þáttanna og samdi tónlist við þá en um klipp- ingu og grafík sá Herbert Svein- björnsson. „Við fórum inn í þetta verkefni með því hugarfari að við ætluðum að skoða sjóðina, af því það er búið að tala svo mikið og illa um þá hér á Ís- landi,“ segir Gunnar. Sumir segi kerfið ónýtt en aðrir líti á það sem stólpa íslensks samfélags, kerfi sem hafi bjargað okkur frá bráðum bana hin síðustu ár. „Við ákváðum að fara í þetta með opnum huga,“ segir Gunnar. Stjórnendur lífeyrissjóða hafi í fyrstu ekki viljað tala við þá en látið tilleiðast á endanum. Ekki best í heimi Gunnar segir lífeyrissjóðakerfið íslenska dýrt í rekstri og mjög um- deilt. „Við látum alltaf eins og við séum að gera það besta af öllu, ég get ekki séð að þetta sé besta kerfi í heimi, eins og menn vilja meina. Þú sérð það sjálfur að ef það safnast á sama stað mjög miklir sjóðir sem þú þarft ekki að gera grein fyrir, ert að vinna með og þetta eru ekki þínir peningar, að þá erum við bara fólk. Það verður alltaf eitthvað skrítið í gangi þar. Og lífeyrissjóðir eru mjög sterkir í íslensku samfélagi, þeir eru farnir að reka öll stærstu fyrirtæki landsins, eru með menn í stjórnum og allt. Þetta er engin hemja, það þarf að endurskoða þetta kerfi, skoða upp á nýtt hvað menn ætla að gera í þessu. Það er ekki eðlilegt að hér sé valdablokk sem tengist lífeyr- issjóðum Íslendinga sem við erum skyldug til að borga 12% af laun- unum okkar í, hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ Það sé ekki eðlilegt að fólkið sem eigi peningana hafi ekkert um þá að segja, geti ekki mætt á fundi eða fellt stjórnir sjóð- anna nema eftir krókaleiðum og flóknum kerfum. „Við getum ekkert kosið í burtu menn eða beðið þá um að hætta, þeir verða að hætta sjálfir. Það er svo margt sem við komumst að. Svo er alltaf verið að segja að það sé allt ónýtt annars staðar, að gegn- umstreymiskerfið sé ónýtt. Bíddu, hver hefur sannað það fyrir okkur að gegnumstreymi sé eitthvað verra en þetta? Þetta heldur uppi vöxtum í landinu, þetta heldur uppi verð- bólgu, það er svo margt sem þetta gerir sem truflar daglegt líf fólks. Þegar þú safnar svona miklum sjóð- um í svona litlu landi og litlu hag- kerfi þá hlýtur eitthvað annað að láta undan á móti,“ segir Gunnar. Ekki glæpamenn eða grýlur Gunnar segist ekki hafa fundið neina glæpamenn eða grýlur við gerð myndarinnar en hins vegar hafi hann fundið kerfi sem gefi ekkert eftir og fari ekki að vilja þeirra sem eiga það. „Það kom fram í könnun sem Helgi (Vilhjálmsson) í Góu lét gera að yfir 70% af fólkinu sem er í þessu kerfi vildi láta gera eitthvað í sambandi við elliheimilin með þessa sjóði, búa til vísi að öðruvísi kerfi. Það hefur ekkert verið farið eftir því.“ Gunnar segir að eftir að gerð þátt- anna lauk hafi komið út skýrsla frá OECD, Efnahags- og framfarastofn- uninni, þar sem fram hafi komið að ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna sé verulega ábótavant. „Svo kom skýrsla Fjármálaeftirlitsins þar á eftir og þeir taka það fram að það vantar u.þ.b. 700 milljarða inn í þetta kerfi svo þeir geti staðið við skuldbindingar,“ segir Gunnar og Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Exeter á Englandi, hafi m.a. bent á þetta. Þá sýni 500 milljarða tap lífeyrissjóð- anna í efnahagshruninu að taka verði kerfið til endurskoðunar. Sam- kvæmt rannsóknarskýrslu lífeyr- issjóðanna kosti svo 3,5 milljarða að reka sjóðina. Það sé gífurlega hár rekstrarkostnaður. „Til sam- anburðar þá er það svipað og kostn- aður við rekstur æðstu stjórnar rík- isins, Alþingi, Ríkisendurskoðun, Ríkisstjórnin, Hæstiréttur, Emb- ætti Forseta Íslands og Umboðs- maður Alþingis. Samanlagt,“ segir Gunnar. „Þetta var mjög skemmtilegt og fræðandi og við erum bara að setja hluti í samhengi, við erum ekkert að gera neitt sem þú veist ekki eða fólk skilur ekki, við erum ekkert með neinn nýjan sannleik,“ segir Gunnar að lokum. Taka verði kerfið til end- urskoðunar. Ónýtt kerfi eða bjargvættur?  Íslenska lífeyrissjóðakerfið er tekið fyrir í heimildarþáttunum Líf og sjóðir  Ekki eðlilegt að fólk- ið sem á peningana í lífeyrissjóðum landsins hafi ekkert um þá að segja, segir einn höfunda þáttanna Morgunblaðið/Styrmir Kári Fræðandi Gunnar Sigurðsson leikstjóri á skrifstofu sinni. Hann segir að taka verði íslenska lífeyrissjóðakerfið til gagngerrar endurskoðunar. „Við erum bara að setja hluti í samhengi,“ segir Gunnar um Líf og sjóði. Tap lífeyrissjóðanna » Í úttektarskýrslu Lands- sambands lífeyrissjóða sem kynnt var 3. febrúar sl. var veruleg gagnrýni sett fram á stjórnun og starfshætti lífeyr- issjóða í aðdraganda banka- hrunsins. Úttektin náði til 32 lífeyrissjóða » Sjóðirnir töpuðu gríð- arlegum fjárhæðum við hrunið og nam tap þeirra samtals 479,7 milljörðum króna á ár- unum 2008-2010. Tap Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræð- inga var mest, rúmlega 101 milljarður króna. » Rúmlega helmingurinn af tapinu var vegna fjárfestinga í félögum sem tengdust ýmist Exista eða Baugi Group. Á morgun, sunnudag, munu reið- hjólalæknarnir í Dr. Bæk bjóða upp á fría ástandsskoðun reiðhjóla við Árbæjarlaug frá klukkan 14 til 18. Þar mun heill her ástandsskoð- unarmanna og -kvenna skoða hjólin og gefa út vottorð um heilsu þeirra. Gefnar verða ábendingar um ör- yggisbúnað sem á að vera á reið- hjólum, veittar eru leiðbeiningar um hæfilegan loftþrýsting í dekkj- um og ástand á bremsum og gírum kannað. Ef lítið mál er að laga hjól- ið á staðnum er það gert en hjólum sem þurfa á umfangsmeiri aðgerð- um að halda er vísað á hjólaverk- stæði, að sögn Sesselju Trausta- dóttur, framkvæmdastýru Hjólafærni á Íslandi. Ástands- skoðunin er boðin í tilefni af Evr- ópsku samgönguvikunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ástand Sesselja Traustadóttir, einn af hjólalæknunum, að störfum. Ókeypis hjólaskoð- un við Árbæjarlaug Kynningar- fundur fyrir karlmenn sem hafa greinst með krabbamein verður haldinn mánudaginn 17. september kl. 17.30 í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Á fundinn eru eiginkonur eða náinn aðstandandi velkomin með. Gunnhildur Magn- úsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstandandi, heldur erindi ásamt Einari Magnússyni sem sjálfur greindist með krabbamein. Umsjón með fundunum hefur Matti Osvald Stefánsson heilsu- fræðingur. Þá munu nokkrir sér- fræðingar halda fyrirlestra. Kynningarfundur fyrir karlmenn Matti Osvald Stefánsson Stéttarfélagið Framsýn skorar á Steingrím J. Sigfússon, ráðherra atvinnuvega- og nýsköpunarmála, að setja skýrar reglur um upp- runamerkingar á vörum s.s. lopa- peysum sem prjónaðar eru erlendis úr íslenskri ull og fluttar inn til landsins. Fram kemur í tilkynningu frá Framsýn, að óskað hafi verið eftir fundi með ráðherranum um málið. Vilja að lopapeysur verði merktar STUTT ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR VORU AÐ KOMA! Vertu fyrstur, fáðu þann besta! Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is Eigum allskonar bíla, langar þig í einn? Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is Ertu með kaupanda? Skjalafrágangur frá 14.990 kr. Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila Fylgstu með okkur á facebook Sölulaun frá 39.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.